Menntamál - 01.12.1953, Side 32
154
MENNTAMÁL
Bækur sendar Menntamálum
Skriflarbækur Guðmundar I. Guðjónssouar.
Á þessu ári hefur komið út bókaflokkur, sem ég vil leyfa mér að
benda kennurum á með þessum línum, og á ég þar við skriftarbækur
Guðmundar I. Guðjónssonar, en þær eru sjö alls.
Guðmundur í. Guðjónsson er löngu kunnur öllum kennurum fyrir
framlag sitt til skriftarkennslu í landinu, bæði með námskeiðum
víðs vegar, með útgáfu bóka og sem skriftarkennari Kennaraskólans,
en jjetta er í fyrsta sinn, sem hann gefur út kerfisbundnar skrifbæk-
ur, sem nægt geta nemandanum frá j)ví hann hefur skriftarnám og
svö lengi sem hann getur lært skrift.
Bækurnar gefa ótal tækifæri til notkunar og væri e. t. v. ekki van-
j)örf á, að Guðmundur skýrði fyrir kennurum, t. d. í Menntamálum,
hvernig hann teldi lientugast að nota ])ær. Ég tel bækurnar of dýrar
til þess að nemendur noti þær eingöngu til að skrifa í, heldur
jiurfi að liafa með jreim forskriftarlausa bók af þeim sökum og einn-
ig til |)css að nemendur öðlist næga æfingu. í fyrsta og öðru heftinu
er allt stafrófið tekið til meðferðar [>. e. a. s. litlu stafirnir.
Fyrst koma einföldustu stafirnir, og er sýnt, livernig á að byrja
hvern staf og draga hann til enda, einnig er bent á samræmi i halla.
Þannig eru allir lágstafirnir sýndir. Þá er kennt að tengja þá hvern
við annan í tveggja og jjriggja stafa orðum.
Þar næst eru lengdu stafirnir teknir á sama liátt, og bætist nú við
samræmið í stærð á lágum staf og lengdum. Þá eru í fyrsta heftinu
sýndir tölustafirnir og veitir ekki af að minna nemendur á, að ekki er
síður nauðsynlegt að skrifa þá vel en aðra stafi.
í Jjriðja lieftinu koma fyrir allir stóru stafirnir og stutt orð í
sambandi við þá. í fjórða lieftinu er smærri skrift en í hinum þremur,
hæfilega stór fyrir j)á, sem búnir eru að ná góðu valdi á stafagerð.
Eru J)ar bæði einstök orð og setningar. Fimmta heftið er fyrsta ein-
strikaða heftið, og tel ég })að, ásamt sjötta heftinu, mjög hentugt til
notkunar í unglinga- og gagnfræðaskólum, meðan skrift er kennd
þar.
Síðasta lieftið er verkefnabók, mjög liandhæg handbók fyrir þá
kennara, sem gefa nemöndum sínum fyrirmynd á töflu, og eins góð
fyrir nemendur sem fyrirmynd, ef kennarar þeirra telja sig ekki geta
gefið nógu góða fyrirmynd sjálfir.