Menntamál - 01.12.1953, Qupperneq 37
MENNTAMÁL
169
SIGURÐUR GUNNARSSON skólastjóri:
Tveir þættir frá Noregi
I. Norsk Skolemuseuvi.
Þegar ég skrapp til Noregs sumarið 1949, dvaldi ég nokkra daga í
Ósló. Kom ég þá snöggvast í Norsk Skolemuseum, en fékk ekki, af
vissum ástæðum, að vera þar nema mjög skamma stund. Gat ég því
aðeins gert mér takmarkaða grein fyrir starfsemi þess að því sinni.
En er ég dvaldi unt tíma í Ósló síðast liðinn vetur og vor, ltafði ég
góða aðstöðu til að kynna mér það, enda kynntist ég persónulega
safnverðinum, Arthur Gjermundsen, kcnnara.
Safn jjetta er tim margt atliyglisvert og til fyrirmyndar Jteim, sem
ekki hafa enn komið á hjá sér slíkri starfsemi og þar birtist. Er þar
])ví ánægjulegt og lærdómsríkt að koma, enda nota kennarar sér það
óspart.
Húsakynni safnsins, sem eru í Möllergataskole, Ósló, eru nú all-
mjög bætt frá 1949, þótt enn séu þau reyndar alltof lítil fyrir svo
merkilegt safn. Viðbótin er einkum fólgin í þvi, að nú hefur safnið
eignazt snotra skrifstofu og ágæta lesstofu, þar sent kennarar geta
unnið ákveðna tíma á dag, og eiga greiðan aðgang að miklum fjölda
uppeldis- og sálfræðirita og miirgu öðru, er varðar starf þeirra. Les-
stofan, sem rúmar allstóran hóp manna, er búin góðum húsgögnum,
og eru veggir skreyttir málverkum. Er saga safnsins um margt merk,
þótt eigi verði hér rakin að sinni.
Greina má safnið í þessa meginþætti:
1. Skólabóka- og kennslutækjadeild. Þar má finna allar skólabækur,
sem gefnar hafa verið út á síðustu árum, og einnig öll kennslu-
tæki, smá og stór. Er þarna um auðugan garð að gresja, því að
útgáfufyrirtæki skólabóka og skólatækja eru allmörg í Noregi og
samkeppni hörð. Eru því flestar skólabækur og tæki miklum mun
vandaðri og íburðarmeiri en hjá okkur, eins og í nágrannalönd-
unum öllum ylirleitt.
2. Nýjustu skólahúsgögn hafa þar sitt ákveðna rúm. — Norðmenn
eru sífellt að gcra nýjar tilraunir nteð skólahúsgögn, og eru sum
þeirra liarla athyglisverð.
3. Sérstök deild með gömlum skólabókum, skólatækjum og skóla-
húsgögnum. Hefur hún yfirskriftina „Det var engang," og er
mjög fróðlegt fyrir komandi tima.