Vorið - 01.06.1948, Side 6

Vorið - 01.06.1948, Side 6
44 VO RIÐ raunin að taka honum, eins og vera ber. Þótt undarlegt megi virðast, hálfskammaðsit ég mín þessa stund. Ég skammaðist mín fyrir, ef gleði mín yfir þessum sigri yrði áberandi, hér innan um vonbrigðin og alla ósigrana. Og ég hét því með sjálf- um mér, að ofmetnast ekki af þessu, hvorki við Geira, sem hafði oft kast- að hnútum að mér, né nokkra aðra. Kennarinn og prófdómarinn sögðu nú að lokum nokkur orð, hvor í sínu lagi, og þá var þessu erfiða dagsverki lokið og ekki ann- að eftir en að kveðja og halda heim. Já, bara að það hefði nú ekki verið annað eftirl Við áttum ferðaplögg okkar geymd úti í skemmu, og þangað fórum við nú til að hafa sokka- og skóskipti. Ég reyndi að forðast að verða á vegi Geira, en af einhverri tilviljun hittumst við þó fyrir utan skemmu- hornið, þegar flest börnin voru ann- að hvort farin, eða voru að tygja sig inni í skemmunni. Mér brá, þegar ég leit framan í Geira. Mér sýndist hann vera af- myndaður af reiði, vonbrigðum og særðum metnaði. Ég ætlaði að ganga framhjá honum, en liann gekk í veg fyrir mig og mælti hás- um rómi: „Þér ferst að vera montinn, kot- ungsræfillinn þinn, sem kemur í bættum buxum á sjálfan kirkjustað- inn.“ Það var eins og ég hefði verið stunginn með hnífi, og reiðin sauð og ólgaði í mér. Það var satt, að buxurnar mínar voru dálítið bætt- ar á öðru hnénu, við því var ekkert hægt að gera. En ég minntist þess á augabragði, að mamma hafði vak- að, þegar aðrir voru háttaðir kvöld- ið áður, til að reyna að bæta þetta gat og láta svo lítið bera á því sem mögulegt var. Það var það eina, sem hún gat gert. Mér fannst þetta um fram allt vera svo mikil móðg- un við mömmu, að engin skynsam- leg hugsun komst að, aðeins reiði — reiði. Ég hugsaði mig ekki um, ég reiddi hnefann til höggs og barði Geira utan á vangann, eins og kraft- arnir leyfðu. Geiri bjóst ekki við þessu áhlaupi, og riðaði til falls, en náði þó jafnvæginu, og var þá ekki að sökum að spyrja. Hann rauk á mig og lét Iiöggin dynja á mér, og svo rukum við saman, eins og reiðir ltanar. Ég veit ekki, hve lengi þessi viðureign stóð, sem ég skammast mín fyrir enn í dag. En í þessum svifum komu mjaltakonur úr fjósi og áttu leið þarna fram hjá okkur. Munum við þá hafa skammast okk- ar báðir og hættum áflogunum. En fátt varð um kveðjur að þessu sinni. Fáir munu hafa komizt að þessum árekstri, en þó nógu margir til þess, að þetta kvisaðist út meðal manna og var hlegið að. Ekki sá þó á okkur til muna, og ekki þorði ég að segja

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.