Vorið - 01.06.1948, Síða 27

Vorið - 01.06.1948, Síða 27
VORIÐ 65 gerði sitt bezta til þess að vaxa. En fjaðrir þess urðu með fegursta lit- bfæ: brúnar og grænar, blárauðar °g gylltar. En það var hryggt yfir því að vera svona lítið, og óskaði eftir að verða stórt og sterkt og njóta aðdáunar, eins og hin dúfu- börnin. »Ó, mamma," stundi það. „Það er eins og það sé ekkert rúm fyrir lnig í heiminum.“ „Gerir ekkert til, barnið mitt,“ sagði mamma. ..Hverju smádýri er ætlað að vinna sitt verk í heiminum, og það verður vissulega eitthvað til handa þér, elsku litla dúfan mín.“ I höllinni, þar sem litla dúfan var, bjó Valetin biskup hinn góði. Enginn maður í Rómaborg naut meiri ástar en hann, og það var vegna þess, hve góðsamur hann var. Daglega sendi biskupinn öllum vin- ttm sínum eitthvert merki um vin- attu. Stundum sendi hann veikri prinsessu í stóru höllinni handfylli af þrenningargrasi með sínum litlu, dýrðlegu andlitum. Stundum sendi hann til lítillar, máttvana stúlku í fátækrahverfinu körfu af nýjum jarðarberjum. Einnig sendi hann bréf til vina sinna og sagði þeim, hve vænt sér þætti um þá, því að ganrli maðurinn elskaði allt og alla °g líka litlar dúfur, sem flugu um göturnar. Dag nokkurn tók Valetin biskup eftir lítilli dúfu. Hann brosti, af því að lrún var svo falleg. Litlu dúfunni þótti vænt um hann fyrir þetta bros. Á hverjum degi flaug hún að glugganum á vinnustofu biskupsins og kurraði, en hann brosti blíðlega á móti. En það var einn maður í Róm, sem hataði Valetin, af því að hann var svo góður og af því að öllum þótti vænt um lrann. Það var vond- ur konungur, Claudius að nafni, voldugasti konungur í heiminum. Hann sat daglega í hásæti sínu og heyrði menn tala um, hve vænt þeim þætti urn Valetin. „Farið til hallar gamla manns- ins,“ æpti konungurinn til her- manna sinna. „Takið hann og látið í dimmasta klefann í fangelsinu mínu. Hvernig dirfist hann að vinna ást manna, sem eru óvinir mínir.“ Og hermennirnir gerðu, eins og konungurinn hafði sagt þeim. Biskupinn var hryggur. Ekki vegna þess, hvað vondi konungur- inn fór illa með hann, heldur vegna þess, að hann gat ekki sent vinum sínum neinn vott um ástúð sína. Hann vissi, að þeir mundu sakna hans. „Hvað mun máttlausa stúlk- an gera,“ hugsaði hann. „Hún heldur, að ég hafi gleymt sér.“ Litla dúfan flaug um allt og leit- aði að vini sínum. „Hvar skyldi elsku Valetin vera?“ spurði hún. En hvað var það, sem hún heyrði sagt á götunni? Að konungurinn hefði

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.