Vorið - 01.06.1948, Blaðsíða 31
V O RIÐ
69
tilhlökkun að ræða, og það var með
naumindum, að mamma hennar
gat fengið hana til að fara. Allur
sætleiki lífsins var nú horfinn.
Skólagangan, sem hún hafði hlakk-
að svo til, var nú orðin kvíðaefni.
-------Þegar Sigga litla kom
grátandi heim úr skólanum í ann-
ið sinn seinna þennan dag, var
tnömmu hennar nóg boðið. Sigga
»agði, að krakkarnir hefðu hlegið
að töskunni. Þau höfðu sagt, að
það væri eins og hún gengi með
hlómakörfu undir hendinni. Hún
sagðist aldrei fara í skólann aftur.
Svona var þá þessi himinn hrun-
tnn. Mamma sagði fátt, en hún hét
því með sjálfri sér, að aldrei fram-
ar skyldi nokkur fá tækifæri til að
hiæja að sínu barni, af því að það
vasri öðruvísi en önnur börn.
Þegar Sigga liafði borðað, gat
tnainma fengið hana til að fara út
að leika sér, en sjálf tók hún nú til
sinna ráða.
Skömmu eftir að hún giftist hafði
hún eignast dýra og fagra nælu, sem
'hún notaði ekki, nema við hátíðleg
tækifæri. Þetta var eini skartgrip-
nrinn hennar, og það átti að verða
erfðagripur. Sigga átti að fá næl-
nna, þegar hún fermdist, eða
kannski ekki fyrr en hún giftist.
Þetta hafði verið ákveðið fyrir
löngu.
Mamma hafði nú kjólaskipti, fór
1 götuskóna sína og smcygði sér í
kápuna. Því næst opnaði hún
kommóðuskúffuna sína og tók þar
næluna fögru upp úr litlu skríni.
Hún lét hana í töskuna sína og
gekk út í bæ.
Hún nam ekki staðar fyrr en hún
var kominn að búðardyrunum
hans Jóns gullsmiðs. Hún gekk rak-
leitt inn í búðina, opnaði töskuna
sína, lagði næluna á búðarborðið og
spurði:
,,Viljið þér kaupa þessa nælu?“
Jón gullsmiður leit fyrst spyrj-
andi á þessa ókunnu konu, en því
næst athugaði hann næluna litla
stund og mælti síðan:
„Já, ég skal gefa yður 50,00 krón-
ur fyrir hana.“
„Ég geng að því,“ mælti móðir
Siggu, og þar með voru þau við-
skipti útkljáð.
Á heimleiðinni kom hún við í
bókabúð og spurði eftir skólatösk-
um.
„Hér er ein, sem kostar 8,00 kr.“
mælti búðarstúlkan. „Og hérna er
önnur, sem kostar 20,00 kr.,“ bætti
hún við. „Og svo höfum við hér
eina tegund enn, en hún er nokk-
nð dýr. Hún kostar 35,00 kr.
Móðir Siggu skoðaði töskurnar
litla stund, eins og hún væri í svo-
litlum vafa um, hverja þeirra hún
ætti að taka. En eftir litla þögn seg-
ir hún: „Ég ætla að fá þessa, sem
kostar 35,00 kr.“, og leggur pening-
ana fram á borðið. Þetta var ekki
lengi gert.
Þegar hún kom heim, var Sigga