Vorið - 01.06.1948, Síða 41
VORIÐ
79
Dægradvöl
1- Ókunnur maður kom inn til gull-
smiðs og keypti hring, sem kostaði
150 kr. og greiddi með 500 kr. seðli.
Gullsmiðurinn gat ekki gefið til
baka og fékk seðlinum skipt í bank-
anum. Ókunni maðurinn fékk aftur
350 kr. og fór.
En stundarkorni síðar kom mað-
ur frá bankanum, sem sagði að 500
kr. seðillinn væri falsaður og verð-
laus. Hve miklu tapaði gullsmiður-
inn?
2- Skrifaðu tölurnar: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 9
a blað (talan 8 má ekki vera með)
°g biddu einhvern félaga þinn að
benda á þá tölu, sem er skrifuð
verst. Margfaldaðu þá tölu með 9 og
þá útkomu aftur með heildartölunni.
Valdís Helgadóttir, 12 ára, sendir
þassa botna:
Liðin ljósbjört jólin,
en lífsins gleði ei þver.
Upp til fjalla fjölga spor,
finnur yndi smalinn.
Kolbrún R. Valtýsdóttir, Kleppjárns-
reykjum, 8 ára, sendir þennan botn:
Og búinn er bráðum skó.linn,
þá börnin leika sér.
Ebba Eggertsdóttir, Akureyri, 12 ára,
sendir þennan botn við seinni vísunni:
Léttist hugur, lifna spor,
litkast grund og balinn.
Dæmi: 5 x 9 = 45
12345679
x 45
61728395
49382716
555555555
Þetta er góð æfing, og nú ertu líklega
farinn að skrifa 5 vel og svo getur ein-
hver annar æft sig á annarri tölu.
RAÐNING
á dægradvöl í 1. hefti.
1. Hann gaf 2 lítra en seldi 4 lítra.
2. Hans er 39 ára, en sonurinn 7 ára.
3. Ráðning á krossgátunni:
R 1 ‘ S T
A L L A
S L Ó Ð
S A R A
BRÉF ASKIPTI.
Þessi börn óska eftir að komast í
bréfasamband við börn einhvers staðar
á landinu. Æskilegur aldur tilgreindur
í svigum.
Svanhildur Halldórsdóttir (9 ára).
Kristín Halldórsdóttir (8 ára), Varma-
hlíð, Reykjadal, S.-Þing.
Sigrún Gísladóttir, Sólheimagerði,