Vorið - 01.12.1954, Side 18

Vorið - 01.12.1954, Side 18
136 V O R I Ð verðum við áreiðanlega góðir vinir. PRINSESSAN: Kæri Frans. Mór geðjast ekki að froskum, sem eru huglausir og hræddir. Ef þú átt að verða maðurinn minn, verður þú að vera hugrakkur, og þú mátt aldrei þola það, að nokkrum sé illt eða rangt gert. FRANS: Fagra prinsessa. Það er ekkert það til, sem ég óttast. Ég hef alltaf hjálpað þeim, sem eru minni máttar. KONUNGURINN: Þetta er gott! Þetta er fínt! Ég hygg að þú verð- ir góður eiginmaður og tengda- sonur. Þú skalt fá dóttur mína. FRANS: Þúsund þakkir! KONUNGURINN: Takið nú bindið frá augum hans, svo að við getum þekkt hvort annað. FRANS: Já, það gleður mig að fá að sjá ykkur. (Bindið er tekið frá augum hans.) KONUNGURINN: Við höfum víst hitzt einhvern tíma áður? FRANS (hræddur): Ein-hvern-tíma — áður. Er þa-a-að? KONFJNGURINN: Já, ég heilsaði upp á þig, þegar þú sazt á stein- inum og speglaðir þig í vatninu. FRANS: Nú — so — já — o-já. DROTTNINGIN: Við höfum líka sézt áður, Frans. Og það síðast fyrripartinn í dag, þegar ég komst ekki upp úr vatninu. FRANS: Á, — ó-já, einmitt það. PRINSESSAN: Og ég kallaði á þig, þegar ég varð fyrir árás, en þú hljópst þína leið. FRANS: Hjálpl Ég vil komast heim! (Hleypur af stað.) HIN (öll): En, Frans. Hvað er að þér? Leggur þú á flótta? H. J. M. þýddi. Kennarinn: „Segðu mér nú, Palli, ef Kristján fengi nú lánaða hjá þér eina' krónu og greiddi þér svo 10 aura á viku. Hve mikið skuldar hann þér eftir tvo mánuði?“ Palli: „Eina krónu.“ Kennarinn: „Hvað er að heyra! Þekkir þú ekki hinar einföldustu reikn- ingsaðferðir?“ Palli: „Jú, en ég þekki Kristján bet- Páll gamli: „Vísindamenn hafa reikn- að það út, að sólin muni verða alveg slokknuð eftir 70 milljónir ára.“ Kona hans: „Hvað mörg ár sagð- irðu?“ Páll: „Ég sagði 70 milljónir ára.“ Kona hans: „Æ, guði sé lof! Mér heyrðist þú segja fjörutíu." Kaupmaðurinn (við dreng, sem stendur við búðarborðið): „Um hvað ert þú að hugsa, væni minn?“ Drengurinn: „Ég man ekki, hvað mamma bað mig að kaupa í töskuna." t Kaupmaðurinn: „Hvaða tösku?“ Drengurinn: „Æ, ég hef líka gleymt töskunni.“ V

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.