Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 21

Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 21
V O RIÐ 139 gjöra, hvað eigum við þá að gjöra? Eigum við að fara heim og segja frá því? Er það ekki slúður?“ Nú skildi mamma hans, en gætti sín, að segja ekki neitt. Það að segja eftir vinum sínum var svo ljótt, og erfitt að greina hér á milli, hvað rétt er eða órétt. Hún hugsaði sig vel um. Svo spurði hún: „Hefur þú verið með í nokkru, sem Jrú þarft að skammast þín fyr- ir?“ „Já, við vorum margir saman, en það var bara einn, sem gjörði það.“ „Hefurðu talað við hann?“ „Nei, hann mun aldrei játa að hafa gjört það. Og hann lítur svo á, að það sé slaður, ef við hinir segjum frá því.“ „Hefði hann giört þetta, hefði hann verið einn?“ „Nei, það er ég viss um, að hann hefði ekki gjört.“ „En þá eruð þið allir hinir með- sekir, ef þið hafið verið orsök þess, sem hann gjörði." Það varð þögn nokkra stund. Svo saa;ði Haraldur: „Ef eg aðeins vissi, livað er rétt að gera, skyldi ég gera það samstundis. Það er léttara en að vera alltaf að hugsa um þetta.“ Mamma hans sat og las x biblí- unni. Nú tók hún þessa þungu bók upp og blaðaði í henni eins og lxún leitaði að einhverju. Og að síðustu fann hún það og las hægt og með þungum áherzlum: „Því að þegar þú ferð áleiðis til yfirvaldanna með andstæðingi þín- urn, þá ireyndu að sættast við bann á leiðinni, svo að hann leiði þig ekki fram fyrir dómarann og dómarinn feli þig fangaverðinum og fanga- vörðurinn láti þig í fangelsi. Ég segi þéi', þú munt ekki losna úr fangelsinu fyrr en þú hefur greitt upp hinn síðasta eyri.“ „Ég skil þetta ekki, mamma." „Hugsaðu þig nú um. Bæði þér og hinum drengjunum líður illa, a£ því að sá seki vill ekki segja frá, hvað hann ha£i gjört. A meðan hann segir ekkert, verðið þið allir grun- aðir, og smám saman verður hann eins og óvinur ykkar. Þið verðið reiðir við hann. Hann verður and- stæðingur ykkar. Og í hvert skipti og þið lokið augunum og hugsið um þetta, þá xæynið þið að fá lxann til að játa. En hugsaðu þér, ef þið gætuð sætzt við hann á leiðinni. Og eftir því, sem þú hugsar um þetta, vaknar samvizka þín og hún er ströng. Hún segir, að þú eigir sök á því, að hann gei'ði þetta. Og sam- vizkan er verri en nokkur fanga- vörður, þess vegna er hún líka tákn- uð með orðinu fangavörður." „En það get ég aldrei fengið Iiina til að skilja. Og hefði ég ekki talað við þig, hefði ég ekki skilið það heldur, og þeir hafa engan eins og þig til að tala við. Hvað á ég að gjöra, mamma?“ „Það er ein leið til. Þegar það

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.