Vorið - 01.12.1954, Side 20

Vorið - 01.12.1954, Side 20
138 VO RIÐ að Maðs yrði svo reiður, en aðrir sögðu, að það væri svo gaman og svo þutu þeir upp að húsinu. En þeir voru ekki fyrr komnir inn í ganginn að húsinu, en þeir mættu gömlu hetjunni og hann kastaði þeim út í snjóskaflinn og svo sprikluðu þeir þar skellihlæj- andi. En þegar þeir stóðu aftur úti á veginum, fannst einum þeirra, að rétt væri að gefa karlinum svolitla kveðju áður en þeir færu og kasta nokkrum snjókúlum i húsvegginn. Þetta var ósköp meinlaus hugmynd og allt í einu dundu snjókúlurnar á húsveggnum, og þegar Maðs gamli kom í ljós fjúkandi vondur bak við gluctgatjaldið, kom ein snjókúlan á miðja gluggarúðuna. Hún fór í mola, og rúðubrotin dreifðust allt í krinsmm þann gamla, en hann hörfaði aftur á bak og sendi strák- unum tóninn. Þá varð allt í einu svo kalt og leiðinlegt. Það var engin jólagleði lengur. Bara leiðindi. Maðs hótaði að kæra þetta fyrir sýslumanninum, prestinum og kennaranum. Dreng- irnir litu hver á annna. Það var ekki neitt gaman að leika jóla- sveina. Og þessir búningar og grím- urnar voru andstyof'rilegar. Æ, þeir ætluðu heim. Og við næstu gatna- mót fór hópurinn að þvnnast. F.inn fór þessa götu bg annar hina og hurfu. Daginn eftir gekk sá orðrómur, að framin hefðu verið skemmdar- verk á stofu Máðs kvöldið áður. Það hefðu verið nokkrir jólasveinar, sem sýndu þennan hetjuskap, — sagði fólk háðslega. Og mæðurnar spurðu drengi sína: ,,Þú hefur vonandi ekki verið með í þessu?“ Og þá þorðu dreng- irnir ekki að segja frá, hvernig þetta gerðist. Þeir höfðu verið með í því allir, þó að aðeins einn þeirra bryti rúðuna. En það var leiðinlegt að hugsa um rúðuna hans Maðs, og það eyði- lagði fyrir drengjunum það, sem eftir var af jólunum. Jólatrésskemmtunin átti að vera fimmta dag jóla. — Oll böm í Hlíð vom farin af stað. — Bara Haraldur var heima og vildi ekki fara. Hann las í Njálu meðan systtkini hans voru inni. En þegar þaU voru farin, lagði hann frá sér bókina og kom fram í edhús til mömmu sinnar og spurði: „Hvað er það, sem kallað er slúð- ur, mamma?" ,,Slúður?“ Mamma hans leit undr- andi upp. „Það veiztu, góði minn.“ „Ég hélt ég vissi það, en ég veit ]rað ekki. Þegar við erum margir saman og einhver okkar gerir svo eitthvað, sem við hinir erum ekki sammála um, en sem við ef til vill höfum verið með í að fá hann til að

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.