Vorið - 01.12.1954, Síða 28

Vorið - 01.12.1954, Síða 28
146 V O R I Ð Framhaldssagan. Börnin við járnbrautina. Saga eftir E. NESBIT. — Hannes J. Magnússon þýddi. (Framhald). Frá eldhúsdyrunum lágu fimm þrep niður í kjallann. Þar var bæði eldiviður og kol ásamt kössunum, sem áður eru nefndir. Pétur hélt á ljósinu, meðan mamma reyndi að opna kassann, sem var negldur aft- ur. „Hvar er hamarinn?" spurði Pét- ur. „Já, það er nú einmitt það,“ sagði mamma. „Ég er hrædd um, að hann sé einhvers staðar læst niður. En þarna eru kolarekur og eldskörung- urinn.“ Og með þeim verkfærum fór hún að reyna að opna kassann. það væri þrumuveður. Það kom af því, að þau lokuðu öllum hellisdyr- unum. Svo varð allt kyrrt. En litlu tröllin dönsuðu til sólar- uppkomu. Og upp frá þessum degi hættu stóru tröllin að lítilsvirða litlu tröllin. Gott samkomulag varð í skóginum og þar ríkti friður og eining. Stóru tröllin máttu vera þakklát fyrir að mega búa í skógin- um. Því að litlu tröllin höfðu sann- að, að þau væru bæði vitrust og sterkust. „Þú meiðir þig á höndunum," sagði Róberta, „lof mér að reyna." „Ég vildi óska, að pabbi væri kominn,“ sagði Fríða, „lrann yrði ekki lengi að opna kassann." Loks létu naglarnir í'kassalokinu undan. Fyrst losnaði ein fjöl, og svo hver af annarri, og að síðustu stóðu þær allar fjórar beint upp í loftið, og naglarnir líktust löngum, gljá- andi járntönnum. „Húrra!“ kallaði mamma. „Hér koma nú fyrst nokkur kerti. Farið þið nú upp og kveikið á þeim, stúlkur mínar! Þið getið fundið nógar undirskálar. Þið skuluð láta leka einn dropa af vaxi á skálina og setja svo kertin þar ofan á.“ „Hvað eigum við að kveikja á mörgum?“ „Eins mörgum og þið viljið. Að- alatriðið er að við kemumst í gott skap, en engir geta verið í góðu skapi í myrkrinu, nema uglur og kettir.“ Litlu stúlkurnar kveiktu nú á kertunum. Þegar borðstofan var orðin uppljómuð af 14 kertaljósum, sótti Róberta kol og eldivið, og kveikti upp í ofninum. „'Það er ákaflega kalt í veðri núna,“ sagði hún, „þó að komið sé (E. S. þýddi).

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.