Vorið - 01.12.1954, Síða 32
150
V O R I Ð
Lagt af stað frá Reykjavíkurflugvelli.
okkur með íslenzka þjóðsöngnum.
Þarna fór fram opinber móttaka.
Þar voru mættir margir karlar og
konur. Ég man nú ekki eftir þeim
öllum. En þeir helztu voru: Paulus
Gjörtz, forseti bæjarstjórnar, ræðis-
maður íslands í ÁJasundi, Oscar
Larsen, formaður fiskiiðnsýningar-
innar, Georg Garshol, Andersen-
Rysst, sendiherra Norðmanna á ís-
Iandi, og okkur til mikillar ánægju
var þarna einnig sendiherrann okk-
ar í Noregi, herra Bjarni Asgeirs-
son. Svo var þarna náttúrlega st jórn
Karlakórs Álasunds, sem annaðist
allar móttökur. Nú var farið niður
f borðsalinn. Þar héldu margir
menn ræður. Svo sungum við. Þá
var þessari móttöku lokið. — Nú
var okkur vísað til herbergja í þess-
um skóla, sem átti að verða bústað-
ur okkar næstu daga og við fórum
að koma okkur fyrir.
Þarna í Álasundi eru búsettar
tvær íslenzkar konur, sem reyndust
okkur eins og beztu mæður. Þær
heita Þorgerður Brynjólfsdóttir frá
Krossanesi og frú Oddfríður Sætre.
Seinna um daginn vorum við sótt
og farið með okkur á sýninguna.
Þar sungum við nokkur lög fyrir
þúsundum áheyranda. Og tóku
þeir okkur mjög vel. Síðan var okk-
ur sýnd sýningin eins og hún lagði
sig. Á eftir máttum við fara okkar
eigin ferða. Lfm kvöldið fórum við
öll heim, snæddum kvöldverð og
fórum að sofa. Þreytt en áreiðanlega
öll ánægð eftir þennan fyrsta dag
okkar í Álasundi. Því að hvar sem
við komum mætti okkur sama ást-
úðin og hlýjan.
Anna G. Jónasdóttir.