Vorið - 01.12.1954, Side 35

Vorið - 01.12.1954, Side 35
VO RIÐ 153 syngja. Við fylktum liði og gengum inn á sviðið undir dynjandi fagnað- arlátum. Síðan hófst söngurinn. Okkur tókst sérstaklega vel og söngnum var ákaft fagnað, enda var óvenju gott að syngja fyrir þessa áheyrendur. Lang-beztar undirtekt- ir fékk samt Iagið „Um sumardag" með tvísöng þeirra Arngríms Jó- hannssonar og Önnu G. Jónasdótt- ur. Voru þau rnarg kölluð fram og lagið endurtekið. Þegar söngnum var lokið, var ekki til setunnar boðið, því að gisti- stað okkar var lokað kl. 11, og fyrir þann tíma þurftum við að vera komin heim. Það var þó ekki hægt um vik, því að á þessum tíma gengu engir áætlunarvagnar til Oslóar og leigubílar sáust varla og svo voru þeir of dýrir fyrir okkur. Trvggvi var einhvers staðar að reyna að ráða fram úr þessu, en við biðum í hóp. Meðan á biðinni stóð fengum við Anna leyfi til að skreppa frá, „en þið megið ekki vera lengi,“ áminnti Björgvin okkur. Við flýttum okkur nú sem mest við máttum, en þegar við komum aftur brá okkur heldur í brún, því að krakkarnir voru öll á bak og burt. Við hlupum um og leituðum að J^eim, en þau virtust hafa sokkið niður í jörðina, og þarna stóðum við eins og glópar, mállausar og villtar í ókunnu landi. Þá heyrðum við allt í einu íslenzku- legt „halló' og rétt í því komum við auga á konu er benti og hrópaði í ákafa: „Þau fóru niður á bryggj- una jDarna." Við tókum nú til fót- anna og hlupum allt hvað við gát- um niður á bryggju, en hver getur lýst skelfingunni, sem greip okkur, þegar við sáum ferjuleggjafrálandi, Heimkoman. ♦

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.