Vorið - 01.09.1967, Side 10

Vorið - 01.09.1967, Side 10
það hlutverk að fela nokkrar kindur, en hin börnin áttu þá að leita og finna hina týndu sauði, og hafði þá hvort þeirra með sér sinn hund. Börnin sökktu sér nú niður í þennan leik, en skimuðu þó við og við út yfir hafið til að huga að föður sínum á „Svölunni“. En það dróst að hann kæmi. Nú kom móðir þeirra út fyrir hús- vegginn og kallaði á þau til að borða miðdegisverðinn. Þau máttu varla vera að því, en hlýddu þó og hlupu heim að húsinu. Á meðan þau voru að borða, sagði mamma þeirra. „Nú ætla ég að segja ykkur nokkuð, börnin mín, en þið verð- ið að lofa því að setja ekki upp fýlusvip þegar þið heyrið það.“ „Nei, við lofum því,“ sögðu þau öll. „Hvað er það mamma? segðu það bara.“ „Jæja, það er þá það, að pabbi ykkar og ég ætlum að skreppa í kaupstaðinn á morgun, upp í Hólminn, en á meðan verðið þið að vera afskaplega dugleg og elskuleg börn.“ „I kaupstaðinn á morgun? Upp í Hólminn?“ hrópuðu börnin. „Hvað verðið þið lengi?“ „Við getum nú víst ekki komið aftur á morgun. Það verður í svo mörgu að snúast,“ sagði Halla móðir þeirra. „Hvað eigum við þá að gera á með- an?“ spurði Einar. „Ja, það er nú sitt af hverju,“ sagði Halla. „Ef það verður þurrkur á morgun eigið þið til dæmis að breiða fiskinn og taka hann svo saman aftur, ef það skyldi líta út fyrir rigningu, og auðvitað þurfið þið að taka hann saman annað kvöld, ef þið hafið ekki verið búin að því áður,“ sagði mamma þeirra. „Og hvað eigum við að gera meira?“ spurði Svanur. „Þið verðið auðvitað að mjólka kýrnar. Þið kunnið það, Einar og Dóra. Svo skiljið þið mjólkina og látið hana svo niður í kjallara. Þar er kaldast. Og svo er bezt að ég biðji þig, Dóra mín, að taka til matinn, kannski elda eitthvað handa ykkur. Svo getið þið hjálpast að því að þvo upp á eftir.“ „Þurfum við svo ekki að gera meira?“ spurði Svanur. „Nei, ætli þetta verði nú ekki nóg? Jú, annars. Þið getið reitt eitthvað af arfa úr kálgarðinum. Þar er allt að fyllast af arfa,“ sagði móðir barnanna. „Æ, það er svo leiðinlegt að reita arfa,“ sagði Dóra. „Jæja, börnin mín, þið ráðið því nú, hvort þið glímið við arfann eða ekki. En munið eftir því að fara ekki norður á bjargið. Ég er alltaf hrædd um ykkur þar,“ sagði Halla. „Nei, við skulum ekki fara þangað,“ sagði Einar. „Ég skal sj á um það.“ „Já, ég er alltaf svo hrædd við þetta bjarg,“ sagði Halla, „síðan pilturinn fórst þar um árið.“ „Viltu segja okkur frá því, mamma?“ spurði Dóra. „Já, það var löngu áður en við kom- um hingað. Þá var hér unglingspiltur, sonur hjónanna, sem bjuggu hér þá. Hann var um sextán ára aldur þá. Hann ætlaði víst að klifra eftir eggjum í bjarginu og mun hafa hætt sér út á tæpa sillu með þeim afleiðingum, að hann 104 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.