Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 30
LOA TALAR VIÐ BANGSA
Einu sinni, þegar Lóa litla hafði ekki
við neinn að tala og lét sér leiðast, tók
hún Bangsa gamla út úr skáp, lét hann
setjast fyrir framan sig og fór að ræða
við hann:
Lóa: — Hvað ertu annars gamall,
Bangsi minn?
Bangsi: — Ha — gamall? Ég veit
það ekki.“
Lóa: — Ertu 5 ára? Ertu kannski
hundrað ára?
Bangsi: — Já, ætli það ekki.
Lóa: — Kanntu nokkrar vísur?
Bangsi: — Vísur? Hvað er það?
Lóa: — Nú það eru bara vísur, sem
hægt er að kveða og syngja. Til dæmis:
— Afi minn fór á honum Rauð.
Bangsi: — Nei, ég kann engar visur.
Lóa: — Eigum við að koma í mömmu-
og pabbaleik? Ég verð mamman, en þú
pabbinn.
Bangsi: Hvað er að vera pabbi?
Lóa: Nú, þú átt að passa börnin, þeg-
ar ég er ekki heima. Þú átt að skipta um
bleyjur á þeim, þegar þau pissa á sig.
Svo áttu að þvo upp fyrir mig diskana
og bollana, kannski þvo þvottinn og fara
fyrir mig í búðir.
Bangsi: — En hvað ætlar þú að gera?
Lóa: — Ég á að elda matinn, búa um
rúmin og sauma föt á börnin.
Bangsi: — Hvaða börn.
Lóa: — Nú, börnin okkar, auðvitað.
Bangsi: Eigum við einhver börn?
Lóa: Nei, ekki ennþá, en við ætlum að
eiga tíu börn. — Er það ekki, Bangsi?
Bangsi: Ég veit það ekki. Mér er
sama.
Lóa: Veiztu það Bangsi, að nú eru
jólin að koma?
Bangsi: Jólin, hvað er það? Er það
eitthvert dýr?
Lóa: — Nei, nei, það er hátíð. Þá fá
allir fín föt og jólagjafir.
Bangsi: — Ég fæ víst engin fín föt.
Eg á bara þessi gömlu föt.
Lóa: — Þú ert alltaf svo fínn, Bangsi
minn og sætur á svipinn (kyssir hann á
nefið).
Bangsi: — Ég sætur? .... Jæja?
Lóa: — Eigum við nú ekki að fara
að hátta og sofa, Bangsi minn?
Bangsi: — Ég sef aldrei.
Lóa: Sefurðu aldrei? Ertu þá aldrei
syfjaður?
Bangsi: —— Syfjaður? Hvað er það?
Lóa: — Þú ert svo voðalega heimskur,
Bangsi, að það er varla hægt að tala
við þig.
Bangsi: — Heimskur? Er vont að
vera heimskur?
J-,óa: — Já, það er voðalega leiðinlegt
að vera heimskur. Heimsk börn læra
ekkert í skólanum.
Bangsi: — Ég vil ekki fara í skóla.
Lóa: — Hvers vegna ekki?
Bangsi: — Af því bara. Af því að ég
er heimskur.
Lóa: — Jæja. Góða nótt, Bangsi
minn.
Bangsi: — Góða nótt.
124 VORIÐ