Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 36
„Beljandinn beljar hótt."
Við hylinn fengum við okkur snarl.
Gosdrykkir og kex var þar aðaluppistað-
an. En það var sama sagan, lítið var
liægt að stoppa vegna hins svala norð-
ankalda og þar af leiðandi varð minna
úr söng en skyldi.
Síðasti viðkomustaður var svo við
Beljandann, sem er um einn og hálfan
km innan við Gljúfrahyl.
Beljandinn er ekki hár foss, en hann
er einkar fallegur og minnir örlítið á
Goðafoss, þó vatnsmagnið sé mikið
minna í þeim fyrrnefnda. Undir fossin-
um er djúpur hylur og þar hafa oft
reiðzt dágóðir laxar.
Á sléttum bala sunnan við fossinn
var lagið tekið og sungið „Vorvindar
glaðir,“ „Sólin gyllir grund og mó“ o.
fl. Síðast var svo sungin ein vísa, sem
tileinkuð var þessu ferðalagi. Til gain-
ans )æt ég hana fylgja, en hún var sung-
in undir laginu „Frjálst er í fjallasal.“
Beljandinn beljar hátt
bergið við svart og grátt,
hringiður hylnum í streyma.
Við syngjum þér lítið ljóð
lúin og ferðamóð,
Við munum þig daglega dreyma.
Eftir nokkra viðdvöl við fossinn var
snúið heim á leið og gekk heimförin vel.
Til uppfyllingar í þessa frásögn fylgja
hér nokkrar myndir úr ferðalaginu.
Guðjón Sveinsson.
t >
f Síðhærðnr „táningur" kom eitt sinn V
f inn á hárskerastofu og settist í einn n
f stólinn og beið þar. I hvert sinn, sem A
f röðin kom að honum að fá klippingu, (I
\ færði hann sig til, yfir í næsta stól. r
A Þegar þetta hafði gengið svo í marga <
# klukkutíma, sagði hárskerinn við hann:
f „Jæja, ungi maður. Ættum við ekki
f að fara að Ijúka þessu?“ p
\ Hinn vongóði ungi maður svaraði: f
1 „Eg ætla alls ekki að láta klippa mig. f
|l Ég er bara að fela mig fyrir pabba. En f
f þetta er staður, þar sem honum dettur \
sízt í hug að leita að mér.“ i
Pétur litli hafði lært kurteisi og með- A
al annars það, að standa upp fyrir i
p gömlu fólki í strætisvagni. Dag nokkurn I1
p þegar hann fór með vagninum og sat I
|l á hnjám föður síns, kont inn í vagn- f
(• inn gömul og mjög feit kona. Þá spratt \
I Pétur upp, hneigði sig og sagði: A
* „Gjörið svo vel að setjast í sætið J
mitt.“ f
130 VORIÐ