Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1920, Side 6

Bjarmi - 01.12.1920, Side 6
182 B J A R M I gleði æskuvorsins á annan hátt. Blessuð jólin! Þau vekja gleði og færa jafnan frið á jörð. Kirkjuklukkurnar voru búnar að kalla fólkið saman og minna það á englasönginn forðum. En í heima- húsum leituðust menn við að gjöra sjer daga mun eftir föngum. Heima hjá prestinum var hljótt og kyrt. Hann var nýkominn heim frá kirkjunni og sat nú við skrifborðið sitt með jóladagsræðuna fyrir framan sig. Hann var all þreytulegur í bragði, enda hafði hann mörgu að sinna þessa dagana. Hugur hans dvaldi hjá þeim mörgu, sem leituðu ásjár hans og aðstoðar. Síst máttu þeir gleymast um jólin, það voru lítil- magnarnir, olnbogabörnin, sem ham- ingjan hafði snúið bakinu við, eða sem fingraför syndarinnar höfðu sett innsigli sitt á. Hann bar þá fyrir brjósti og varði bæði tíma og kröftum þeim til hjálpar. Heimili hans var fáment, þau bjuggu saman systkinin, hann og systir hans, lílið eitt yngri en hann sjálfur. Hún kom nú inn í dyrnar á skrifstofu hans og sagði honum að kaffið væri tilbúið. »það er ágætt, Björg mín,« mælti hann, og láttu svo eitlhvað af jólasælgæti í vasana á yíirhöfninni minni. Jeg þarf að skreppa uppeftir sem snöggvast. »Þú verður þá víst ekki mikið heima í kvöld fremur venju?« sagði systir hans um leið og hún lielti kal'fi í bollann hjá honum. »Þú átt eiginlega engin jól, Gunnar, og aldrei neina friðar- stund. Þú gætir svo sem losað þig við þessa ferð í fangelsið, hann Jónas fer óðara með sælgætið handa föng- unum, ef þú vilt«. Ekki vil jeg það. Mjer ber að vinna á meðan dagur er. Ekki síst á jólun- um. Ef til vill gefast þá betri tækifæri en ella til þess að ná tökum á því sem enn er óspilt í mannssálunni. Það er annað en gaman að vera fangi á jólunum, Björg mín,« »Víst er það voðalegt,« svaraði Björg. »En það er margt voðalegt í heiminum núna, og ekki getur þú bætt úr böli allra hvort sem er.« »Því fer ver og miður.« svaraði síra Gunnar hægt. »Mjer svíður það meir en frá verði sagt hvað jeg er ónýtur, og hins vegar öll þessi synd. Lögmál Drottins fótum troðið, og náð hans fyrirlitin; og þó stynja aumingja mennirnir undir ofuiþunga sektar sinnar. Jeg hefi verið að hugsa um vesalings pilt í dag. Hann þekkir hjer enga aðra en óþokka, sem hafa hann á valdi sínu, láta hann stela en koma svo hvergi nærri sjállir. Sökin skellur öll á honum og nú er hann kominn í tangelsi«. »Er það pilturinn, sem kom hingað í haust? þú sagðir mjer frá honum þá« »Já, Mjer fanst strax aö jeg eiga alveg sjerstakt erindi við hann«. »það finnst þjer nú víst æfinlega«, sagði Björg og leit brosandi til bróður sins. »Jeg vildi óska þess«, svaraði hann Jeg vildi rjetta sem allra flestum holla bróður hetidi. En stundum er jeg þreyttur og stundum kjarklítill, og þá finst mjer jeg eiga svo undurlítið erindi til þeirra sem bera þyngstu byrðarnar. Og oft blöskrar mjer hvað vald myrkursins er sorglega mikið; þá hættir mjer líka við að láta deig- an síga. En það er alls ekki rjett gjört. Slríðsmaður Drottins verður að vera hugprúður. Og þrátt fyrir öll vonbrigði í starfi mínu veit jeg af reynslu, að Jesús Kristur bregst aldrei«. »En heyrðu Gunnar«, sagði Björg eftir litla þögn. »Varstu ekki búinn að bjóða hingað gömlu hjónunum

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.