Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1920, Page 8

Bjarmi - 01.12.1920, Page 8
184 BJARMI nauðsynlegasta: — Sjá það Guðs lamb, sem burt ber heimsins synd. Nú eru jólin komin. Þau eiga að minna okkur á þessi orð, — þvi í dag er yður frelsari fæddur. Sjálfsagt hafið þjer nú einhvern tíma hlakkað til jólanna, við gjörum það öll, eink- um þó á meðan við erum börn«. »Ójá, jeg gjörði það á vissan hátt«, svaraði fanginn, »mestmegnis af þvi þá átti jeg von á ögn skárri mat, og það kom þó fyrir að jeg fengi nýja spjör á jólunum, annars var jeg ekk- ert að brjóta heilann um þýðingu jólanna. Mjer var heldur lítið sagt um þau efni«. »Hver ól yður upp?« »Sveitin gaf með mjer á fátækl og ljelegt heimili«. »En foreldrar yðar?« »Foreldrar minir!« Pilturinn leit forviða á prestinn. »Haldið þjer að jeg hafi átt foreldra?« »Já, það held jeg«, svaraði síra Gunnar brosandi. »Jæja þá! Foreldra, sem íleygðu mjer út á kaldan klakann og fengu mjer að arfi illar hvatir og tilhneig- ingar. Foreldra, sem jeg hefi aldrei sjeð og sem jeg hata!« Presturinn klappaði á öxlina á honum. »Veslings barn!« sagði hann með viðkvæmni. »Ef jeg hefði kynst yður eða ein- hverjum yðar l(ka«, hjelt pilturinn áfram, »þá hefði jeg eflaust elskað yður og treyst, álika og jeg hataði og tortrygði ílesta aðra. Og hvað átti jeg að gera? Enginn vjek góðu að mjer, svo jeg muni til. — Jeg var auðvitað ódæll, og gerði oft vísvit- andi það sem rangt var, helst ef jeg gat strítt einhverjum með því. Þó jeg væri nú svona skapi farinn, gæti jeg best trúað þvi að jeg hefði látið að orðum þess manns, sem hefði sýnt mjer einhverja rækt, já, jeg er alveg viss um það, en því var ekki til að dreifa. Fólkið áleit það víst skyldu sína að sparka í mig, eins og í hundana, þegar þeir gerast of nær- göngulir. — — Og jólin, — þjer nefnduð þau áðan. Pau eru auðvitað ágæt fyrir góða fólkið, en tæplega trúi jeg þvi, að þau komi til min, — þjófsins í varðhaldinu!« Hann hló stutt og kalt. »Eða finst yður svo jólalegt hjerna?« »Jeg vildi feginn mega flytja jól til yðar«, svaraði presturinn, »eða öllu heldur boðskap jólanna, fagnaðarer- indið um hann, sem kom í heiminn til þess að frelsa synduga menn. Hann á vissulega erindi við yður, drengur minn. Pjer eruð illa staddur sem stendur, en ekki efast jeg um það að hönd Drottins nær lil yðar, einnig hingað í einveru fangelsisins, og sú hönd er máttug, hún getur kipt öllu í lag og gert yður að góð- um dreng, eins og yður var ætlað að verða«. »Var mjer ætlað að verða það?« spurði pilturinn kaldranalega. »Pað skil jeg læplega, ef trúa skal þvi sem sagt hefir verið. Nei, mjer var annað ællað. Jeg átti helst að verða að engu, hverfa þegjandi og bljóðalaust, — deyja eins og hræ úti á víða- vangi, — eða þá verða það sem jeg er — glæpamaður«. Prestinn setti hljóðan. »Mjer er svo sem sama þó jeg segi yður það greinilega«, hjelt fanginn áfram. »Pjer eruð hvort sem er eini maðurinn í heiminum, sem virðist hafa löngun til að bjálpa mjer. Mjer verður svo sem ekki viðhjálpað úr þessu, en söm er yðar gerðin. Jæja þá, sagan segir að jeg sje útburður, hvorki meira nje minna! Pað fór vitanlega dult, þó er mjer enn í barnsminni pískrið í fólkinu um þetta. Frh. n 189. bls.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.