Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1920, Síða 15

Bjarmi - 01.12.1920, Síða 15
BJARMI 191 augum uppi, hve varúðarvert er yfir- leitt að leita sambauds við anda framliðinna. Spírtisminn hefir ekkert það lil brunns að bera, er geti gert oss hinn ósýnilega heim dýrmætari en hann er oss opinberaður í fagnaðarboð- skap Jesú Krists, eða sálu vorri meira aðlaðandi en hann birtist þar. Aftur er ýmislegt í spíritismanum, sem í hvorutveggja þessu tilliti hefir alveg gagnstæð áhrif. Kirkjan liefir enn í dag óþrotlegum nægtalindum yfir að ráða bæði huggunar og vissu um framhald lífsins fyrir handan gröf og dauða. Því ættu kennimenn kirkjunnar að láta sjer vera innilega ant um að ausa úr þeim lindum og flytja harmandi og mæddum mönn- um þá huggun, sem kristnir menn eiga heimtingu á og er erfðahluti þeirra. Að síðustu er svo til orða tekið: Við það skal kannast, að hjer verða á vegi vorum ný fyrirbrigði og þau býsna erfið viðfangs. En hinar vís- indalegu rannsóknir á þeim efnum hafa enn ekki komist að neinni ábyggilegri niðurstöðu. Og í fylsla samræmi við bestu og mestu sálar- fræðinga vorra tíma, leggjum vjer ríkt á við þjóð vora, að setja ekki traust sitt til kenninga, sem síðar lcann að verða hrundið, en þó um fram alt að varast öil rýnilaus og misvitur mök við hin sálarlegu öfl eða að gefa sig á vald tilraunafundum, sjá- endum og miðlum, sein nú er orðið svo títt. — — Hjer er þá spiritismanum skýlaust á bug vísað sem jafn hættulegum fyrir rjett guðssamband vort og heil- brigt sálarlíf. X. r? • =~ 1 ......................^ Hvaðanæfa. Heima, Bjarmi stækkar. Æðimörg hinna blaðanna draga saman seglin af skiljan- legum ásfæðum, en í stað þess að fara eins að, fjölgar tölublöðum Bjarma næsta ár um 12‘/a°/o, eða verða 27 i stað 24 áður. Orsökin er sú, að nokkrir góðborgarar þessa bæjar ælla að kosta sjálfir 3 tölu- blöð, til að koma til allra lesenda blaðs- ins stórri trúmálaritgerð, sem blaðinu mundi verða ofvaxið að flytja að öðrum kosti. Kaupendur blaðsins fá því að for- fallalausu 4—5 tölublöð í næsta mánuði, í stað 2 áður. Útg. Bjarma er verulegt ánægjuefni að verða svo áþreifanlega var við vaxandi áhuga þeirra, er unna stefnu blaðsins, og þykist þess fullviss, að margir vinir blaðs- ins fjær og nær muni nota tækifærið til að Ijölga kaupendum þess. Þegar þess er gætt, að nýir kaupendur geta, auk alls þessa, fengið ókeypis 5 síðustu tölublöð þessa árgangs, þá er auðsætt, að þeir geta ekki í neinum íslenskum tímarita eða bókakaupum fengið jafnmikið fyrir 5 kr. eins og þeir fá með því að kaupa Bjarma. Nýja bók í sama broti og Bjarmi og 256 bis. að stærð mundu fáir selja nú fyrir minna en 15—20 krónur. En nýir kaup- endur Bjarma greiða aðeins fimm krónur fyrir samtals 32 tölublöð. Titilblað og efnisyfirlit þessa árgangs verður með janúarblöðunuin. Danska kirkjan og spíritisminn. Um það efni flutti Einar H. Kvaran rit- höfundur erindi nýlega í asálarrannsókna- fjelaginu« i Rvík. Morgunblaðið gat utn er- indið og skýrði þar meðal annars frá, að hr. E. H. K. þætti danska kirkjan ærið þröngsýn í garð spíritismans.- Dr. Skat HofTmeyer svaraði í Morgun- blaðinu (23. f. m.) og segir það rjett, að »danska kirkjan sje lítt lilynt spíritisman- um«, og bætir svo við: »En til þéssa eru tvær ástæður. Sören Kirkegaard hefir kent oss dönskum guð- fræðingum, svo að vjer ekki getum gleymt því aftur, að trú og vísindi er tvent ólíkt og að það sje móðgun við trúna eftir öilu eðli hennar að ætla sjer að sanua inni-

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.