Bjarmi - 01.03.1922, Qupperneq 1
BJARMI
E KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XVI. árg.
Reykjavík, I.—15. raars 1922.
5.-6. tbl.
Kemi peim ntiga pann vcg, sem hami d að ganga.
Til sunnudagaskólayina
á islandi.l)
Eins og yður mun kunnugt hefir
enginn norrænn sunnudagaskólafund-
ur verið kaldinn síðan fyrir ófriðinn
mikla. G. norræni sunnudagaskóla-
fundurinn var kaldinn í Kaupmanna-
höfn 1901, sá 7. í Stokkhólmi 1904,
8. í Khöfn 1910, tilætlunin var að sá
9. væri í Kristianiu, en þá kom
ófriðurinn og hindraði slíka fundi.
Nú er aftur vaknaður áhugi á
slíkum fundarhöldum. Aðalfjelögin
tvö í Norvegi, sem vinna að sunnu-
dagaskólaslarfi, »Norsk Söndagsskole-
forbund«, fulltrúi sunnudagaskóla
innan þjóðkirkju vorrar, og »Norsk
Söndagsskoleunion«, fulltrúi sunuu-
dagaskóla allra utanþjóðkirkjumanna,
1) Brjef þetla, dags. 25. 1,— þ. á., cr
nýkomið til ritstjóra Bjarma og cr rjelt-
ast að birla það svo að allir sunnudaga-
skólavinir gcti sjeð það. Yæntanlega vcrða
gerðar ráðstafanir til að einhverjir full-
trúar frá íslandi sæki fundinn, einkum
ættu prestar og aðrir kristindómsvinir,
sem vilja koma upp sunnudagsskóla en
brestur áræði, mikið erindi á fundinn.
Norsku skipin veita scnnilega talsverða
ivilnun um fargjald, þau eru vön því,
begar kristilegir fundir eru annarsvegar,
~~ en það þarf að sækja um það með
löngum fyrirvafa og um hendur aðal-
ucfndarinnar. — Jeg var á fundinum í
Khöfn árið 1901 og þótti liann góður.
Ritstj.
hafa selt undirbúningsnefnd og hún
orðið sammála um að bjóða sunnu-
dagaskólavinum í Danmörku, Sviþjóð,
Finnlandi og íslandi til norræns
sunnudagaskólafundar í Ivristianiu,
dagana 10.—13. ágúst koinandi sumar.
Vjer leyfum oss jafnframt að spyrja:
1. Hvort fjelagsskapur yðar sje fús
til að taka þátt í slíkum fundi,
verði honum komið við?
2. Hvort þjer liafið nokkuð sjerstakt
að athuga við þennan tíma. Oss
yrði erfitt að liafa fundinn aðra
daga.
3. Hvort fjelag yðar ásamt öðrum
svipuðum sunnudagaskólafjelögum
sje fúst til að mynda þjóðarnefnd,
sem bjóði sunnudagaskólavinum í
landi yðar að taka þátt í fundin-
um og geri allar nauðsynlegar
ráðstafanir vegna hluttöku íslands
í fundinum?
Boð þetta nær jafnt til sunnudaga-
skóla kristinna sjerlrúarfiokka, sem
þjóðkirkjuskólanna, eins og þjer
munuð skilja.
í þeirri von að þjer sjeuð oss sam*
mála um að norrænn sunnudaga-
skólaíundur verði öllu sunnudaga-
skólastarfinu tii mikils gagns, treyst-
um vjer yður til að íhuga þetta mál
og láta oss vita skoðun yðar á því
svo fijótt sem unt ér.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar 9.
sunnudagaskólafundarins.
Með bróðurkveðju
J. C. Larsen.