Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1922, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.03.1922, Blaðsíða 4
36 B JARMI frá Hankow, biskupi i ensku kirkj- unni og formanninum í Cbina Con- tinualion Committee. Áður en Hickson byrjaði að fást við sjúklinganá, hélt hann ræðu, þar sem hann meðal annars tók skýrt fram, að það sé villa að halda, að sérstök sjúkdóms- tilfelli séu send af guði sem ándleg hjálp. Hvernig myndi Jesús, ef svo væri, hyklaust hafa Iæknað sjúka menn, sem leituðu hans? Og hvernig gætim vér kristnir menn farið til læknis, ef vér héldum að veikindin séu andleg bjálp fyrir oss? Nei, sjúk- dómur er líkamlegt böl, eins og synd- in er sálarlegt böl. Ef guð sendir oss þessa hluli sem einhver andleg gæði, þá hlýtur öll læknislistin og heilsu- fræðin og alt, er miðar til að standa á móti sjúkdómum, að vera gagn- stætt vilja guðs? Kom það nokkru sinni fyrir, að Jesús gengi inn í sjúklings-herbergi og segði einungis: »Þetta er guðsvilji« og færi svo í burtu? Nei, hann læknaði inn sjúka. Eftir ræðuna vóru inir sjúku svo hvattir til að koma einir eftir aðra upp að altarisgrindunum og krjúpa þar niður. Öll samkoman var niður- sokkin í kyrláta bæn og á organið var leikið lágt, en á meðan gekk Hickson frá einum til annars og bað fyrir hverjum fyrir sig, um leið og hann lagði hendur yfir þá. Á eftir honum kom svo biskupinn eða prest- ur og lýsti blessuninni yfir, einnig með handaálagningu á hvern og einn. AUan tímann ríkti mesta ró og kyrrð; það heyrðust aðeins inár lágmæltu raddir þeirra tveggja, sem við altarið báðu fyrir og blessuðu yfir ina sjúku, en á meðan vóru alkunn sálmalög leikin á organið. Eg hygg að þenna dag hafi sjúklingarnir verið um 200. Þegar allir sjúklingarnir höfðu gefið sig fram, var það auglýst, að þeir skyldi koma innar að altari, er ósk- uðu að fá andlega blessun. Og það vóru víst fáir sem eigi notuðu sér þetta tækifæri, svo mjög vóru menn hrifnir af því, er þeir höfðu heyrt og séð og þeim anda Jesú Krists, er hvíldi þarna yfir öllu. Samkoman fyrir sjúka Kínverja, tveimur dögum síðar, fór fram á sama hátt og gekk kyrrlátlega og unaðslega sem in fyrri. Síðasta fund sinn bér efra hélt Hickson á mánudagskveld og skýrði þá frá hvernig starfi þessu skyldi haldið áfram eftir að hann væri far- inn burt. Sérstaklega mælti hann með því, að stofna bænarflokka þar sem einkum væri gerð fyrirbæn fyrir sjúkl- ingum er bæði um það. Hér tók hann það fram, að eigi einungis kirkjan hefði fengið náðargáfu lækninganna í arf frá meistara vorum, heldur hefðu margir einslakir menn fengið hana. Það sem oftast veldur þarna hindrun er einungis skortur á trú. Margir vilja fyrst sjá tákn og trúa síðan. En táknin koma eigi á undan, held- ur eru afleiðing trúarinnar. Og þeir sem leita heilsubótar verða líka að koma í trú. Það verður og að vera öllum ljóst, að læknunin er umfram alt andleg, hún verður að byrja með hreinsun sálarinnar. Nú mun verða spurt: »Hver er svo árangurinn af þessu? Er árangurinn nokkur?« Herra Hickson spyr aldrei um það. En auðvitað fær hann oftlega að heyra um árangur- inn án þess að spyrja um hann. Hann fer að eins leiðar sinnar áfram í þeirri föstu trú, að hann sé að gera það sem drollinn hans hefir sett hann til, og einkum vekur hann athygli á því, að hann búist alls eigi við lækn- ingu jafnan samstundis, heldur þurfi að halda áfram með bæn í trú. Lofið mér að siðustu að nefna nokkur einstök dæmi, sem greinilega sýna árangur og eru fylsti vitnisburð-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.