Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1922, Side 15

Bjarmi - 01.03.1922, Side 15
BJARMI 47 mannsálir væru orönar þessum kenning- um að bráð, ef Bjarmi hefði ckki verið til. Siðan jeg var 12 ára, hef jeg lesið »Bjarma«, og mjer getur aldrei þótt vænna um neitt hlað; það hafði svo margt að bjóða, sem Ieitandi barnssál þurfti að vita. Jeg segi það tvimælalaust að »Bjarmi« hefur orðið mjer til meiri J)lcssunar, en nokkurt annað blað. H. Ö. H. L j ó s i ð m e s t a. Ljósanna Ijósið er Kristur, sem lýsir oss jarðar í dölum; því lífsveginn lagði hann fj'rstur, er liggur að himinsins sölum. í sannleikans Ijós oss hann leiddi er lýðunum frelsið hann kej'pti. Syndanna sviða hann eyddi og Satan úr völdum hann steypti. Hver viska hún verður að heimsku, sem vill ekki sannlcikann skilja. En Frelsarinn grefst ei í gleymsku, þótt guðdóm hans reynt sje að hylja. Ei blind sál sjer guðdómssól bjarta, nje birtu og yl hennar finnur. Ei Guðs son sjer hrokafult h’jarta, ei hrokinn í Kristsanda vinnur. Ó munið það mannlegu hjörlu! Hann mannkyns er frelsarinn sanni. Á velferðaryegina björtu hann vísar þeim iðrandi manni. Ef liggjandi í lastanna dróma þjer ljósvana birtuna þráið, þá horfið í himinsins Ijóma! () horlið uns h’relsarann sjáið! Pá Ijósið Guðs lifandi dýrðar mun ljóma í iðrandi hjarta; þess einkunnir ei verða skýrðar — það útrýmir myrkrinu svarla. Ögn. Vitnisburður ekkju. — »Sú sorg, er jeg varð fyrir í vetur, að missa mann- inn minn, er mjer óbætanleg; liann var svo ástríkur og góður. Oft vorum við búin að óska þess að mega verða sam- ferða til Guðs. f*á fansl mjer jeg ekki gæti hugsað til þess, að hann dæi á und- an mjer. Begar hann lá banaleguna og jeg sá hve hann þjáðist, bað jeg Guð að veita honum hvíld á hvern liátt, sem honum þóknaðist, Nú lifi jeg í þeirri von að fá aftur innan lítils tíma að vera sam- vistum við iiann. Á Guð treysti jeg og þarf því engu að kviða. Við höfum ekki alhylst þessar nýju stefnur í trúarefnum. Jeg trúi því sem jeg í æsku numdi og sem jeg síðan hefi lesið í Biblíunni. Jeg er ykkur hjónunum innilega þakk- lát fyrir það, sem þið ritið í Bjarma og bið Guð af öllu hjarta að blessa starf ykkar. Jeg kaupi Bjarma svo lengi, sem jeg lifi«. Bænarvers. Guð minn i auðmýkt jeg þig bið! Líkna mjer lifs á braut og lát mig.sigra í þraut. Starfið mitt blessa og .börnin smá, ljúfasti Jcsú lát, þau ljóst hafa á þjer gát. Blessaði Jesú blíði minn, æ gef mjer ávöxt sjá, af mínu starfi þá. Fylgi þjer Jesú lífs um leið, börnin i bæn og trú, bren mín er einlæg sú. Leið mig og börnin lifs um stig, og loks er æfin þver, I eilífa dýrð með þjer. G. ./. (kennari). K o n a í N. - í s a f j. s ý s 1 u skrifar *•■/1. þ. á. »Pað er ósk mín að fá blaðið fram- vegis, vona jeg að mjer leggist eitthvað til með að borga það. »Bjarrai« er mjer svo kær að jeg hlakka eins og barn til vænlanlegrar komu hansw. H u g g u n. Altaf lýsir einhver sljarna, ef til himins litum vjer, voldugur faðir veikra barna, jeg veit þú aldrei gleymir mjer. Breið yfir mig blessun þína, brot min synda kvittaðu öll, eilíft ljós mjer láttu skína, í lifs og friðar sælu höll.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.