Bjarmi - 01.08.1927, Side 8
164
B J A R M I
G a n d h i, frelsishetja Indverja.
(Grein um hann birtist í næsta blaði).
Var þá dagskrá fundarins lokið.
Að fundarlokum flutti biskup bæn
og var siðan sungið versið: Son guðs
ertu með sanni.
Var þá prestastefnunni slitið.
Kl. 9 um kveldið komu sýnodus-
menn saman á heimili biskups til
kaffidrykkju. —
Fundarbók prestastefnunnar.
Frá prestastefnunni. Biskup
óskaði að blöðin flyttu ekkert ágrip af
störfum sýnódusar annað en það, sem
biskups-skrifstofan gendir peim eftir fund-
arbókinni, og pvi verður hjer í blaðinu
ekkert greint frá pvi, sem einstakir fund-
armenn lögðu til fundarmála.
Síðasti hluti fundargerðarinnar er tals-
vert óglöggur. Sra Bjarni dómkirkjuprest-
ur flutti enga »tillögu«, heldur skýrði frá
áskorun þeirri, sem sampykt var á aðal-
fundi safnaðar hans, — sbr. Bjarma p. á.
140. bls., — og sra Árni prófastur í Görð-
um skýrði frá, að sama hefði verið sam-
þykt á safnaðarfundi i Hafnarflrði, og flutti
svo tillögu pá, er samþykt var, í samráði
við ýmsa viðstadda presta. Pannig er rjett
skýrt frá þessu, eins og allir fundarmenn
munu kannast við.
Annars var alt of lítil tími ællaður til
að ræða þessi mál i sýnódus, og hefði
enginn orðið, ef ritstj. þessa blaðs hefði
ekki slept að flytja erindi um kristindóms-
horfur á Indlandi, sem sett var á dagskrá
siðasta daginn.
Ofsóknir og trúarvakning
í Kína.
Eftir George T. B. Davis,
fulltrúa alþjóðasambands »Vasatesta-
mentisfjelaganna«.
í Iíanchow.
Yfir mikinn hluta Kina ganga nú
hinar svæsnustu æsingar gegn krist-
inni trú, og víða hefir þetta leitt
til ofsókna gegn kristnum mönnum.
Aðferð æsingamannanna er kænlegri
þó ekki sé hún jafn grimdarleg og
þá er Boxarauppreistin varð í Kína
árið 1900.
Þjáningar kristinna manna minna
greinilega á ofsóknirnar á fyrstu dög-
um kristinnar trúar. Kristnu fólki
hefir verið varpað í fangelsi, það hefir
verið hætt, sumir hafa verið barðir,
aðrir dæmdir i fjesektir og smánaðir.
Sumstaðar hefir kirkjum verið lokað,
aðrar hafa verið rifnar niður. Biblí-
um og sálmabókum hefir verið varp-
að á bál.
Vera kann, að kristnu fólki hafi sum-
staðar fækkað, en víst er að annarsstað-
ar hefir ofsóknin snúist upp í dýrlegan
sigur' sökum hugrekkis og trúarfestu
kristinna manna. Þannig var það, að
í bæ nokkrum, þar sem tveir safnað-
armeðlimir höfðu gengið úr söfnuð-
inum sökum ofsókna, jókst söfnuð-
urinn um helming á sama tíma. í
öðrum bæ tóku 2000 manns sinna-
skiftum meðan ofsóknin stóð sem
hæðst. Sigur trúarinnar í Kanchow í
Kiangsi-hjeraði svipar til frásagnar-
innar í Postulasögunni. Þrátt fyrir
ofsóknirnar hefir trúarvakning átt
sjer þar stað í rúmt ár. Dr. C. E.
Housfield frá Sun Wu í Kiangsi hefir
sagt mjer frá vakningunni í Kanchow,