Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.1932, Page 1

Bjarmi - 01.11.1932, Page 1
XXVI. árg. Nóvember og desember 1932. 21.—24. tbl. Á jóladag. Jólin eru komin. Öþrjótandi g-leðiupp- spretta ár eftir ár fyrir börnin, en .hvaö * flytja þau eldri kynslóð, sem hvergi sjer leiö út úr skammdegismyrkri erfiðleik- anna? »Þjer munuð finna reifað barn í jötu,« var forðum boðað. En barnið er horfið þaðan. Umhverfið er allt annað. Landar hans, sem áður var í jötu, nelgdu hann seinna á kross, en hann er þar ekki leng- ur. Hann er upprisinn og kominn til upp- hæða. Hefir hann þá alveg yfirgefið jörðina? Er »jólagleðin« nokkuð annað en fagur draumur, leikfang barna og ímyndun veik- geðja fólks? Svo spyrja ýmsir, sem and- streymið þjáir, meðlætið blindar eða kjark- leysi rekur í felur. Og úti æða herskarar myrkranna,; hæðast að öllu heilögu, of- sækja lærisveina Jesú og undirbúa al- menna sókn gegn ríki ljóssins. — Þá þarf meira en jólatrje og ljúfar end-. urminningar til að skapa .jólafögnuð. Það er allt svo breytt frá fyrri dögum. Drottinn sendi son sinn í fyllingu tím- ans til að frelsa mennina. Undirbúnings- tíminn var langur og mörgum erfiður Hann sendir hann í annað sinn til að Ijúka reikningum við mannkyniö, sem hirðir svo lítið um hann. - - Sa undirbún- ingstími stendur enn, - og er ef til vill bráðum á enda. Minsta kosti líða ekki margir áratugir þangað til kynslóðin, sem heldur jól eða vanrækir jól í dag, er horf- in af jörðu, og kölluð til reikningsskila. Kemur hún þá tómhent? Kemur þú tóm- hentur? Fjekstu aldrei jólagjöf, sem þú getur flutt með þjer í ósýnisheim? »Yðu,r er í dag frelsari fæddur,« boð- uðu englar fyrrum og- boða lærisveinar í dag. Er þjer það jólagjöf eða tóm orð? Svar þitt sker úr, bvort þú ert lærisveinn íi raun og veru. Jólin eru ekki fyrst og fremst gleðskap- ardagar með gjöfum og viðhöfn, sællífi og solli, - þar sem ekkert er annað þar er enginn kristindómur. Jólin, kristin jól, eru samverudagur smælingjans við fótskör hátignarinnar, syndarans við fætur frelsarans. Öhreinn kem jeg með engar málsbætur, bið líkri- ar, og fæ fyrirgefningu. Brott með ímynd- un og alla blinda trú á sjálfum þjer. — Kom og' reyndu sjálfur, hvort þú finnur nokkurt hjalpræði. Marga lærisveina hitt- ir þú á þeirri leið, sem segja þjer: »Hann hjálpaði mjer, hann frelsaði riiig og gaf mjer meira en jeg bað um.« Best er þó að vera einn með frelsar- anurn. Lokaðu dyrunum. Leitaðu í alvoru

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.