Bjarmi - 01.11.1932, Page 4
164
B J ARMI
en síðara kvöldið sagði sra Bjarni Jóns-
son frá ýmsum ferðaminningum frá för
þeirra prófastshjónanna suður til ítalíu
liðið sumar. Um 50 manns sóttu skilnað-
samsætið síðasta kvöldiá
Þannig var ytri umgjörð fundarins og
má af henni einni ráða að stórmál voru
rædd og ræðumenn úr ýmsum áttum.
Ánægjulegt væri, ef Bjarmi hefði get-
að flutt öll erindin og greinilegan útdrátt
úr umræðunum, en þess er engin kostur.
Erindi þeirra sra Bjarna, sra Ingimars
og Freysteins skólastjóra voru ekki skrif-
uð og ritstjóri náði ekki ágripi nema af
einu þeirra, sem hjer er birt í blaðinu.
En samt má bæta dálitlu við þetta ágrip.
Ólafur Björnson kaupm. á Akranesi
var kosinn fundarstjóri, til vara S. Á.
Gíslason, fundarritarar voru Sigurbjörn
Einarsson stúd. theol, Sig.hvatur Brynj-
ólfsson tollþjónn og Gunnar Jóhannesson
kand. theol.
Áður en dagskrá hófst mintust fundar-
menn sra Árna heitins Björnssonar, sem
jafnan hefir sint vel þessum fundum og
var í fyrra kosinn í undir.búningsnefnd
þeirra. Ennfremur las S. Á, G. ýms brjef
sóknarnefnda, sem sóknarnefnd dómk.
höfðu borist. Voru þar eindregin andmæli
gegn prestafækkunartillögu landlæknis.
Erindi undirritaðs um trúmálahorfur
verðu,r ekki rakið hjer, en á eftir því tóku
til máls:
Einar Ásgeirsson Akranesi, Jóhs. Sig-
urðsson Rvík, frú Guðrún Einarsdóttir
Hf., Steingrímur Benediktsson Vme.
Magnús Jónsson prófessor, Jón Ilelgason
prentsm.stj., Sigurður Pálsson stud. theol.,
Armann Eyjólfsson trúboði og Sigurðui
Guðmundsson ritstj.
Þótti sumum erindið of bjartsýnt og öðr-
um fjell það vel, en allir voru sammála
um að tækifærin til góðra framkvæmda
væru mörg og stór og áríðandi að nota
þau vel.
Eftir morgunbænir flutti Jóhs. Sig-
urðson erindið: »Á hafi og í höfn.« Kom
hann víða við og sagði mörg dæmi um
blessunarrík áhrif sjómannamissíónarinn-
ar. Hefir hann sjálfur starfað að því mál-
efni með óþreytandi á.huga bæði í Rvík
og á Siglufirði. — 1 haust sem leið flutt-
ist starfið í Rvík í ágætt húsnæði í Varð-
arhúsinu og er þar daglega húsfyllii- um
þessar mundir, annars verður erindið ekki
rakið nú, af því að Jóhs.. mun hafa í huga
að flytja það víðar. - - Umræðurnar sner-
ust allar á einn veg, að þetta starf þyrfti
að efla, og tillaga í þá átt var samþykt
í einu hljóði. Til máls tóku auk frummæl-
anda: S. Á. Gíslason,. Sigurður Halldórs-
son, Steingrímur Benediktsson, Jens Jens-
son, frú Guðrún Einarsdóttir,, Kr. Sveins-
son, Ásm. Gestsson, sra Jón Þorvarðar-
son. —
Erindi sra Ingimars um helg'idagamál-
ið var mjög íhugunarvert. Taldi hann að
þrenn fök styddu helgidagsboðorðið: trú-
arleg,, liagfræðileg- og menningarleg. Sjer-
stakur dagur væri nauðsynlegur til helgi-
Iialds og guðsþjónustu. Hagfræðilegar
rannsóknir sýndu, að starfsömum mönn-
um væri nauðsyn hvíldar m. k. 7. hvern
dag, og sú hvíld því raun rjettri beggja
gróði; verkamanns og vinnuveitanda. —
Hvíldardagurinn gæfi og vinnandi mönn-
um tækifæri til að vera með fjölskyldu
sinni og' auðga þekkingui sína. Svipur þjóð-
fjelagsins myndi breytast menningarlega,
ef helgidagshaldið væri afnumið. Lögg'jöf
væri nauðsynleg um þessi efni bæði til
heilla þeim máttarminni og allri þjóðinni.
Að ending'u. talaði hann um breytingar-
tillögur prestafundarins við helgidagalög-
g-jöf vora og flutti tillögu, sem samþykt
var.
Til máls tóku: Jóhs. Sigurðsson (2var),
f.rú Ingunn Einarsdóttir Rvík, S. Á. Gísla-
son, Gísli Sigurbjörnsson,- Einar Ásgeirs-
son, Sighvatur Brynjólfsson, frú Ragn-
hildur Pjetursdóttir Rvík, frú Guðrún
Einarsdóttir.