Bjarmi - 01.11.1932, Page 6
166
B J ARMI
menn. Rjettum þeim hlýja bróðurhönd.
Fundurinn samþykti þessar tillögur, all-
ar í einu hljóði, nema tvær:
1. Hinn almenni fundur presta- og-
sóknarnefnda, haldinn í Reykjavík 17.-—
19. okt. 1932, skorar á kennarastjett lands-
ins og prestastjett, að vinna að aukinni
samvinnu, sín á milli um kristindóms-
fræðslu,, t. d. með sameiginlegum funda-
höldum kennara og presta, þar sem þeim
verður við komið.
2. Enn fremur telur fundurinn æski-
legt, að prestar taki að sjer kristindóms-
fræðsluna í barnaskólum, þar sem hög-
um er svo háttað, að slíku mætti við koma,
og ekki er völ á kennurum, sem sjerstak-
an áhuga hafa á kristindómsfræðslu.
3. Fundurinn lýsir eindregnu fylgi
sínu við samþyktir síðasta aðalfundar
prestafjelagsins um nýja helgidagalöggjöf
og skorar á þing og stjórn að vinna að því,
að slík löggjöf komist á hið fyrsta.
4. En jafnframt skorar fundurinn á
alla góða borgara, að stuðla að því, að
þeim helgidagalögum sje hlýtt, sem vjer
höfum nú, og að sannur helgidagafriður
geti eflst með þjóð vorri.
5. Fundurinn beinir þeirri ósk til
kirkjuráðsins, að það sendi öllum prest-
um landsins áskorun þess efnis,, að þeir
haldi sjómannaguðsþjónustur ár hvert og
gefi söfnuðum sínum kost á, að leggja
fram fje til kristilegs starfs meðal sjó-
manna.
• 6. Fundurinn tjáir sig samþykkan
áskorun -þeirri um baráttu gegn áfengis-
smygli og launsölu, er birt var í blöðun-
um í sumar sem leið.
Níu manna nefnd var kosin til að und-
irbúa næsta fund að .hausti.
Fundinn sóttu allir þjónandi prestar
Kjalarness pófastsdæmis, nema tveir (H.
H. Mosfelli og H. J. á Reynivöllum), og
ennfremur: sr. öskar Þorláksson á Prests-
bakka, sr. öfeigur prófastur Vigfússon,
sr. Guðmundur Einarsson á Mosfelli, sr.
Jón Thorai-ensen, Hruna, sr. Valgeir
Iielgason, Skarði, sr. Ólafur ölafsson á
Kvennabrekku, sr. Magnús Guðmunds-
son í Ölafsvík og sr. Jón Þorvarðarson á
Akranesi, eða alls 13 þjónandi þjóðkirkju-
prestar og tveir fríkirkjuprestar. Þá komu
og fjórir uppg'jafaprestar, 2 guðfræðis-
kennarar háskólans (Á. G. og M. J.), þó
nokkurir guðfræðiskandidatar og stúdent-
ar, nál. 50 íulltrúar safnaða og kristilegra
fjelaga, tíu kennarar og marg't áheyrenda.
------------
Bænavikan 1933.
SUNNUD. 1. JAN.
Ræðutextar: Op. 22, 13.; 21, 5.; Hagg.
2, 19.; Jes. 42, 10.
MANUD. 2. JAN.
Þakkargjörð og játnjng.
Lofum Guð föður fyrir ósegjanlega
miskunn, Guðs son fyrir óskiljanlegan
kærleika, Guðs heilaga anda fyrir ótrúlegt
umburðarlyndi við þverbrotna menn og'
nærgætni við lærisveina. Lofum þríeinan
Guð fyrir himinháa náð, þrotlaust hjálp-
ræði og eilífðar-dýrð.
Vjer könnumst vió vanrækslu vora
gagnvart ótæmandi uppsprettum,, upprisu-
kraft hans höfum vjer lítt höndlað, fyll-
ing andans farið fram hjá oss og tregir
vorum vjer til að fá honum alla lykla
viljalífs vors.
Vjer biðjum þig, Guðs góði andi, tak
þjer bólfestu hjá oss, að syndin dvíni, orð
sannleikans lýsi oss, og kærleikur Drott-
ins gagntaki oss, að allt vort líf ummynd-
ist til hreinleika og dýrðar Drottins.
Jóel 2, 21—32.; Róm. 6„ 1—14.; Hebr.
13, 7—21.; I. Pjet. 1, 1—16.