Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1932, Síða 8

Bjarmi - 01.11.1932, Síða 8
168 BJARMI LAUGARD. 7. JAN. Heimatrúboð. Vjer þökkum, að fornt hatur Gyðinga gegnt kristinni kirkju, fer dvínandi, en virðing vex gagnvart Kristi, og víða sönn trú. Vjer þökkum og allan kærleika til starfs meðal þeirra, sem annars færust í eymd og synd. Vjer játum gamla og nýja hleypidóma gagnvart Israelsþjóð, vanrækslu vora í líknar- og björgunarstarfi, er vjer gætt- um þess ekki, sem skyldi, að fagnaðar- erindið er aðalbót gegn allri eymd. Vjer biðjum, að söfnuðir Guðs skírist heilögum anda og viðreisnarstarf meðal ógæfubarna eflist krafti hæða. Á Bjarmi að hætta. Nú er svo komið fjárhag Bjarma aó (>víst er, hvort hann kemur út næsta ár. Það er ekki beinlínis ánægjulegt að flytja þær frjettir hundruðum trúfastra vina hans fjær og nær, sem alt af hafa sýnt. honum full skil og margbreytta vin- áttu áratugum saman, og oft tjáð mjer að þeir hlökkuðu til þess, er pósturinn kæmi með Bjarma. En því miður eru þeir ekki nógu margir, og hefir fækkað til muna nú í fjárhagsvandræðunum, og efna- hagur ritstjórans leyfir það ekki að hann leggi blaðinu mörg hundruð krónur árlega áfram au,k allrar vinnu við blaðið. Ilins vegar á blaðið mikið fje í ógreidd- um ársgjöldum, og' þó enn vissari tekjur í vináttu fjölda manna, sem munu telja skarð fyrir skildi, ef Bjarmi hættir alveg. Satt að seg'ja á jeg bágt með að trúa því, að þetta sje síðasta tölublað Bjarma, enda þótt nokkurt hlje verði á, útkomu hans eftir nýárið. tJr fjárhagsvand- ræð.um getur ræst á ýmsan hátt: Áhugasamt fólk getur gert samtök um að kaupa svo eða svo mörg' eintök handa þeim, sem vilja fegnir fá blaðið, en geta ekki borgað það. Ritstjórinn veit uan mörg slík heimili. Kristileg fjelög gætu keypt nokkur eintök handa efnaminstu meðlimum sínum. Ef t. d. 25 menn keyptu sín 5 eintökin hver og 4 eða 5 kristileg fjelög keyptu, 8 eða 10 eintök hvert og' borguðu fýrirfram, þá gæti blaðið hald- ið áfrarn. Á barnsaldri (4 eða 5 ára) varð Bjarmi svo fátækur að nærri lá að hann hætti, en þá gengust prestshjón yfir í Winnipeg fyrir því að ýmsir góðir landar vestra hjálpuðu blaðinu út úr erfiðleikun- um. Nú er aðstaðan önnur þar. Eng- inn sra Jón eða frú Lára Bjarnason eru þar til forgöngu, og flestir íslenskir land- námsmenn látnir. — Þó eru þar bæði leik- menn og prestar, sem mundu, fúsir til að líkjast þeim Bjarnasonarhjónum í þessum efnum, ef kreppan væri ekki jafn harð- hent þar vestra og hún er. — Og þó gæti jeg trúað nokkrum Bjarmavir.um vestra til að sþyrja kirkjuleg kvenfjelög að því, hvort þau vilji ekki panta nokkur eintök til að gefa íslénskum heimilum í dreifingu, er aldrei mundu ella fá kristi- legt blað frá Fróni. Fyrir 10 dollara sendi jeg fús 10 eintök eins og gengið er nú. Sém sagt jeg býst varla við að Bjarmi komi út fyrstu mánuöi næsta árs„ nema vinir hans í lieykjavík og nágrenni verði þá því handfljótari. En þegar vorið nálg- ast, ætti það að koma í ljós, hvað g'jöra má. Jeg bið engan um neinar gjafir og allra síst að þeir taki á sínar herðar þá fjárhag'sáhættu, sem fylgir þessari blaða- útgáfu nú, en bendi aðeins á þessi ráð; þeim fylgir ekki þungur skattur fyrir þá sem eitthvað eiga. En á þenna veg má fjölg-a lesendum og- tryggja framtíð blaðs- ins meðan kreppan er þyngst, Fús er jeg til að gefa einhverja 2 eldri árganga blaðs- ins með hverju eintaki sem fyrirfram er borgað af næsta ári, ef menn borga burð- Frli. á bls. 185,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.