Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1932, Síða 9

Bjarmi - 01.11.1932, Síða 9
BJARMI 169 Frá kristilegri æskulýðs- starfsemi í Noregi. Eftir síra Ó. S. Þorsteinsson, Bjarkey. Erindi flutt 17 10. í fríkirkjunni í Rvík I samb. við sóknarnefnda- fundinn. Hin kristilega æskulýðsstarfsemi í Nor- egi er orðinn töluvert fjölbreytt, eins og víðar, og- það sem hjer fer á eftir, eru aðeins lausir drættir. Fyrst skal minst á Æskníýðshjálpina, sem er alveg ný kristileg starfsgrein, Yill hún reyna að bæta ofurlítið úr atvinnu- leysisbölinu meðal æskulýðsins. Hún á rót. sína að rekja til kirkjulegs þjóðfundar, er haldinn var í Oslo í fyrra haust. Var þar töluvert rætt um þá líkamlegu eymd og siðferðislegu hættu, er iðjuleysinu fylgdi. Einn Oslo-prestanna lýsti dálítið ástandinu í höfuðstaðnum,. hvað þetta snerti, og sýndi fram á, hvernig iðjuleys- ið drægi dug úr efnilegum ungmennum, og kæmi spilling og kæruleysi af stað. Skoraði hann á alla áhugasama kristna menn, að hefjast handa þegar í stað, mynda samtök og leggja eitt.hvað í söl- urnar, svo um munaði, til varnar þeirri hættu, sem yfir æskulýðnum vofði. Er- indi þetta og áskorun,, vakti mikla athýgli á fundinum og víðar. Málið var óðara tek- ið til rækilegrar meðferðar og komst á endanum í hendur kirkjustjórnarinnar. Þegar eftir áramót í fyrra, var hin nýja starfsgrein komin á laggirnar, sem sjálf- stætt landssamband innan kirkjunnar, með ólaunuðum starfsmönnum. Aðalstjórn sambandsins hefir sæti í Oslo og er skip- uð þeim mönnum, sem best eru kunnir velferðar- og atvinnumálum og marg- reyndir að dugnaði. 1 biskupsdæmi hverju er stiftsnefnd,, en sóknarnefndir velja nefnd innan hvers safnaðar, er semur lista yfir atvinnulaus ungmenni, gengst fyrir fjársöfnun, bendir á einhver fyrir- tæki og tekur við umsóknum. Aðalstjórnin hefir þegar gefið ýmsar leiðbeiningar um ýms fyrirtæki, sem hamla megi iðjuleysi og veita ofurlítið í aðra hönd, Það er bent á samvinnu við ýmsar eldri stofnanir,. sem veita styrk til jarðabóta, skógræktunar, fiskveiða o. s. frv., en þó er hvað mest áhersla lögð á ýms iðnaðarfyrirtæki, sem geti borið sig sjálf og veitt mörgum atvinnu. Heimilis- iðnaður og smá-iðnaður gæti verið miklu meiri en hann er í Noregi,, því nóg er efnið til að vinna úr, og rafmagn nálega allstaðar, til vjelareksturs. lÁrlega er flutt inn mikið af iðnaðarvarningi, sem smíða mætti heima fyrir, og gæti veitt þúsund- um manna atvinnu. En það sem mest hamlar heimaiðnaðinum er„ að erfitt er að koma varningnum fljótt og kostnaðar- lítið á markað og að fje skortir til vjela- kaupa. Æskulýðshjálpin hefir tekið þetta til meðferðar og er að reyna gið finna einhverjar nothæfar leiðir. Þau fyrirtæki, sem v,auðveldast er að koma í framkvæmd, eru smárnámskeið, þar sem ungmenni geta fengið ókeypis tilsögn í að smíða úr trje eða málmi, fljetta, binda, sauma, vefa eða gera við skó, og þó þau gefi ekki mik- ið í aðra hönd, geta þau ýtt undir iðjusemi og sparnað og hjálpað einhverjum, til að koma fótum undir sig. Hugsjónin er, að hjvlpa þeim, sem hjálpa sjer sjálfir, og margur æskumaðurinn á framtakssemi og starfslöngun, en er þó öll sund lokuð. Þá er hjálparhöndin ómissandi, ef vel á að fara. Æskulýðshjálpinni hefir yfirleitt verið vel tekið,, og iyða er búið að koma á æsku- lýðsnefndum, sjerstaklega í borgum og bæjum, þar sem mest ber á atvinnuleys- inu. Miklu fje hefir verið safnað við merkjasölu, samskot og gjafir frá ein- staklingum og ýmsum fjelögum. Það er til þess ætlast, að þeir, sem atvinnu hafa, miðli þeim, sem atvinnulausir eru, eftir

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.