Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.1932, Page 17

Bjarmi - 01.11.1932, Page 17
BJARMI 177 ir að drag'a kristindómskensluna úr hönd- um þeirra kennara,, sem áhuga hafa á henni, og sjest það berleg'a á niðudagi tillög'unnar, sem jeg- mun bera fram í mál- inu Hjer er um eitt það að ræða, að sam- vinna aukist milli kennarstjettar og' prestastjettar,, og prestarnir hlaupi und- ir bagga með kennurum, þar sem þess er þörf og- því verður við komið. ----—-------- Kveðjur frá Noregi. Kæru íslensku. systkini í Drottni! Jeg- vil nota tækifærið til að þakka yð- ur innilega fyrir síðast, um leið og jeg ber vður nokkrar kveðjur hjeðan frá Noregi. Jeg' hefi skilað þeim kveðjum, sem þjer báðuð mig fyrir, og jeg hefi nú þegar ver- ið beðinn að skila kærum kveðjum til yð- ,ar frá andlegum systkinum hjer í Nor- egi. Og' jeg á ekki aðeins að flytja kveðj- u:r, heldur einnig hlýjar og vinsamlegar blessunaróskir. Það eru ekki fáir, sem nú biðja fyrir Islandi, yður og þjóð vorri. Vjer, sem reynt höfum kraft fyrirbæn- arinnar,, vitum, að því fylgir blessun. Fyrsta kveðjan er frá æskulýðsfjelög- um kristniboðsfjelagsins í Stafangri og Haugasundi. Á hátíðarsamkomu einni, sem haldin var hjer í bænum 11. sept„ þar sem fjöldi manns var saman kominn, var jeg beðinn fyrir þessa kveðju: »Heils- aðu íslenskum systkinum vorum í Drottni frá oss, með þessum orðum í I. Kor. 15, 58.: »Þess vegna,, mínir elskuðu bræður, verið fastir, óbifanlegir, síauðug'ir í verki Drottins, vitandi,, að erfiði yðar er ekki árang-urslaust í Drottni.« — Guð blessi lýð sinni á lslandi.« Næsta kveðja er frá sr. Joh. M. Wislöff, ritstjóra hins mikla vikublaðs heimatrú- boðsins norska »For Fattig' og' Rik«. Hann biður kærlega að heilsa yður og hvetur til, að leggja eins mikla rækt og auðið er við frjálsa kristilega starfsenii, Hún verður til blessunar fyrir andlegt líf þjóð- arinnar, fyrir kirkjuna, skólana og ein- staklinginn. Þriðja kveðjan er frá Ljóstveit, skóla- stjóra mínum: »Leitið Drottins meðan hann er að finna, kallið á hann meðan hann er nálægur.« Sjálfur vil jeg einnig senda yður inni- legá kveðju, með blessunaróskum og bæn um handleiðslu og náð Guðs. — »Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmann legir, verið styrkir! Allt hjá yður sje í kærleika gjört.« — Guð blessi börn sín á Islandi. Stavanger, 27. sept. Jóhcmn Hannesson. ----—-------- NdHiir orfl til æskumaniia. Eftir Albert ölafsson. »Mundu eftir skapara þínum á ung- lingsárum þínum,« (Prjedik. 12, 1.). — Svo talaði speking-urinn til unglinganna, fyrir 2200 árum. Og æskan þarfnast sömu áminningar ennþá. Gleymdu ekki Guði, ungi maður eða unga stúlka, sem ert að leg'g'ja af stað út á lífsbrautina. Þjer verð- ur eilíft tjón að því, að hafna handleiðslu skapara þíns, þegar þú þarfnast mest hjálparinnar. Eða hvar vilt þú leita gæf- unnar,. sem hjarta þitt þráir, annars stað- ar en hjá Guði? Þú veist, að svo elskaði Guð þig, að hann gaf son sinn, svo að þú gætir orðið hólpinn (Jóh. 3, 16.). Guð tekur ekki frá þjer hamingju þína nje lífsgleði, þótt þú leitir á náðir hans; nei, hann tekur á sig syndina, sem þyngir þig, og allt það, sem þjer er erfiðast, og' svo vill hann gefa þjer gleði og' frið. Þess vegna seg'ir Jesús: »Komið til mín, allir þjer, sem erfiðið.«

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.