Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1933, Síða 4

Bjarmi - 01.01.1933, Síða 4
2 BJARMI varð hann að sitja við verstu aðbúð í li ár. Konan hans lagði þá svo að sjer til þess að vinna fyrir börnum þeirra og ljetta manni sínum fangelsisvistina, að heilsan bilaði og hún dó missiri eftir að Júdson var slept úr fangelsi Nú var hann kominn heim sárlasinn með móðurlaus smábörn og var að skýra stuðningsmönnum kristniboðsins frá því sem liðið var. Stjórn kristniboðsins þótti sagan hörmu- leg og til lítils að halda kristniboði áfram í Birma, þar sem árangurinn væri sár- lítill, örfáir menn kristnir eftir 14 ára starf, en erfiðleikarnir fjöllum hærri. »Hvað segir ;þú þá um framtíðarhorf- urnar?« spurði stjórnin efablandin, þegar Júdson hafði lokið skýrslu sinni. »Framtíðarhorfurnar eru eins bjartar »g fyrirheiti Drottins,« svaraði kristniboð- inn. Það svar eftir aðrar eins mannraunir og harma gagntók kristniboðsvini, svo að þeir lögðu ekki árar í bát, heldur juku kristniboðið að stórum mun. Adorinam Júdson fór aftur til Birma og fáeinir ágætir nýliðar með honum. Og ávextirnir komu í ljós fleiri og meiri en flesta hafði dreymt um. Þegar Júd- son dó, 62 ára, árið 1850, voru kristnir söfnuðir á Austur-Indlandi orðnir 63 og meðlimir þeirra fullorðnir 7000. - - En á hundrað ára afmæli kristniboðsins þar (árið 1913) var kristið fólk í Birma á vegum þessa kristniboðsfjelags orðið um 70 þúsundir og kristnir skólar þess um 650. Og 100 árum eftir hann mælti þessi orð, var aðstaðan ærið breytt á Vestur- Indlandi, þar sem »kristnir« kaupmenn bönnuðu kristniboðshjónunum landvist. Kristniboðar aðkomnir voru þar þá um 1000, en sjöfallt fleiri innlendir, evange- liskt kristið fólk nálægt 2\ milljón og bibl- ían þýdd á 50 tungumál Indverja. Hver gat búist við öðru eins, þegar byrjunarerfiðleikarnir byrgðu alla útsýn, nema þeim, sem litu ekki á þá, en horfðu á fyrirheiti Drottins? Jeg segi frá þessm áður en jeg fer að tala um ísland, af því að jeg veit hvað oss flestum hættir til að einblína svo á erfiðleikana, að vjer annaðhvort missum kjark eða fyllumst gremju, í stað þess að hugsa öruggir: Á framtíðina horfi jeg í gegnum fyrirheiti Drottins og kvíði engu. Það er ekki þar með sagt, að vjer eig- um að loka augum fyrir raunveruleikan- um og gylla gallana. Fjarri því! Því ber ekki að neita, að það má benda á mörg ský á lofti í dag, sem óveðri kunna að valda ái morgun, eða á margar hætt- ur á alfaraleið, sem mörgum verða að fjörlesti, ef ekki er gjörð vegabót í tíma. Jeg nefni þess nokkur dæmi: Guðstrúarhatur er fyrsta skýið. Það er nýlunda á voru landi, að gjörð sje skipu- lögð árás á alla guðstrú frá harðsnúnum stjórnmálaflokki með öruggum styrk bein- línis og óbeinlínis frá alþjóða fjelagi guð- leysingja. Vekur það sjerstaka eftirtekt, að forvígismaður guðleysisárásanna á voru landi skuli vera fyrverandi þjóðkirkju- prestur, sem fjekk að boða trúleysi sitt í prjedikunarstólum þjóðkirkjunnar um 10 ára skeið, alveg óátalið af þeim, sem völdin hafa. — Og einmitt um það leyti, sem hann er »að tala sig dauðan«, eða komast þangað, sem enginn hlustar á hann í alvöru, þá kemur annar uppgjafaprest- ur á besta aldri, nýbakaður leiðtogi barna- kennara, og virðist ætla að feta trúlega í fótspor Gunnars frá Saurbæ. Vafalaust koma ýmsar hrynur úr þessu skýi, og ósjeð enn hvernig þjóðin snýst við, ef gjöra á alla guðstrú landræka. —- Skólarnir, æðri og lægri, eru mörgum áhyggjuefni. Að vísu er ekkert nýmæli, að vantrú eða minnsta kosti hirðuleysi um trúmál sje ríkjandi í fjölmennasta skóla landsins, menntaskólanum í Reykja- vík, en þó býst jeg við, að það sje eins- dæmi í skólasögu vorri, að ágætum kenn-

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.