Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1933, Page 13

Bjarmi - 01.01.1933, Page 13
BJÁRMI Íl elliheimili. Og þegar t. d. »Kristileg safnaðarstarfsemi« fór að biðja um jóla- samskot til fátækra í Reykjavík skömmu eftir aldamótin, þá fengust með mikilli fyrirhöfn 300 til 500 kr. En síðustu árin lmfa slík jólasamskot orðið 8 til 10 þús. kr. — nærri fyrirhafnarlaust. Þá höfðu flestir prestar engin kynni af eidendu kirkjustarfi; nú fara árlega ein- hverjir guðfræðikandidatar utan. Auk þess koma miklu fleiri erlend trúmálablöð til lands vors nú en þá, og nú eru .lafnvel nokkrir guðfræðisstúdentar farnir að taka þátt í kristilegu vakningastarfi, — sem hefði þótt fremur ólíklegt til skamms tíma. Enda þótt einangrun kirkju vorrar sje enn tilfinnanleg, og harla erfitt sje að fá fremstu trúmálamenn annara þjóða til »að koma við á íslandi«, þegar þeir eru að heimsækja ýmsar fjölmennari þjóðir, þá fer þó einangrunin minkandi með ári hverju, og ólíklegt annað en hingað ber- ist fleiri og fleiri hollir straumar frá »heitari« löndum. Þegar jeg lít á allt þetta, og minnist þess jafnframt, að Drottinn hefir á liðn- um öldum engu síður blessað fámennu þjóðirnar en stórþjóðir, þá virðist mjer al- veg óhætt fyrir oss að segja: »Framtíðar- horfurnar eru eins bjartar og fyrirheiti Drottins«. — Veit jeg vel, að erfiðleikar eru enn margir, og hættan sú mesfc, að vjer, sem tökum þátt í kristilegu sjálfboðastarfi, reynumst ekki nógu vel: sjeum ósamtaka og ósanngjarnir eða þá of nægjusamir við sjálfa oss og aðra, og boðum því ekki hjálpræði Krists nógu greinilega í orði og verki. En jeg er að vona, að árásir frá trúarhatrinu, sem vafalaust fara vaxandi enn um hríð, verði heilsusamleg áminning til vor, um að halda vel hópinn, og hvatn- ing trúhneigðu »landamærafólki« til að ganga alveg undir merki Krists. Greinilegar afturhvarfsræður og ákveð- in kristileg rit og blöð hafa borist um land allt undanfarin 30 ár, miklu frem- ur en mörg önnur 30 ár á liðnum öldum, og þótt margt hafi »fallið við veginn«, og óvinur sálnanna hafi mörgu illgresi sáð þessi sömu ár, þá liggur mjer við að öfunda yngstu liðsmenn vora, af því þeir fá vafalaust að sjá miklu meira af góðri uppskeru en enn er komið íljós. Því segi jeg það enn: Brott með allt svartsýni í trúaðra manna hóp. Framtíðarhorfurn- ar eru jafnbjartar og fyrirhéiti Drottins, S. Á. Gíslason. Yfir krossi Krists jeg fagna. Eft.ir Sir Jolin Botvring. (1792—1872) Yfir krossi Kristts jeg fagnd, — kletti’ úr gnæfandi’ alda nátt. Allt ijós helgra auðnu sagna, um hans safnast höfuð gnátt. Þegar lífsins voðaveður vonum hverfa, ótta slá, krossinn hjálpar. Hvað, sem skeður, honum gleðin streymir frá. Þegar sælu-sólin lýsir, signir elska lífs míns hag, Ijóstjð krossins hjartað hýsir, heiðir nýjum geislum dag. Kvöl og fagnað, heill og harma, helgar krossins ásýnd blíð. Guðs frið’ stafar, veröld varma, veitir gleði ár og síð. — (Ort 1825). Lárus Sigurjónsson þýddi, • o<oí> <

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.