Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.02.1933, Side 16

Bjarmi - 01.02.1933, Side 16
32 B J ARMI Vigdís Pjetursdóttir prófasts ejkðtVK í Stafholti. Nú hljómar mjer óvænt sú harmafregn súr, að hvílir þú, ústkæra frænka mín, núr, á fregnina hlusta jeg hljóður og hugsa um það góða, er gjörðir þú hjer og'gæðin þau mörgu, er veittir þú mjer, er ungum þú unnir sem bróður. Þótt sagan þín fyrnist, þá fullvíst er það, að fagurt var markið, er stefndir þú að sem móðir og mikilhæf kona. Það mark var að lýsa og láta eftir starf til líknar þeim bágstöddu og snauðu sem arf til aáðríkra dætra og sona. Þú tókst ekki að þjer nein trúnaðarstörf, sem tískunnar konur, en hreinlynd og djörf þú hlyntir að heimili þinu, og ö’.lu þú stjórnaðir innanhúss þar með ástúð, en festu það ríki þitt var, þig skelfdu ekki skyldurnar brýnu. Mig svíður það, hversu oft sjtkleika böl og sársauka þyrnarnir bjuggu þjer kvöl og lijarta þitt hrelldu og mörðu. En bótin var sú, að þjer búið var skjöl hjá börnum og manni, eru voru þín sál, er skyggðu á hretviðrin hörðu. Nú skift er um, frænka mín, skærari sól þjer skín nú í heiði og fegri þjer jól nú brosa, en brostu þjer áður, og sadt er að vita, að þú horfin ert heim sem hetja með sigri úr bardaga þeim er oft var með örðugleik háður. En Gísla nú horfinn er geisli af braut vjer grátum með honum er saknaðarþraut nú válega verður að reyna og samhryggjumst börnunum heilum af hug, á harminum einungis vinna má bug með tilstyrk hins alvalda eina. Svo hvíldu í friði og heilagri ró að hugsa um dagsverk þitt veitir oss fró og hvetur til dáða og dygða, ef líkt og þú fetum vjer lausnarns spor og líknum þeim nauðstöddu og sköpum þeim vor vjer hamingju höfum oss trygða. Jón Þorvnldson. ingin dæmir engan. Nokkrir Danir hafa í fá- visku sinni boðið yður hingað. Og vjer hinir þegjum, er þjer farið fram hjá. En frá lifandi Guði getið þjer ekki flúið.« Yídnlínspostilla. Gamall Vestur-Islendingur sem verið hefur vestan hafs um 40 ár skrifar svo í vetur: »Jeg byrjaði að lesa húslestra Vídalíns 14 ára gamall, elsta stílinn, fyrir blindan prest, hann minnti mig á, þegar mjer gekk erfiðlega að komast fram úr gamla letrinu. Síðan hefi jeg lesið 52 ár fyrir sjálfan mig og mína og 16 ár fyrir húsbændur mína. Börnin mín lásu, þegar jeg var ekki heima.« Kristnlboðsfjelög. Aðalatriðið er, að meðlimirnir sjeu sanntrú- aðir eða alvarlega leitandi. Trúhneigð án trú- arvissu, áhugi án lífssamfjelags við Guð er eng- um manni fullnægjandi. Og óhugsanlegt er að geta áunnið aðra fyrir Krist, hafi maðurinn sjálfur ekki gefist honum með líkama og sál. Áríðandi er, að eining riki í fjelagsskapnum, eigi starfið að ganga vel, eining I bæn, í trú, í kærleika til Drottins. Þó við sjeum að ýmsu leyti ólík, ættum við að hafa eitt i huga i starfinu fyrir Guðs ríki. Látum ekki smámuni raska hugarró okkar eða valda ósamlyndi, en lærum af Jesú að elska og umbera. »Berið hver annars byrðar, verið samhuga, verið friðsam- ir.« — Elskum hver annan I verki og sann- leika. leika. 61. 61. Nýlliælf. Ritstj. Bjarma hefir boðið nokkrum yngstu guðfræðingum islands, sem þátt taka í kristilegu fjelagsstarfi í Reykjavík, að bjá alveg um efni marz og apríl blaðanna, svo að þeir geti skrifað þar um áhugamál sln algjörlega á eigin ábyrgð og án íhlutunar eldri manns. Á þann veg njóta þeir sin best, og þá sjá lesena- ur blaðsins betur hvers af þeim má vænta siðar. Þeir tóku boðinu vel, þrátt fyrir ýmsar annir, og lesendurnir sjá greinar þeirra í næsta blaði. Ritstjóri: S. Á. Gíslason PRENTSMIÐJA JóNsllELGASONAR

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.