Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1962, Síða 10

Bjarmi - 01.12.1962, Síða 10
1D BJARMI Og frækornið smáa varA feiknastórt tré Skór small í þilinu! Georg hreyfði sig ekki. Hann lá á knján- um við rúmið sitt og bað. Það var einn af- greiðslumannanna, eldri en hann, sem hafði vaknað dálítið fyrr en venjulega að morgn- inum. Þeir sváfu í stórum svefnsal, sem ætl- aður var afgreiðslumönnum fyrirtækisins. Hann skyggndist í kring um sig í hálfrökkri salarins og uppgötvaði sér til mikillar undr- unar, að einn lærlinganna kraup við rúmið sitt. Hvað í ósköpunum var hér á seyði — var hann veikur? Hann settist upp í rúminu. Ó — það var litli náunginn, sem var á ferðinni enn einu sinni. Það var sjálfsagt bezt að kalla hann aftur til veruleika þessa heims. Og þá var bezt að framkvæma það. Hann hallaði sér gætilega út fyrir rúmstokkinn, greip stóra, þunga klossann sinn og sendi hann í glæsileg- um boga í áttina til unga piltsins, sem lá á bæn. Undrunin óx enn meir. Það komu engin viðbrögð frá piltinum. Slík árás á hvern hinna ungu piltanna, sem í svefnsalnum sváfu, hefði óumflýjanlega haft þær afleiðingar, að rekið hefði verið upp óskaplegt öskur og því hefðu fylgt eldheit áflog, þar til þeim, sem fyrir móðguninni hafði orðið, fyndist hann hafa endurgoldið með vöxtum og vaxtavöxtum. Nú gerðist ekkert af þessu. Georg hélt ótruflaður áfram bæn sinni, unz hann hafði lokið henni. Því næst kom hann með klossann til eigandans og brosti glaðlega um leið og hann afhenti hann. Þetta var smá leifturmynd af George Wil- liams, þegar hann var ungur. Síðar varð hann forstjóri og eigandi þessa mikla vefnaðarvöx’U- fyrirtækis í Kii’kjustræti í miðbæ Lundúna. Samt var hann enn kunnari sem stofnandi Kristilegs félags ungra manna — K.F.U.M. George Williams var einn af stórmennum í hópi kristinna leiðtoga nítjándu aldarinnar. George var eins og margir aðrir miklir trúarleiðtogar af bændaættum kominn. Fað: ir hans átti smábýli uppi á heiði í Vestur- Englandi. Vegna mikillar fjármálakreppu, er einnig var þá eins og nú, flykktist æskan fljótlega úr sveitunum og í námurnar, iðn- aðarmiðstöðvarnar og stórborgirnar. Þannig varð George einnig fljótlega að halda að heiman til þess að vinna fyrir lífsviðurværi. Hann hóf fyrst nám sem vefnaðarvöi’ukaup- maður í litlum bæ ekki all-langt frá heimili sínu. Hann var mjög duglegur og hafði ótrú- legt starfsþrek. Einkanlega voru konurnar í bænum hrifnar af þessum unga afgreiðslu- manni. Hann hafði svo ágætan smekk. Eng- inn gat eins valið litasamstæður og þessi ungi George Williams! Hann gat samt meira. Hann gat bölvað. Yrði hann reiður, gneistaði allt umhverfis hann. Hann var ekkert barn lengur. Og frá- sagnarhæfileika hans notuðu félagar hans sér í svefnsalnum á kvöldin — því að á þeim tímum bjuggu afgreiðslumennirnir alltaf hjá eiganda fyrii’tækisins. Það voru ekki aðeins fallegar sögur, sem hann sagði. Þeir höfðu fengið glaðværan, guðlausan og blótandi ung- ling inn í fyrirtækið. Hann gætti sín samt, þegar forstjórinn var nálægt. Hann var starfandi, kristinn maður. f ráðningarsamningnum stóð, að allir starfs- mennirnir yrðu að fara með forstjói’anum í kirkju á hverjum sunnudegi! Það var reglulegt leiðindaveður sunnudags- kvöld eitt veturinn 1837. Regnið buldi á aðalgötu litla bæjarins, og gasljóskerin vörpuðu flöktandi daufri skímu út í myrkrið. George hafði vafið frakkanum vel utan um sig og brauzt hægt móti veðrinu. inu. Hann var á leið til kirkjunnar. Þannig hafði það verið að undanföi’nu. Hann fór alltaf í kirkju. Og nú var það af fúsum vilja. Og 16 ára piltur fer ekki af fúsum vilja tvisvar hvei’n sunnudag í kii'kju, ef honum er það ekki qinhver alvara. George var það líka sannarleg alvara. Hann hafði átt í bar- áttu og hugarstríði í nokkra mánuði. Hann hafði verið að leita svars við mörgum spurn- ingum. Presturinn í kii’kjunni var enginn vinsæll hávaðaprestur. — Hann hafði enga sérstaka ræðumannshæfileika. Hann var hljóðlátur og hógvær prestur. Hann hét James Evans. Nafn hans hefði áreiðanlega fljótt fallið í gleymsku, ef hann hefði ekki verið það vex’k- færi Guðs, sem hjálpaði George Williams til trúar. Dyrnar opnuðust við og við og þá skauzt svolítil ljósskíma út í myi’krið fyrir utan. Það voru fáir þetta kvöld. George hristi rign- “inguna af hattinum og kápunni frammi í for- stofunni. Eins og venjulega settist hann á einn af öftustu bekkjunum. Svo hófst samkoman. Presturinn talaði í hljóðlátri alvöru um vegina tvo, sem liggja um þetta lif. Annar liggur niður á við, og hann er vel lagður og malbikaður. Hinn leit- ar upp á við. Sá vegur er mjór. En hann er eina leiðin, sem liggur alla leið til Guðs. George fór að spyrja sjálfan sig, hvorn veginn hann gengi. Hann gekk á þeim vegi, sem lá niður á við. Hann hafði ekki hreint hjarta, ekki hreinar hendur. Hann átti ekk- ert annað skilið en glötun. Þá spurði prest- urinn: Get ég komizt af veginum, sem liggur niður á við? Ögerlegt — sagði George við sjálfan sig. Ég hef festst á honum. Presturinn hélt áfram að segja frá því hjálpræði, sem Guð hefði gefið mönnunum í Jesú Kristi. George vissi það allt fyrir. Það var alls ekkert nýtt, sem presturinn var að segja. Hann vissi þetta allt mætavel. Og þrátt fyrir það — hann vissi það í í’auninni ekki. Og Geoi’ge hlustaði allt í einu á gjörsamlega nýjan hátt. Vér eigum að játa fyrir Jesú allt, sem gjöi’zt hefur í lífi voru — sagði prestui’- inn. Vér eigum að segja honum frá því, að oss takist ekki að biðja. Vér eigum að leggja hugsanir vorar, orð og gjörðir augljóslega og opinskátt fi’am fyrir Guð. Þá fyrirgefur Guð oss allt fyrir sakir Jesú. Og þá verður oss lyft yfir á vegirm, sem liggur upp á við. Þar veitir Guð oss dag hvern nýjan kraft til bai’- áttunnar. Þetta kvöld í kirkjunni varð hin heilaga ákvöi’ðunarstund í ævi George Williams. Þegar hann hljóp heim á leið eftir sam- komuna, hafði hann stoi’minn í bakið. Mai’g- ar einkennilegar tilfinningar og hugsanir bjuggu inni’a með honum. Hann lokaði sig inni í verzluninni. Þar gat hann fengið að vera aleinn. Og bak við afgreiðsluborðið beygði George kné. Hann ætlaði að biðja Guð. Það var engin ólga í honum. Engar ólgandi tilfinningar, sem knúðu hann á kné. Ekkert tár rann. Hann furðaði sig á þessu. Þetta var sterkur, hugsandi ungur piltur, sem í fyrsta sinni tók við trúnni sem gjöf og opnaði hjarta sitt fyrir Guði. Seinna fór hann til Lundúna. 1 fyrii’tæk- inu, sem hann þar vann við, voru 140 af- greiðslumenn. Þ>að leið á löngu, áður en hann hitti kristinn vin þar. Þeir félagarnir tveir hittust hvern dag í matai’hléinu. Þeir báðu saman. Og þá gerðust undarlegir hlutir í fýrii’tækinu. Það var ekki laust við, að margir væru forvitnir að fá að vita, hvað piltarnir tveir væru að gera inni í litla hei’berginú, sem þeir höfðu fengið leyfi til þess að hafa einir út af fyrir sig hálfa klukkustund fyrri hluta hvers dags. Sem greiðslu fyrir herbergið urðu þeir að þvo og taka til í herberginu fyrir þá, sem höfðu það! Væru þeir spurðir, hvað þeir væi’u eiginlega að gera, svöi’uðu þeir: Við höfðum bænasamkomu. Það var alveg óþekkt hugtak hjá flestum félaganna. Þeir höfðu flestir fyrir löngu hætt að biðja. En þegar á leið tóku margir að hugsa um Guð. Þeir báðu um það að mega taka þátt í bænasam- komunum. Og fljótlega varð herbex'gið allt of lítið. Guð var tekinn að svai’a bænunum. Þetta var lítil byi’jun. En hún varð upp- hafið að einu af ævintýi’unum í Guðs ríki. Þessi litli hópur manna í Lundúnum urðu upphaf að hinni miklu hreyfingu, sem bi’eiðzt hefur um allan heim og alþekkt er undir nafninu K.F.U.M. MAÐUR ÚTBYRÐIS Framh. af 2. síðu: í hugarlund það andartak en að lýsa því. Ég mun aldrei gleyma því, þegar ég hafði drenginn aftur í faðmi mér og sagði: „Jæja, drengur minn, nú gef- urðu Guði sjálfsagt hjarta þitt fyr- ir fullt og allt!“ „Já, pabbi. Já!“ hrópaði hann. Tárin streymdu niður kinnar okkar beggja. Ég veit, að fyrir Guðs náð og aðstoð mun hann geta haldið það heit, sem hann gaf Guði á þessari alvarlegu og ógleym- anlegu stund. Nú vildi ég ekki fyrir nokkurn hlut vera án þess að hafa lifað þessar ægilegu stundir! Ég fékk ekki aðeins drenginn minn aftur, heldur hefur hann öll þessi ár ver- ið til einskærrar ánægju foreldr- um sínum. Við sigldum alla nóttina og sunnudaginn eftir fyrir ágætum byr, og komum aðfaranótt mánu- dags inn í lognsvæði. Moi’guninn eftir kom einn af skipverjum inn til mín og spurði, hvort þeir mættu reyna að veiða hákarl, því að nú væi’u nokkrar vænar ,,mannætur“ að hringsóla um skipið. Þeir fengu leyfi til þess að veiða. Allir skipvei’jar voru á þilfari. Það var eins og alltaf talsverður við- burður, þegar farið var á hákarla- veiðar. Hákarlskróknum var vai’p- að fyrir borð með fleskbita á. Það leið ekki á löngu, að pilt- arnir höfðu dregið tvo stóra há- kai’la á þilfar. En þar, með var veiðunum lokið. Margir hákarlar syntu fram með skipshliðinni, en ég kærði mig ekki um að fá þá um boi’ð í skipið, því að það er óskaplegur sóðaskapur, sem fylgir því að gera að þessum skepnum á þilfari. Við stóðum allir umhverfis dauðu hákai’lana. Sonur minn einnig. Hann hafði alveg náð sér eftir atburði laugardagsins. Mat- sveinninn stjórnaði aðgerðinni á öði’um hákax’linum, og þegar hann risti hann til þess að ná lifrinni, lenti hann m. a. á stói’um bita úr í-eyktu fleski, síðubita. Hann stóð hugsandi dálitla stund og virti það fyrir sér. Því næst sagði hann. „Þessu henti ég útbyrðis síðdeg- is á laugardag, rétt áður en sonur skipstjórans datt úrbyrðis!“ Guð hafði þá á þennan hátt dregið athygli hákai’lsins frá di'engnum mínum.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.