Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.1962, Qupperneq 11

Bjarmi - 01.12.1962, Qupperneq 11
BJARMI 11 Kristján A. Stefánsson: Eg trúi upprisu Það eru margir, sem leggja rang- an skilning inn í orð Páls postula, er hann ritar um þetta efni, upp- risu holdsins. En orð postulans eru þessi: „En það segi ég, bræð- ur, að hold og blóð getur eigi erft Guðsríki, eigi erfir .heldur hið forgengilega óforgengileikann.“ I. Kor. 15, 50. Hér er ekki postulinn að neita upprisu holdsins, heldur þvert á móti, þó að nokkrir trúvillingar meini það, allra helzt þeir, sem neita upprisu holdsins, halda fram nokkurs konar sálarlegri upprisu eftir dauðann (2. Tim. 2, 18). En Páll postuli segir: „Ef dauðir rísa ekki upp, er Kristur ekki uppris- inn.“ Það er vitanlegt, að Kristur reis upp líkamlega, en þó í dýrð og vegsemd. Hann gjörði sitt hold og blóð dýrlegt, lifandi og vegsam- legt i upprisunni frá dauðum, og sannaði þar með guðdóm sinn og sigur yfir dauða og öllu óvinarins veldi og að vér eigum upp að risa við endurkomu Jesú í dýrð. Páll postuli segir: „En nú er Kristur upprisinn frá dauðum sem frum- gróði þeirra, sem sofnaðir eru.“ I. Kor. 15.16. 20. En hver er þá meining postul- ans, er hann segir, að hold og blóð erfi ekki Guðsríki, ekki heldur hið forgengilega óforgengileikann. Efa- laust þetta, að þegar dauðir rísa upp, munu þeir ekki úpp rísa í þeirri mynd, sem vér erum í nú, eða með því eðli og einkennum, sem vor jarðneski líkami hefur til að bera. Þannig erfir maðurinn ekki Guðsríkið né hið forgengilega óforgengileikann. Ég get ímyndað mér, að nokkr- r-----—---------------------------- Itéttui* adili Einu sinni var fátœkur drengur í Engiandi, sein langaði mjög- til þess að sjá konunginn. I*a3 var ekki auð- velt fyrir litinn dreng að fá það. Hann reyndi aftur og aftur, en hvert sinn, sem liaim reyndi, komu þjónar með gyllta lmappa og gylltar snúrur og ráku hann brott aftur. Fátæki drengurinn gafst samt ekki upp. Hann vildl sjá konunginn. Svo var það dag nokkum, að farið hafði á sama veg' og svo margoft áður. Þjónninn var í þaim veginn að reka haim út úr hallargarðinum ... þá gerð- ist dálítið ehikennilegt. TJngur, glæsi- lega klæddur maður kom gangandi. Hann sagði við þjóninn: „Eáttu mig sjá um þetta.“ I»ví næst spurði hann fátæka dreng- inn, hvers haim óskaði. Hami skýrði fljótlega frá því. Haim langaði til þess að sjá konunginn. „Ég skal sjá um það,“ sagði mnður- inn vingjarnlega. I’ví næst tók liaim fátæka drenginn við hönd sór, og þeir fóru inn í höllina. 3>ar sá drengurhm hluti, sem hann hafði ekki dreymt um áður. Hver sal- urimi öðrum glæsilegri. En áfram héldu þeir. Eoks knúði maðurinn dyra. Þar fyrir innan sat kommgurinn. Heit- asta ósk fátæka drengsins rættist. Hann fékk meira að segja að rasða við konung landsins. Og því liefur hann sjálfsagt aldrei gleymt. I»að ætti að vera auðvelt að gizka upp á, hver ungi maðurhm var, sem leiddi liann til konungsms? Það var prinsinn, sonur konungsins. Þess vegna fór allt svona vel. Þessi saga hefur verið notuð til þess að skýra það, sem fagnaðarerindið boðar. Guð gaf oss Jesúm, einkason shui, til þess að liami skyldi leiða oss til Guðs og til hhnins. Því að vér er- um öll fátæklingar. Vér getum ekki kornizt hm í hhnininn fyrir eigin til- verknað. Svo kom Jesús, sonur Guðs. Hann varð frelsari vor og friðþægði fyrir syndir vorar. Vér eigum aðeins að trúa á liann. Þá hljótum vér fyrir- gefningu syndanna og frið. V.---------------------------------J ir í Korintusöfnuðinum hafi hugs- að sér upprisuna á efsta degi þann- ig. En postulinn leiðréttir þann misskilning með þessum orðum: „Sjá, ég segi yður leyndardóm: Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður, því lúðurinn mun gjalla, og hinir dauðu munu upp risa óforgengilegir, og vér mun- um umbreytast. Því að þetta hið forgengilega á að íklæðast ófor- gengileikanum og þetta hið dauð- lega að iklæðast ódauðleikanum. En þegar þetta hið forgengilega hefur íklæðzt óforgengileikanum og þettá hið dauðlega hefur íklæðzt ódauðleikanum, þá mun rætast orð það, sem ritað er: Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.“ 1. Kor. 15. Samkvæmt orðum postulans eiga líkamir vorir í upprisunni að verða líkir Jesú Krists dýrlegum líkama, ef vér hér og nú lifum í samfélagi við Jesúm, og í samfé- lagi við hann öðlumst hlutdeild í upprisudýrð hans og krafti, sem er vor fyrri upprisa, upprisa í Heil- ögum Anda, fyrir trúna á Krist Jesúm, Drottin vorn. Kól. 2,12. Lofaður sé Guð og faðir Drott- ins vors Jesú Krists, sem eftir mik- illi miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum, til ófor- gengilegrar og flekklausrar og ófölnandi arfleifðar, sem yður er geymd á himnum, — yður sem með krafti Guðs eruð fyrir trúna varðveittir, til þess að þér getið öðlazt hjálpræðið, sem er þess al- búið að opinberast á síðasta tima. i: Pét. 1. 3—5. Þetta er hin fyrri upprisa, og þeir, sem eiga hlut- deild í henni, eru sælir og þeim mun hinn annar dauði ekki granda, ef þeir standa stöðugir í hinu sæla samfélagi við Krist. En Guð er þess megnugur að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögn- uði. Júd. 1, 24—25. Upprís mitt hjarta! með elsku og trú, upprisnum fagnandi þínum Jesú. Upprisan fyrsta þér er gefin nú, Upprisu lífsins senn fær þú. (Séra Kristinn sál. Jóhannesson). Hin síðari upprisa, er upprisa líkamans, upprisa lífsins á efsta degi, þá er Jesús kemur með engl- um máttar síns í logandi eldi og lætur hegningu koma yfir þá, sem ekki þekkja Guð og ekki hlýða fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesúm Krist. 2. Þess. 1, 6—10. Jes- ús sagði: Sá, sem etur mitt hold og drekkur mitt blóð hefur eilíft lif og eg mun uppvekja hann á efsta degi. Jóh. 6. En þannig er varið upprisu dauðra: Sáð er forgengilegum lík- ama, en upprís óforgengilegur, sáð er óásjáanlegum líkama en upprís vegsamlegur, sáð er veikum lík- ama, en upprís máttugur líkami, náttúrlegum líkama er niður sáð, en upprís andlegur líkami. l.Kor.15. Þessi postullegu og spámannlegu orð eru misnotuð af mörgum prest- um við jarðarfarir, því að þau heyra framtíðinni til og aðeins þeim, sem sofnaðir eru í trú á Krist og er lifa dýrlega endurkomu Jesú Krists til dóms á efsta degi, er skepnan verður leyst úr ánauð for- gengilegleikans til dýrðar frelsis Guðs barna, því að vér vitum, að öll skepnan stynur líka og hefur fæðingarhríðir allt til þessa. En ekki einungis hún, heldur og vér, sem höfum frumgróða Andans, jafnvel vér stynjum með sjálfum oss, bíðandi eftir sonar-kosning- unni, endurlausn líkama vors. Róm. 8, 21—23. Því föðurland vort er á himnum og frá himni væntum vér frelsara, Drottins Jesú Krists, hans, sem mun breyta lægingar líkama vorum í sömu mynd og dýrðarlíkami hans hefur. Filipp. 3, 20—21. Þetta eru þeir, sem hafa hér í lifi fengið fyrirgefningu synda sinna í blóði endurlausnarinnar, sem er í Jesú Kristi, Guðs ein- getnum syni. En Jesús talar um aðra upprisu, upprisu dómsins, sem fer fram fyr- ir hinu mikla hvíta hásæti á himn- um í endalok þessa heims. Verður sú upprisa gagnstæð upprisu hinna réttlátu, sem í Drottni eru dánir, því svo er skrifað af spámanni Guðs. Og margir þeirra, sem sofa í dufti jarðarinnar, munu uppvakna, sumir til eilífs lifs, sumir til smán- ar, til eilífrar andstyggðar. Dan. 12, 2. Þetta er í samræmi við það, sem Jesús segir: Undrizt ekki þetta, því sú kemur stund, er allir þeir, sem í gröfunum eru, munu heyra raust hans (mannssonarins) og þeir munu ganga út, þeir sem gott hafa gjört til upprisu lífsins, en þeir sem illt hafa aðhafzt, til upp- risu dómsins. Jóh. 5, 28. Eg trúi því eins og Páll postuli, að upp muni rísa bæði vondir menn og góðir, þess vegna æfi ég sjálfan mig í því að hafa góða samvizku bæði fyrir Guði og mönnum. 1 Helgakveri er sagt: Þótt líkaminn deyi og verði að moldu, verður hann eigi að engu, heldur á hann fyrir höndum að rísa upp aftur og samtengjast sál- unni, og verður þá ódauðlegur. Bæði guðhræddir og óguðlegir rfsa upp aftur. Þess vegna er það rétt við jarð- arfarir, að prestur segi, er hann kastar rekum yfir hinn látna: Af jörðu ertu kominn. Að jörðu skaltu aftur verða. Af jörðu skaltu aft- ur upp rísa. Upprisa líkamans fer fram við endalok þessa heims á dómsdegi. Sá dagur er og kallaður síðasti eða efsti dagur og dagur Drottins. Eng- inn maður veit, hvenær hann muni koma. H. H. Sjá Job. 14,12. Jóh. 6, 24. En þér eruð ekki holdsins menn, heldur Andans menn, svo framar- lega sem Andi Guðs býr í yður. En hafi einhver ekki Anda Krists, þá er sá ekki hans. En ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en and- inn líf vegna réttlætisins. En ef Andi hans, sem vakti Jesúm frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist Jesúm frá dauð- um, og gjöra lifandi dauðlega lík- ami yðar fyrir þann Anda hans, sem býr í yður. Róm. 8, 9.11. Ekki viljum vér bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von. Því að ef vér trú- um því, að Jesús sé dáinn og upp- risinn, þá mun Guð sömuleiðis fyrir Jesúm leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru, því það segjum vér yður og höfum fyrir oss orð Drottins, að vér sem lifum og erum eftir við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu, því sjálfur Drottinn mun með kalli, með höfuðengils raust og básúnu Guðs, stiga niður af himni, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upprísa, síðan munum vér, sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt þeim hrifn- ir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu, og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma. Huggið því hver annan með þess- um orðum. 1. Þess. 4, 13—18. Hveiti korn þekktu þitt, þá upprís holdið mitt. 1 byndini barna þinna blessun láttu mig finna. (H.P.) En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega, og gjörvallur andi yðar, sál og líkami varðveitist -ólastanlega við komu Drottins vors Jesú Krists. Trúr er sá, er yður kallar, og hann mun koma þessu til leiðar. 1. Þess. 5, 23—24. Hon- um sé dýrðin bæði nú og til eilífð- ar dags. Amen. Kristján Á. Stefánsson frá Bolungarvik. LAMMITTA Framb. af 7. siðu: dikari í Konsó. Hann er boðberi fagnaðarboðskaparins meðal þjóð- ar sinnar. Og hann hefur í sann- leika vaxið í náð og þekkingu á Kristi. Hann er lifandi og brenn- andi í áhuganum. Hann hefur feng- ið að reyna náð Guðs og mátt hans í sínu eigin lífi og hann getur ekki þagað um þá undursamlegu hluti, sem Drottinn hefur gert fyrir hann. Og nú er konan hans og börnin hans tvö líka innlimuð í söfnuð Krists hér á jörð. — „Drottinn leiddi þá út úr myrkr- inu og niðdimmunni og braut sundur fjötra þeirra, þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk.“ Margrét Hróbjartsdóttir.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.