Bjarmi - 01.07.1968, Page 6
Sréf /m (jíáa
^LLLyá Kristniboðsstöðin í Konsó
Addis Abeba 16./6. 1968.
Kæru kristniboðsvinir!
Það hefur dregizt meira en
góðu hófi gegnir að skrifa ykk-
ur bréf. Við vitum svo mæta vel,
að þið bíðið eftir fréttum af
starfinu, sem þið berið á bænar-
örmum hvern dag.
Söfnuðum fjölgar.
Undanfarnir mánuðir hafa
verið ákaflega viðburðaríkir.
Þar ber hæst, að Barrisha Hunde
var vígður prestur safnaðarins,
og hefur Katrín skrifað um þá
hátíðarstund. Þá er verið að
skipta héraðinu í safnaðarsvæði,
og er hugmyndin, að þau verði
fjögur til að byrja með. Hvert
svæði velur sér 3—5 öldunga og
álíka marga eða heldur fleiri
safnaðarþjóna. Kosningar hafa
þegar farið fram á tveimur
svæðum, þ. e. fyrst við ána Seg-
gen, en þar eru fjögur þorp, sem
sameiginlega mynda einn söfn-
uð. Þorpin heita Geldeha, Kol-
alta, Kawaito og Bæja. Þá er
einnig lokið safnaðarmyndun i
Fasha, en þar eru þorpin Arkale,
Gasargjo, Gaho, Debana og
Lawa. Á þessu svæði eru nokk-
ur fleiri þorp, þar sem söfnuð-
urinn hefur starf, en af þorps-
búum eru ennþá engir skírðir.
Fljótlega eftir að ný þorp bæt-
ast við, er kosinn safnaðarþjónn
fyrir staðinn. Á fyrrnefndum
tveimur svæðum hafa safnaðar-
þjónar og öldungar verið settir
í embætti. Sú athöfn fór fyrst
fram í Geldeha og nokkru seinna
í Arkale. Þetta er ákaflega ein-
föld athöfn. Barrisha ræðir fyrst
Enn er það svo í Konsó, að börn-
in þurfa snemma að aðstoða við
dagleg störf. Litla telpan, sem er
hér í miðri kofaþyrpingunni, er
með stórt vatnsker á bakinu.
Vatnið þarf hún að sækja langa
leið.
um skyldur og ábyrgð þeirra,
sem valdir eru til slíkra starfa.
Þeir eiga að vera fyrirmynd
annarra, leiðbeina og hjálpa,
þegar þess gerist þörf, og ann-
ast sjúka. Þá fór fram ritning-
arlestur, en að því búnu krupu
hinir nývöldu öldungar og safn-
aðarþjónar og Barrisha bað
bæn. 1 undirbúningi er safnað-
armyndun fyrir Nagulli-svæðið,
en þar verða auk Nagulli God-
dja og Gamále. Þriggja til fjög-
urra vikna námskeið verður
haldið fyrir öldunga og safnað-
arþjóna, en hvenær það verður,
er ekki að fullu ákveðið.
Barrisha hefur undanfarnar 2
—3 vikur heimsótt allmörg þorp,
þar sem skírnarnámskeið eru
haldin. Hefur hann fylgzt með
kennslu og spurt út úr. öldung-
ar safnaðarins hafa verið í för
með honum. Eftir rúmlega 3
vikur ætlar Barrisha aftur til
Geldeha og Fasha, og þá verð-
ur úr því skorið, hverjir hafa
náð tilskildum skírnarundirbún-
ingi. Sameiginlega er svo ákveð-
inn skírnardagur. Eftir öllu að
dæma verður um allstóran hóp
að ræða.
Nýjar bvggingar.
f febrúar var byrjað að hafa
sunnudagaskóla úti í þorpunum.
Þegar starfsmenn safnaðarins
koma til að sækja laun sín síð-
« H J A II M I