Bjarmi - 01.07.1968, Page 7
asta dag hvers mánaðar, er not-
að tækifærið og hafður fundur
með þeim. Ýmislegt viðvíkjandi
starfinu er þá rætt, og í fundar-
iok hef ég farið lauslega yfir
texta þá, er nota skal komandi
mánuð. Skrifa þeir niður nokk-
ur meginatriði við hvern texta.
Sunnudagaskólarnir hafa verið
vel sóttir. Mun láta nærri, að
um 900 börn sæki þá nú.
Fyrir nokkru fengum við
byggingamann frá Gidole. Da-
er ordin eins
diko heitir hann og hefur hjálp-
að okkur áður. Ráðgert er,. að
hann byggi 5 heimavistarhús að
stærð 12.30X4.50. Áður en hann
kom, hafði Gomatjo og annar
með honum hlaðið grunnmúr
að þremur húsum, og okkar
fyrsta verk eftir að Dadiko kom
var að steypa gólfplötur þess-
ara húsa. Gomatjo hleður grunn-
múr þeirra tveggja, sem eftir
eru. 1 rigningartímanum hafa
verið búnir til um 5 þúsund hol-
steinar og vantar um 1 þúsund
til viðbótar, svo nægi fyrir öil
húsin. Hurðir, gluggar, báru-
járn, sement og annað, sem til
þarf, hefur allt verið flutt frá
Addis Abeba. Siðustu innkaup-
in hef ég nýlokið við, og vinur
okkar Longo er á leið til Konsó
með 11 tonn af vörum. Vonandi
tekst að ljúka þessum bygging-
um í október. Eitt húsið ætlum
við að nota fyrir tvær kennslu-
stofur, — gamli skólinn er vart
nothæfur lengur og verður rif-
inn í haust.
og lítid þorp
Kirkjubygging í Konsó.
Norðmenn eru nú að byggja
kirkjur á tveimur stöðum, Gata
og Agere Selam. Má búast við,
að teikning kirkjunnar verði
,,standard-teikning“ fyrir
kristniboðssvæðið, enda er um
látlausa og fallega byggingu að
ræða. Til gamans sendi ég ljós-
mynd af teikningunni. Verst er,
hvað byggingarkostnaður er
hár, en búast má við, að slíkt
kirkjuhús byggt í Konsó muni
kosta um Eþ. $ 30 þúsund, eða
ísl. kr. 6—700 þúsund. Nú er
mér fyllilega Jjóst, að heima á
gamla Fróni eru erfiðir tímar
fjárhagslega séð og varla sann-
gjarnt að ætlast til meira af
ykkur, kæru kristniboðsvinir.
-----------------------------X
Myndirnar:
Á mynd í fyrsta dálki er
verið að taka Konsóbarni
gröf. Hún er höfð örmjó
og líkinu síðan troðið nið-
ur þröng göngin og eins
langt og unnt er. — t öðr-
um dálki: Einn af þeim,
sem viðstaddir voru jarð-
arförina. Andlitssvipurinn
ber vott spurninganna, er
á leita. Er öllu lokið með
gröfinni? Hvað tekur þá
við? — íslenzkir vottar
hafa flutt þeim fagnaðar-
erindið um sigur Krists
yfir gröf og dauða og eilíft
líf í lionum.
^_____________________________J
En ég get ómögulega neitað
mér um að segja eins og er:
Gaman væri að geta reist fall-
ega kirkju á stöðinni okkar, sem
senn lítur út eins og lítið þorp.
Þá get ég bætt því við, að ekki
er óhugsandi, að við getum
fengið norskan byggingarmann
til að annast verkið, ef af verð-
ur. Hann fer bráðlega til Agere
Mariam og mun annast bygg-
ingu nýs barnaheimilis og
sjúkraskýlis, og gerir ráð fyrir
að vera þar í tæpt ár. Að þessu
verki loknu getur vel komið til
greina, að hann kæmi til Konsó,
ef mögulegt væri að hefjast
handa með kirkjubyggingu.
Kostir þeir, sem fylgja því að
fá kunnáttumann til að reisa
slíkt hús, eru öJlum augljósir.
Að lokum sendi ég ykkur okk-
ar beztu kveðjur með Sálm. 121:
,,Ég hef augu mín til fjallanna,
hvaðan kemur mér hjálp, hjálp
mín kemur frá Drottni . ..“
Ykkar einlægur, Gísli.
f-----------------------------
Sumhnnd íslenzkra
krislniboðsfélaga
Skrifstofa:
Amtmannsstíg 2B - Reykjavík
Símar 17536 og 13437
Pósthólf 651
Bréf og gjafir
til starfs sambandsins
sendist til skrifstofunnar
V_____________________________y
BJARMl 7