Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.1968, Page 8

Bjarmi - 01.07.1968, Page 8
islenzkt starfslið í Gidole Það er ekki víst, að allir ís- lenzkir kristniboðsvinir hafi veitt því athygli, hve þáttur þeirra í starfinu í bænum Gidole hefur vaxið stórkostlega. I bæ þessum, sem er uppi í hálend- inu um 50 km fyrir norðan Konsóstöðina, hafa Norðmenn reist allstóra kristniboðsstöð. Vegna manneklu þeirra hefur skipazt svo, að íslenzkir kristni- boðsvinir hafa komið þar til að- stoðar. Þeir launa læknishjónin, sem annast sjúkrahúsið þar. Eru það þaú Jóhannes Ólafsson og Áslaug kona hans. Þá var og ákveðið, að Simonette hjúkrun- arkona Bruvik færi þangað og tæki til starfa nú í sumar. Vera má, að þó verði nokkur bið á því, vegna erfiðra aðstæðna ann- ars staðar. Á öðrum stað í blað- inu er og frá því sagt, að Bene- dikt Jasonarson sé á förum til þess að gerast kennari við Biblíuskólann þar. Og síðast en ekki sízt: Skúli Svavarsson hef- ur undanfarna mánuði verið stöðvarstjóri þarna og verður áfram. Hefur hann staðið sig með hinni mestu prýði í því mikla og vandasama starfi. Þegar þessa alls er gætt kem- ur í ljós, að íslenzkir kristni- boðsvinir hafa tekið að sér að kosta starf þrennra hjóna og einnar hjúkrunarkonu í Gidole. Er þá liðsaflinn héðan að heim- an orðinn þrefaldur þar í bæ móts við það, sem nú er í Konsó. Þrátt fyrir það þarf meira fé til Konsó, þar eð bera verður þar kostnað af öllum byggingum, af skólahaldi og starfrækslu sjúkraskýlisins, auk þess styrks, sem innlendum starfsmönnum er veittur til starfs úti í Konsó- þorpunum. Laun kristniboðanna allra, einnig þeirra, sem starfa í Gi- dole, eru færð á fjárhagsáætlun kristniboðsstöðvarinnar í Konsó. 1 ár mun þurfa um 1 milljón og 700 þús. krónur til þess að standast kostnað starfsins þar. Það er mikið fé, ekki sízt, þegar hugsað er um sívaxandi fjár- hagserfiðleika hér á landi. Starf- ið mun því leggjast með vax- andi þunga á kristniboðsvinina sjálfa, þar eð síður má í náinni framtíð vænta stuðnings frá einstaklingum, sem eru utan fé- lagasamtaka eða stuðningshóps kristniboðsins í Konsó. Það er nauðsyn, að kristni- boðsvinir geri sér vel Ijósa þá staðreynd, hve starfið hefur vaxið í Eþíópíu og hve starfið Bréf frá Skúla Svavarssyni STARFIÐ ER HEILLANDI Kæru kristnihoðsvinir. Það hefur verið ætlun mín að skrifa ykkur svolítið um stöðina og starfið hér í Gidole, síðan við komuni hingað, og læt ég nú loks verða af því. — Gidole er sú kristnihoðsstöð, sem er næst Konsó. Starfssvæði beggja stöðvanna mynda Gammu-Gofa prófaslsdæmi Mekane Jesús kirkj- unnar. Allt samstarf milli þessara tveggja stöðva er því mjög náið. Við erum nú tvær íslenzkar fjölskyldur hér á stöðinni og eigum von á þeirri þriðju í sumar. Þess vegna er það eðlilegt, að ykkur Iangi að frétta svolítið frá Gidole. Hér á sjálfri stöðvarlóðinni er harnaskóli með um það hil 260 nemendum, sem skiptast í 1.— 6. hekk. Það er norsk kennslukona, sem veitir skólanum forstöðu. Auk nemendanna, sem eru í skólanum á stöðinni, þá húa hér allmargir nem- endur frá Konsó og Gidole-héraðinu, sem eru við nám í 7. og 8. hekk ríkisskólans í Gidole hænum. Bihlíuskóli er hér einnig. Við höfum tvær kennslustofur þar. í annarri heldur eins árs bihlíuskólinn til og í hinni stofunni höfum við tvö þriggja mánaða hihlíunámskeið hvert ár auk styttri námskeiða fyrir starfandi prédikara, safn- aðarstarfsmenn og öldunga safnaðanna. Safnað- armeðlimirnir hafa litla þekkingu á kristnum fræðum, og er því Biblíuskólinn hin þarfasta stofnun. Þeir sem verið hafa á eins árs eða þriggja mánaða námskeiði Bihlíuskólans starfa að námi loknu innan sinna safnaða, án launa til að hyrja með. Þriðja stofnunin við stöðina hér í Gidole er sjúkraliúsið, sem Jóhannes læknir veitir forstöðu. Sér til aðstoðar hefur hann tvær norskar hjúkr- unarkonur auk eþíópsku slarfsmannanna. Gidole-hérað er mjög stórt og þéttbýlt. Það eru um það hil þrjár dagleiðir frá söfnuðunum sem eru nyrzt til þeirra, sem eru syðst. (Með dagleið á ég við eins dags ferð á múldýri, því hér er lítið hægt að komast á híl.) Á þessu svæði eru nú 74 kristnir söfnuðir. Vegna þess, hve svæðið er stórt, höfum við skipt því í þrennt. Gidole kallast svæðið kringum stöðina og suður að landa- mærum Konsó. Fyrir norðan Gidole er Zeisi og nyrzt Gresí. Hvert svæði hefur sinn eþíópska prest. Prestinum til aðstoðar eru 30 prédikarar og 5 kennarar, sem hafa skírnar- og fermingar- n n .i a n >i i

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.