Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.1968, Page 12

Bjarmi - 01.07.1968, Page 12
BLESSUNAR- DAGGIR DRUPU Veðurútlit fyrir almenna kristilega mótið í Vatnaskógi var ekki sérlega álitlegt í aug- um þeirra, sem komnir voru þangað árla laugardagsins 22. júní. Hávaðarok skall á og kl. 8,30 um morguninn féll sam- komutjaldið skyndilega. Eins fór um þó nokkur tjöld, sem þátt- takendur voru búnir að reisa sér. Talsvert regn fylgdi veðrinu. Skömmu síðar tók að birta og lægði nokkuð, er leið á daginn. Samt lægði ekki svo, að unnt væri að nota tjaldið við setning- arguðsþjónustuna, er hófst kl. 6 e. h. Var hún því höfð inni i nýja skálanum, sem verið var að ljúka við. Fór svo, að allar samkomur og guðsþjónustur mótsins fóru þar fi'am. Séra Innkomið til kristniboðsins i Konsó í maímánuði: Frá einstaklingum: N.N. 900 kr. M.l. 5000 kr. S.G. Skrið- nisenni, til minningar um Margréti Th. Jónsdóttur frá Gilsfjarðarbrekku 1000 kr. Á.S. Ólv. 1000 kr. I.A. 2000 kr. H.H. 8000 kr. K.J. (gjöf í tilefni 24/6. ’68) 1000 kr. M.Kd. 300 kr. B.Á. 200 kr. J. og V. 1300 kr. Ó.K. 500 kr. T.S. 200 kr. Á.J. 1000 kr. G.J. 1000 kr. Z. 2000 kr. J. og B. 1000 kr. B.B. (Höfn) 1200 kr. Guðrún 500 kr. I.S. 100 kr. K. 1000 kr. N.N. 175 kr. N.N. 840 kr. N.N. 1000 kr. N.N. 1000 kr. N.N. 5000 kr. N.N. 1800 kr. S.F.S.V. 1000 kr. J.B.Þ. og Þ.A. 2000 kr. J.M. (fyrir egg) 300 kr. Þ.P. 200 kr. S.G. (viðbót við Pálmasunnud. samsk.) 150 kr. Innkomiö á samkomum og frá ýmsum félögum: Kristniboðsdeild K.F.U.M. og K. í Hafnarf. 1680 kr. Saumafundir telpna í Betaníu 1650 kr. Sunnudagaskóli Lárus Halldórsson annaðist guðsþjónustuna, bæði altaris- þjónustu og prédikun. Þátttaka og efni. Ýmsir bjuggust við, að veðr- ið myndi valda því, að einhverj- ir hættu við að koma. Það voru ekki mikil brögð að slíku. I lok setningarguðsþjónustunnar voru komnir um 320 þátttakendur. Á sunnudeginum munu hafa verið nálægt 100 fleiri. Yfirskrift mótsins í ár var: „Sjá, eg er með yður alla daga“. Voru efni allra samkomanna tekin úr niðurlags versum Matt- heusarguðspjalls, sem yfirskrift- in er tekið úr. Á fyrstu samkomunni, kl. 8,30 um kvöldið, talaði Steingrimur Benediktsson, kennari, um efnið „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu“. Á sunnudagsmorgni kl. 10 hófst guðsþjónusta, sem séra Lárus Halldórsson annaðist. Við altarisgöngu var séra Sigurður Þorsteinsson, prestur i Noregi, honum til aðstoðar. Altarisgest- ir voru 291 að tölu. kristniboðsfélaganna 12.350 kr. Barna- samkoma og Y.D. K.F.U.M. Kóp. kr. 4834,50. Sunnudagaskólinn á Vatns- leysustr. 3100 kr. Y.D. K.F.U.K. í Kóp. (viðbót við samskot) 90 kr. Rótarý- klúbbur Reykjavikur 10.000 kr. Baukar. Baukur S.G. kr. 324,75. Baukur i Neskirkju kr. 1171,88. Baukur E. kr. 178,64. Baukur Þ. tsafirði kr. 78,90. Baukur kr. 254,96. Innkomið til kristniboðsins í Konsó í júnímánuði: Frá einstaklingum: A.J. 200 kr. M.K. 750 kr. M.S. 500 kr. S.S.M. 1000 kr. S.L. Höfðakst. 700 kr. Sesselja 500 kr. G.J. Akran. 600 kr. B.S. 1000 kr. Áheit 100 kr. N.N. 1000 kr. E.E. og fjölsk. 1000 kr. Innkomiö á samkomum og frá ýmsum félögum: Kristniboðsfélag kvenna, Stykkish. 21.000 kr. Kvenfélag Rípurhrepps 600 kr. Samskot á almenna mótinu í Vatnaskógi kr. 62.624,65. Baukar. Samskot i baukum Miklabæjar- og Silfrastaðakirkna kr. 1490,40. Baukur kr. 119,56. Baukur B.Þ.A. kr. 109,55. Baukur kr. 106,36. Kl. 2 e. h. var kristniboðssam- koma. Yfirskrift hennar var: „Farið út um allan heim“. Har- aldur Ólafsson, kristniboði, sagði nokkuð frá starfi sinu meðal Bórana-þjóðflokksins í Suður- Eþíópíu svo og almennt frá kristniboðsstarfinu, skipulagi þess og sögu þar í landi, og þá einkum starfi Norska lútherska kristniboðssambandsins. — Ing- unn Gísladóttir, hjúkrunarkona, sagði frá starfi í Konsó og minn- ingar þaðan. Þá var lesið bréf frá Skúla Svavarssyni og sagð- ar helztu fréttir frá starfinu í Konsó. 1 lok samkomunnar voru tek- in samskot til kristniboðsins í Konsó og gáfust því um 63 þús. krónur á samkomunni. Eitthvað bættist við á eftir. Kl. 5 e. h. var aftur samkoma og yfirskrift hennar: „Gjörið þá að lærisveinum". Gunnar Sigur- jónsson, guðfræðingur, talaði. Auk hans sagði séra Sigurður Þorsteinsson nokkur orð, svo og kona hans, frú Laura Þorsteins- son, sem einnig söng einsöng. Gladdi framlag þeirra hjóna samkomugesti mjög. Um kvöldið kl. 8 var svo sam- kona, er hafði sem yfirskrift „Sjá, ég er með yður“. Var það að venju stund, þar sem orðið var gefið frjálst, og þeir sem vildu vitnuðu um það, sem þeir hefðu reynt. Að samkomunni lokinni fór meginhluti mótsgesta heim. Á mánudag. Þeir, sem eftir urðu, munu hafa verið eitthvað um 130. Voru þrjár samverustundir fyr- ir þá, og allar með efni um hina síðustu tíma og endurkomu Krists. Fyrsta samverustundin hafði yfirskriftina „Allt til enda veraldar“, sú önnur hafði yfir- skriftina „Hvað aftrar honum?“ og sú þriðja „Ég sá nýjan him- in og nýja jörð“. Síðasta samveran var kl. 4. Að henni lokinni héldu þátttak- endur heim. Var klukkan þá um hálf sex. Lauk þar með góðu og uppbyggilegu móti. 12 II.IAKMI

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.