Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1968, Side 14

Bjarmi - 01.07.1968, Side 14
Fra heimsborg tilhjara veraldar Framhaídssaga um Georg Williams, stofnanda K.F.U.M., eftir Sverre Magelssen I fyrri köflum fjallaði um uppruna Georgs Williams, bernsku hans, skólagöngu og loks, er hann var sendur til verzlunarnáms. Kom fljótt í ljós, að Jiar var liann á rcttri liillu. Húshóndi hans var sann- kristinn maður og fyrir til- stuðlan lians sótti Georg kirkju. Varð liann þar fyrir sterkum áhrifum og tók afturlivarfi. Georg fer til Lundúna. Fjórtándi dagur febrúarmánaðar árið 1838 var merkisdagur í ævi Georgs. Þá var hann tekinn inn í óháða söfnuðinn í Bridgewater. Og brátt fór hann að taka þátt í starfi safnaðarins. Eitt var honum ljóst: Hann skorti kristilega þekkingu. Enginn hafði veitt honum neina krist- indómsfræðslu, þegar hann var barn. Hann fór að kenna í sunnudagaskóla safnaðarins, en hon- um duldist ekki, að jafnvel yngri börnin í hópn- um vissu oft meira um Guð og ríki Guðs en hann. Hann þóttist því ekki of mikill maður til þess að setjast sjálfur á bekkinn í miðjum hópi sunnu- dagaskólabarnanna. Hann vildi fræðast. Hann var mjög áhugasamur þátttakandi í litl- um biblíulestrarhópi. Þar opnaðist Biblían fyrir honum í tvennum skilningi. Hann varð fljótlega handgenginn henni. Á hverjum degi tók hann sér tíma til að lesa. Og nýju, kristnu vinirnir hans voru óþreytandi að svara spurningum hans. Þetta var mikil hvatning fyrir Holme kaup- mann. Georg hafði sannarlega ekki gert ráð fyr- ir því, að hann ætti eftir að þakka húsbónda sín- um fyrir, að hann hafði tekið hann með sér i Zíonskapelluna sunnudag eftir sunnudag. Og Holme var á hinn bóginn enn þá sannfærðari en áður um, að þennan ráðningarskilmála ætti hann aldrei að afnema úr verzlun sinni! Það kom eitthvað nýtt inn í fyrirtækið. Georg var athafnamaður að eðlisfari. Hann gat ekki horft upp á það rólegur, að margir félagar hans þarna þekktu Guð elcki í raun og veru. Og hann vitnaði fyrir þeim. Það gekk svo langt, að marg- ir urðu fokvondir við hann. — Vertu ekki að nudda í okkur — leyfðu okkur að vera í friði, sögðu þeir. Georg skildi þetta ekki almennilega. Þeir vissu allir, hver afstaða hans hafði verið áður. Og nú var hann orðinn trúaður, kristinn piltur. Nú urðu þeir einnig að verða það. William Hurman var sá, sem leysti hnútinn. Þeir gátu ekki haldið uppi kappræðum í svefn- sölunum á hverju kvöldi. Margir þeirra tóku þátt í umræðunum aðeins vegna umræðnanna — eða til þess að espa Georg. Það væri betra að hætta leiknum, meðan hæst hann bæri, var skoðun Williams. — Við skulum heldur biðja meira fyrir þeim. Og svo verðum við að vera þeim góðir félagar, við verðum að sigrast á göllum okkar — og vera almennilegir. Þá vilja þeir hlusta á okkur, þegar Guð gefur okkur tækifæri til. Georg sá, að William hafði rétt fyrir sér. Hann hætti að kappræða við starfsbræður sína. Þá varð líka betri tími til þess að biðja fyrir þeim. Hópur trúuðu starfsmannanna kom saman á ákveðnum timum til þess að biðjast fyrir í litlu herbergi til hliðar við verzlunarbúðina. Og upp frá þeim degi fór andrúmsloftið að breytast með- al starfsmanna fyrirtækisins. Dag nokkurn var námstími Georgs á enda runninn. Þá var hann 19 ára gamall. Honum var vel ljóst, að hann gat ekki sezt að í Bridgewater. Verzlun Holmes var ekki stærri en svo, að hann hafði nóga útlærða menn á sínum snærum. Ekki var rúm fyrir fleiri. Engu að síður þótti Georg mjög erfitt að hætta. Margir piltarnir í verzlun- inni höfðu tekið trú í seinni tíð, og þeir voru allir knýttir innilegum vináttuböndum. Erfitt hafði verið að fara að heiman í fyrsta sinn, en enn þá þyngra var honum um hjartað, þegar hann yfirgaf Zíonskapelluna í síðasta sinn eftir stundina, sem hann hafði átt með sunnudaga- skólahópnum. En honum var nauðugur einn kostur að fara. Daginn, sem námstímanum lauk og hann tók saman pjönkur sínar og kvaddi, var hann í raun- inni atvinnulaus. Það var ekki hlaupið að því að fá nýja stöðu. Að minnsta kosti var það alger- lega vonlaust í Bridgewater. Það vildi honum til happs, að Fred bróðir hans hafði nýlega stofnað verzlun í litlu þorpi, sem Petherton hét. Það var ekki langt frá Bridge- water. Fred hafði alls ekki efni á því að ráða nýjan aðstoðarmann, en þar sem Georg var nú atvinnulaus, skyldi hann að minnsta kosti taka hann um tíma. Og þess þurfti Fred ekki að iðr- ast, því að Georg lét sannarlega hendur standa fram úr ermum. Hann var ekki aðeins til hjálpar í verzluninni. Hann bjó hjá bróður sínum, sem átti ágæta konu. En hún var únítari, og Georg varð þegar ljóst, að þarna hafði Guð ætlað honum mikið verkefni. Hann bað ekki lítið fyrir henni! Sérstaklega beiddist hann þess, að hann mætti vera til fyrir- myndar á heimilinu — að þau þyrftu ekki að hafa neitt út á hann að setja. Hann vildi vera kristinn maður í einu og öliu. 14 BJABMI

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.