Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1978, Síða 3

Bjarmi - 01.01.1978, Síða 3
EÞlÓPlA: Mildll vöxtur Ársíundur suður-sýnódu lúth- ersku kirkjunnar í Eþíópíu var haldinn síðastliSið haust. Sdtu hann 130 fulltrúar. Einkunnarorð fundarins voru þessi orð Jesú: „Hjarta ySar skelfist ekki" (Jóh. 14,1). Forseti sýnódunnar, Leggese Wolde, kvað undangangiS ár hafa verið gott starfsár, og hefSu yfir- völd íremur hvatt kirkjuna til dáSa en lagt hindranir í veg fyrir hana. Margt fólk snýr sér frá djöfladýrkun og gengur í söfnuS- ina. Alls voru í söfnuðum sýnód- unnar 110 þúsund manns, og hafSi þeim fjölgaS um 27 þúsund á einu ári, eSa um rúmlega 30 af hundr- aði. Leggese Wolde var endurkjör- inn forseti (samsvarar biskupi) til nœstu þriggja ára. Á fundinum var látin í ljós sú ósk, aS kristni- boðarnir hjálpuðu til sem mest í starfi kirkjunnar, enda vœri upp- skeran mikil, en verkamennirnir fáir. Söfnuðirnir i Konsó tilheyra suður-sýnódu lúthersku kirkjunn- ar, eins og kunnugt er. umst í landi, þar sem hvað sem er getur gerzt, hvenær sem er, en við erum örugg í hendi Drottins. Það er mikil neyð og sorg í landinu. Biðjið fyrir Eþíópíu. Ég hef skroppið til Konsó, eftir að ég kom. Það er gleðilegt að hitta aftur kæra vini. Allt er eins og áður var á sjúkra- skýlinu. Sjúklingar komu mjög margir í sumar, en ég hef frétt, að þeim hafi fækkað nokkuð í seinni tíð, enda fer jafnan svo á regntímanum. Nú starfa tvær hjúkrunarkonur í Konsó, Liv Jensen og Irene Lende, báðar norskar. Hjúkrunarmenn- irnir Káte og Volde Tinsae eru þarna enn þá, og starfsliðið er lika að öðru leyti hið sama og áður. Norðmaðurinn Ketil Fuglestad er í Konsó. Hann lét fjölskyldu sína fara heim í haust, og nú ætl- ar hann að heimsækja þau í Noregi um jólin. Áætlað er, að hann komi aftur eftir nýár. Fyrir skömmu fóru Torstein Hauge og Sólveig, kona hans, hér hjá garði á leið til Konsó, þar sem þau ætla að vera. Það hefur verið mikil úrkoma núna á regntímanum, svo að allt er grænt og grózkulegt eins og er. Regnið hefur spillt vegum all- mjög sums staðar, og hefur því verið erfitt að komast áfram í bílum í seinni tíð. Um andlega lífið í Konsó er það Jóhannes Úlafsson til Eþíópíu Jóhannes Ólafsson, læknir, og fjölskylda hans hafa dvalizt lengst af í Noregi, síðan þau fóru frá Eþíópíu árið 1976, og hefur Jó- hannes gegnt læknisstöðu í Osló. Þegar þetta eintak af „Bjarma“ kemur út, mun Jóhannes Ólafsson verða kominn til Eþíópíu. Var áformað, að hann færi þangað 14. janúar til starfa um þriggja mán- aða skeið til þess að leysa aðra lækna af. Fjölskylda hans fer ekki, enda eru engar konur með börn á norsku kristniboðsstöðvunum í Eþíópíu eins og sakir standa. Jó- hannes gerði ráð fyrir að vinna þennan tíma á sjúkrahúsinu í Irgalem. Kristniboðsvinir ættu að minn- ast Jóhannesar og fjölskyldu hans í bænum sínum. að segja, að þar mun vera mikil deyfð meðal kristinna manna, sem eiga heima í þorpunum næst stöð- inni. Ástandið er betra lengra úti í sveitunum. Biðjið mikið fyrir Konsó. Guð megnar að skapa líf af dauða með orði sínu. Ég fór um helgina síðustu til Gídole. Þar er líka víða ákaflega drungalegt, þar sem áður var mik- ið andlegt líf. Kirkjusókn á kristniboðsstöðinni í Gídole hefur verið heldur dauf upp á síðkastið. Það er margt, sem truflar. Bændafélögin hafa fundi sína á sama tíma og guðsþjónustur eru haldnar, og það er refsivert að sækja ekki fundina. Á flestum stöðunum koma nokkrir menn saman um orð Guðs og styrkja hver annan á veginum heim. Biðjið fyrir þeim og fyrir öllum hinum, sem einu sinni voru með í för. Þeir eru margir, sem hafa undanfarin ár staðið með uppréttar hendur og beðið um hjálp. Þeir fengu ekki þá fæðu, sem þeir þörfnuðust til þess að lifa hinu nýja lífi. Það er hörmu- legt um að hugsa. „Gæt þú lamba minna,“ sagði Jesús. Enn eru dymar opnar í Eþíópíu. Margir bíða. Okkur er veitt að flytja öllum fagnaðarboðskapinn. Boðskapurinn er frá Guði. Hann jafnast ekki á við neinn annan boð- skap. „Þér þekkið náð Drottins vors Jesú Krists, að hann, þótt ríkur væri, gjörðist yðar vegna fátækur, til þess að þér auðguðuzt af fátækt hans“ (2. Kor. 8,9). Gleðileg jól. Kær kveðja. Elsa Jacobsen. 1 framhaldi af bréfi Elsu skal hér getið nokkurra frétta úr einka- bréfum: TRJÁRÆKT í einkabréfum frá Eþíópíu er þess getið, að Haugehjónin, sem Elsa nefnir í bréfi sínu, hafi farið frá Arba Minch á mánudegi, en ekki komizt til Konsó fyrr en næsta fimmtudag, og olli því hin mikla ófærð vegna rigninganna. Eina nóttina urðu þau að sofa í bílnum, þar sem þau voru niður komin. Þá höfðu tveir kristniboðar kom- ið með sjúkling frá Gressí til Arba Minch. í Gressí er dönsk kristni- boðsstöð, hátt uppi í fjöllunum fyrir vestan og sunnan Arba Minch. Þessir kristniboðar höfðu þegar beðið í þrjár vikur eftir að komast aftur til Gressí. Regn hamlaði. Sumar nætur rigndi 60 mm í Gressí. í Konsó hafði rignt 349 mm í októbermánuði, enda var stöðin einangruð að heita mátti allan mánuðinn vegna samgönguleysis. Að sjálfsögðu má búast við, að uppskeran verði þeim mun betri sem úrkoman er meiri, svo að ætla má, að mannfólkið gleðjist, — einkum það, sem þarf ekki að kom- ast leiðar sinnar í bílnum. Búfræðingurinn Ketil Fuglestad hefur m. a. plantað tré í Konsó, og mun hann hafa gróðursett um 70 þúsund plöntur í haust. Þær dafna vel í rigningunni. Hér mun vera um að ræða evkalýptustré, sem bæði má nota til bygginga og sem eldivið. HJÓLIÐ HELDUR INNREIÐ SÍNA Bærilega gengur að kynna spunarokkana í Konsó. Nokkrir Konsómenn hafa lært að smíða rokkana. Efnið fæst allt í hérað- inu. Fimm slíkir smiðir verða á stöðinni fyrst um sinn. Þá telst það til nýlundu, að nú 3

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.