Bjarmi - 01.12.1978, Síða 13
FRÁ STARFINU
RfilBHJ ÓLARALL
Laugardaginn 14. október s.l. var
haldið svonefnt reiðhjólarall á veg-
um unglingadeilda KFUM og K i
Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Seltjarnarnesi. Rallið
fór fram á Álftanesi, og hjóluðu
keppendur þar um 10 km leið. Voru
ýmsar þrautir lagðar fyrir þá á leið-
inni, og umferðarspurningum þurftu
keppendur að svara á afmörkuðum
tima. Gefin voru stig eftir árangri
í þrautunum og verðlaun veitt að
lokinni keppni. Alls mættu 210 til
leiks, og fór keppnin vel fram, og
átti gott veður sinn þátt i þvi. —
Keppninni lauk með samveru i
Garðakirkju, þar sem verðlaun voru
afhent, sungnir söngvar og fluttir
vitnisburðir. Milli 30 og 40 sjálf-
boðaliðar aðstoðuðu við keppnina,
auk lögreglu úr Hafnarfirði.
Keppni þessi var haldin í samráði
við Umferðarráð, sem veitti leiðbein-
ingar, lánaði tæki og sá um um-
ferðarspurningarnar. Allir þátttak-
endur fengu svo viðurkenningu árit-
aða at KFUM og K og Umferðar-
ráði.
Reiðhjólarallið var liður i útbreiðslu-
og kynningarherferð unglingadeild-
anna, og var þvi öllum unglingum
á félagssvæðinu, 12 ára og eldri,
boðin þátttaka. Gefið var út kynn-
ingarblað i dagblaðsformi, þar sem
UD-starfið var kynnt, svo og reið-
hjólarallið, og var öllum unglingum
boðið að koma á fund i næstu ungl-
ingadeild og láta skrá sig í keppn-
ina. Þannig fengu unglingarnir dá-
litla innsýn í starfið. Kynningarblað-
inu var dreift í öllum 7. og 8. bekkj-
um grunnskóla á Stór-Reykjavikur-
svæðinu og á Akranesi. — Ýmis
fyrirtæki styrktu keppnina og blaðið
með auglýsingum, og fengust þann-
ig nokkrar tekjur til starfsins. A.H.
FERÐASTAHFIII
Benedikt Arnkelsson og Gunnar
Sigurjónsson ferðuðust um Snæ-
fellsnes dagana 17.—23. október.
Héldu þeir samkomur á Hellissandi
og í Ólafsvik, Grundartirði og
Stykkishólmi. I Stykkishólmi heim-
sóttu þeir einnig elliheimilið og
sjúkrahúsið og kynntu kristniboðið
fyrir nokkrum nemendum grunnskól-
ans. Gjatir til kristniboðsins námu
rúmlega 86 þúsund krónum.
FSKUFVllS VIKA
Árleg æskulýðsvika KFUM og K í
Reykjavik var haldin i húsi félag-
anna viö Amtmannsstíg 2b dagana
29. október til 5. nóvember. Ræðu-
menn á samkomunum voru Helgi
Hróbjartsson, sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson og sr. Jónas Gislason.
Auk þeirra tók margt ungt tólk til
máls og bar fram vitnisburð sinn.
Mikill og fjölbreyttur söngur var á
samkomunum, og voru þær vel
sóttar.
Myndin til vinstri er frá reiShjóla-
rallinu. Farkosturinn hefur bilaS,
og nú þarf snör handtök ... Á neSri
myndinni sést hluti af ÆskulýSskór
KFXJM og K, sem mikiS lét til sin
heyra á œSskulýSsviku félaganna í
haust.
unina um að eignast eitt bam
enn.“
Tárin streymdu niður andlit
hennar, á meðan hún var að tala.
„Var ekki nóg að eiga fimm börn?
Ó, hve hjarta mitt hrópaði á Guð,
og stundum óskaði ég þess, að hann
tæki bamið frá mér.
Komið var að fæðingarstundinni.
Ég var mjög veikburða, og engir
læknar vom í nágrenninu. Við
höfðum engan til þess að biðja
fyrir börnin á meðan, svo að mað-
urinn minn setti okkur öll upp í
bílinn og ók með okkur til borgar-
innar, þar sem var gott kristni-
boðssjúkrahús. Þar dvöldumst við,
þangað til barnið var fætt.“
Litla barnið hreyfðist í faðmi
hennar, teygði út litlu handlegg-
ina og geispaði. En hvað hún var
yndisleg. Rödd móðurinnar varð
blíðleg:
„Þegar við komum aftur til húss
okkar með nýfædda barnið, kom-
umst við að því, að á þessum stutta
tíma, sem við höfðum verið fjar-
verandi, höfðu Mau Mau mennirnir,
er allir óttuðust, komið. Þeir höfðu
myrt alla hvíta menn í öllu hérað-
inu. Ef við heföum verið heima,
heföum við öll verið drepin."
Hún vafði litla barnið að brjósti
sér, og tárin runnu niður kinnar
hennar. „Þessi litla elska var send
af Guði til þess að bjarga lífi okk-
ar allra. Ég mun aldrei, aldrei
framar gera uppreisn á móti hand-
leiðslu hans á lífi okkar.“
13