Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1988, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.03.1988, Blaðsíða 9
Pétur og Jóhannes sáu líkklæði Jesú í gröflnni. Það nægði til þess að þeir trúðu að Jesús væri upprisinn. étur „kletturinn" og Jakob bróöir Drottins gerðist trúaður. Kristin irkja varð til, lifir enn, sami kraftur vcttist enn í dag þar sem trúað er á *nn upprisna og honum viðtaka veitt. , ar gerbreytist lífið í vissu og játn- mgu: Sannarlega er Drottinn uppris- •nn! Marteinn Lúther lagði á það mikla áherslu í páskaprédikunum sínum að s^gja söguna aftur og aftur. - Hún er sönnun trúar okkar, sem gerðist þann- jg og þannig er rituð, segir hann, ekki elgisaga, heldur skráning staðreynda. 'íelld endurtekning er til trúarstyrk- 'ngar. betta þarf fyrst að vita til að jrúa. Þeir þurfa að heyra sem ekki afa áður heyrt; þeir gleymnu þurfa rifja upp og þeir sljóu að hlusta C|nu sinni enn. Guðspjöllin eru stutt- 0rð þvf að menn vita að þetta hefur §erst, það er opinber vitneskja. Og Lúther reynir alltaf að raða atburðunum í rétta tímaröð þegar ann segir aftur og aftur söguna um ann, „sem losar þig við dauðann, eysir þig frá synd, um pínu hans og uPprisu, sem ekki eru orðin tóm, held- Ur kraftur, sem á að verka í mér svo að eg finni í mér nýtt hjarta og sam- Vlsku.“ Með mörgum slíkum orðum ger>r okkar gamli kirkjufaðir grein yrir upprisu Drottins, sem er boð- skapur í sjálfri sér, því að hann segir, „trú er ekki það eitt að hafa heyrt rásagnirnar og vita af þeim, heldur er trúin samfélag, nýtt Iíf og himnaríki." Hér er Lúther að benda á það, sem Varðar mest af öllu. Frelsunarverk Quðs A hvítasunnu fylltust postular heil- ()gum anda. Nálægur mannfjöldi Ueyrði það og sá. Pétur postuli ávarp- ar fólkið en hann talar ekki margt um nenagan anda. Ræða hans er páska- Predikun um krossfestan og upprisinn frelsara. Pessi Jesús lifir. Ekkert mannlegt auga sá hvernig upprisan gerðist. Eng- lr|n af höfundum Nýja testamentisins gerir grein fyrir hvað þetta var, skynj- a^ á mannlega vísu. En augljóst er að Petta, sem þeir sáu og reyndu, var verk Guðs. Hann hafði gripið inn í H^öpun sína. Allt sem snerti Jesú .rist, persónu hans, orð og gerðir, einnig líkama hans, var verk Guðs. Smátt og smátt rann það upp fyrir Peim sjálfum hversu stórkostlegur veruleiki bjó að baki þessari sérstöku uPprisu frá dauðum: Frelsunarverk Guðs í Jesú Kristi var sannarlega full- komnað. Hann hafði sigrað í stríði krossins. Guð hafði „gefið oss sigur- inn fyrir Drottinn vorn Jesú Krist.“ Þetta eru páskarnir. Ekki vanga- veltur né skýringar á fyrirbæri, sem alls ekki verður útskýrt, heldur blátt áfram þessi staðreynd að Jesús lifir og sigur hans er öllum boðinn og það skal kunngert öllum. Hver tilraun til útskýringa er dæmd til að mistakast. Hitt er sögulega sannað að enginn efi komst að þegar menn loksins trúðu undrinu. Þeir höfðu víst flestir vonað, að Guðsríkið, sem Jesús talaði um, væri heimsveldi, einhverrar gerðar sem þeir könnuðust við. Þær vonir hrundu í rúst á Golgata. En svo var sigurinn auglýstur, ennþá stærri og voldugri en þá hafði órað fyrir. Sigur yfir synd og vonsku. Sigur yfir dauða. Yfirlýsing Guðs sjálfs og staðfesting á öllu starfi Jesú. Hann hafði sigrað í raun og veru. Guðsríkið var orðið að veru- leika. Og hann var farinn af stað sigr- andi og til þess að sigra. Og á því leikur enginn vafi, að það var engin hugljúf minning um meistar- ann frá Nasaret og þaðan af síður draumórar sem knúði þá af stað til að vitna um Krist. Það var kraftur sem þeim var gefinn. Heimurinn fékk líka brátt að vita að eitthvað hafði gerst. Sjálft heimsveldið fann fyrir því að standa andspænis afli sem lagði allt undir sig og hafði krossinn að sigur- merki. Bylting stendur yfír Og sé nú svo sem Nýja testamentið fullyrðir að kristin reynsla virðist stað- festa að allt þetta - tilvera kirkjunnar, trúboð hennar, lífskraftur og ótal ávextir til góðs í mannlegu samfélagi - að allt þetta sé bein afleiðing þess, er fylgjendur Jesú fengu að reyna þessa páska í Jerúsalem og vikurnar næstu á eftir, þá má ljóst vera að Jesús hefur valdið mestu byltingu mannkyns- sögunnar. En nú er engin bylting augnabliks- aðgerð, heldur oftast löng framvinda og langtímaaðgerð þess sem er annað en áður var. Þessi bylting stendur yfir í heiminum. Guð hefur gripið þannig inn í söguna að verk Jesú er ekki ein- föld atburðarás löngu horfins tíma heldur sífellt að gerast og koma til 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.