Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1988, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.03.1988, Blaðsíða 26
ALBANÍA: Burt með trúna! Ekki hafa heyrst fréttir um að yfirvöld í Albaníu hafí breytt afstöðu sinni gaganvart trúar- brögðum eftir að Hoxha einræðis- herra féll frá. Albanía er eina þjóð- ríkið i heiminum sem hefur lýst opinberlega yfír því að þar ríki guð- leysi. Þar hefúr verið sett í lög að allar trúariðkanir séu bannaðar. f byrjun síðari heimsstyrjaldar tilheyrði nær öll þjóðin þrennum trúarbrögðum. Sjötíu af hundraði landsmanna töldu sig vera músl- íma, 20 prósent tilheyrðu rétttrún- aðarkirkjunni og aðrir kaþólsku kirkjunni — nema eitt hundrað manns sem töldust vera mótmæl- endur. Þegar kommúnistar tóku völd iyrir 44 árum pyntuðu þeir og drápu bókstaflega alla leiðtoga þessara þriggja stærstu trúarsam- félaga, segir í blaðinu Dagen. Ríkisstjórnin gaf yfirlýsingu um það 1967 að öll trúarleg starfsemi bryti i bág við lög. Kirkjin og múhameðsk bænhús um gjörvallt landið voru jöfnuð við jörðu eða tekin til annarlegra nota. JAPAM: Fornar hefðir fjötra f Japan hafa siðir og venjur í menningu og trú rnjóg dúpar rætur og sitja fast í hugum fólksins, segir japanski presturinn Oshugi við blaðið Dagen ■ Noregi. Hann starf- ar í Kinki-kirkjunni sem sprottin er upp af starfí norskra kristniboða í landinu. Jafnvel fólk sem kallar sig marx- ista heldur fast við siði úr búdda- dómi og sjintótrú t.d. i sambandi við giftingar og jarðarfarir. Þessi djúpa hollusta gagnvart valdi og venjum er hár þröskuldur í starfl þeirra sem vinna að útbreiðslu fagnaðarerindisins ■ Japan. Menn eru bundnir við hefðirnar og er þetta vafalaust ein ástæðan til þess að einungis einn af hverjum hundrað Japönum er kristinn. En jafnframt er kristindómurinn sú trú sem vekur mestan endur- hljóm í hugum Japana. Athuganir leiða í Ijós að 60 prósent lands- manna hefðu kosið sér kristna trú ef þeir hefðu haft frjálsar hendur. Oshugi lítur svo á að þessi niður- staða sýni raunverulega afstöðu fólksins. Það þráir ■ raun og veru annað en það sem það býr við. f þessari staðreynd er fólgin hin sterkasta hvatning, segir Oshugi. Hann telur að vakning verði í Japan innan stundar. Þessi japanski prestur varð krist- inn lyrir 20 árum. Fjölskylda hans sýnir honum enn fálæti vegna þess að hann valdi að fýlgja Kristi. RÚMENÍA: Kirkjan eflist Það er stórkostlegur vöxtur í kirkjunni í Rúmeníu nú um stundir. Jafnframt búa kristnir menn við sífellt verri aðstæður. Yfírvöld líta á það rnjóg alvarlegum augum hversu ungt fólk streymir til kirkn- anna og reyna eftir mætti að bregða fæti lyrir það bæði ■ skólum og á vinnustöðum. Þetta er haft eftir rúmenska biblíusalanum Wagner ■ norska blaðinu Dagen fyrir nokkru. Wagn- er var rekinn úr heimalandi sínu. Firir'fLAnD: Allir heyri fyrir 2000 Þijú stærstu, kristilegu útvarps- félög í heimi, Trans World Radio (TWR), Far Easts Broadcasting Ass- ociation (FEBA) og það sem venju- lega er skráð með skammstöfun- inni HCJB, hafa tekið saman hönd- um um að stefha að því að fagnað- arerindið um Jesúm Krist hljómi öllum heiminum á öldum Ijósvak- ans fyrir árið 2000. Hafa samtökin lagt sameiginlega áætlun um að fyrir þann tima verði unnt að senda út kristilega prédikun á öllum höfuðtungumálunum. Þetta kom fram á evrópskri útvarpsráðstefnu í Finnlandi á árinu sem leið. Þarvar m.a. sagt frá því að þess væru mörg dæmi að kirkjur og söfnuðir hefði orðið til fyrir áhrif kristilegrar boðunar í útvarpi. Höfuðtungur eru kallaðir þeir tungumálaflokkar sem meira en milljón manns tala. Danska og norska eru t.d. taldar til „sænska tungumálafíokksins" vegna þess að Danir og Norðmenn skilja sænsku. Rætt var um að til væru 276 tungumálaflokkar en áður- nefnd þrenn útvarpssamtök senda út dagskrár á aðeins 117 þessara tungumála. Er nú lagt allt kapp á að undirbúa útvarpssendingar á þeim málum sem hafa orðið útund- an. Bent var á ýmsar athyglisverðar staðreyndir á þinginu. f júli urðu jarðarbúar fímm milfjarðar. Ekki eru nema 12 ár síðan mannfólkið var cinum milfjarði færra. Fólkinu virðist ætla að fjölga með sama hraða. Nú er öld bama og ungs fólks. Yfír helmingur mannkyns er yngri er 24 ára. Menn streyma á nýja staði. Þann- ig má tala um þjóðfíutninga til Evr- ópu. Þangað koma milljónir manna úr ýmsum áttum. Fólk leitar til borganna. Fjórir af hverjum tiu jarðarbúum eiga heima í borgum og bæjum og ekki er ólíklegt að þeir verði fimm af tíu um næstu aldamót. Nú geysa 36 styrjaldir. Alvarleg- ast er stríðið á milli íraks og frans. Fimm milfjónir manna era undir vopnum, þar af 60 prósent í fátæk- um þróunarlöndum. Þróunarríkin hafa tvöfaldað útgjöld sín til hern- aðar. Minnst var á „uppsveiflu" gamalla, heiðinna trúarbragða. Ekkert af þessu á að draga kjark- inn úr kristnum mönnum, sagði einn þátttakandi þingsins. Til upp- örvunar má t.d. benda á hina miklu kristniboðsvakningu sem fer um „kristniboðslöndin"; söfnuðir þar senda kristniboða til annarra landa og svæða. Efnahagur er víða góður, auðvelt að ferðast og marg- vísleg tækni í boði. Þar er mjög litið til Qölmiðla. En það eru fýrst og fremst brennandi hjörtu sem elska frelsarann og sjá hversu mikið er í húfí að menn læri að þekkja Jesúm Krist sem útbreiðsla fagnaðarer- indisins er háð. 26

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.