Bjarmi - 01.03.1988, Side 13
hjá honum er alltaf fyrirgefningu að
fá.
3. Umvöndun andans
Takmark Guðs með öllu því sem
hann sendir í veg okkar hér á jörðinni
er að við náum heim til himinsins.
Hann elur okkur upp, hið vonda eðli
°kkar á að láta undan og stoltið að
v'kja. „Og þér hafið gleymt áminning-
Unni sem ávarpar yður eins og syni:
Sonur minn, lítilsvirð ekki hirtingu
Hrottins og lát ekki heldur hugfallast
er hann tyftar þig. Því að Drottinn
agar þann sem hann elskar og hirtir
harðlega hvern þann son er hann að
sér tekur“ (Hebr. 12:5-6). „í bili virð-
'st allur agi að vísu ekki vera gleðiefni
heldur hryggðar, en eftir á gefur hann
Þe'm, er við hann hafa tamist, ávöxt
friðar ogréttlætis" (Hebr. 12:11).
Scriver hefur sagt: „Þegar Guð vill
gefa börnum sínum vísdóm og ríka
andlega reynslu, leiðir hann þau ekki
bara í skóla krossins heldur háskóla
þjáninganna.“ Trú okkar á eigin styrk
verður að brjóta niður og við verðum
að læra að verða háð Guði. Páll post-
uli háði einmitt slíka baráttu. Er hann
nálgaðist leiðarlok lífsins sagði hann
sig vera mestan allra syndara (1. Tím.
1:15).
Til eru þeir sem hafa tapað akkeris-
festunni í orði Guðs og fyrirgefningu
syndanna. Þeir sækjast eftir miklum
opinberunum og segja að einkenni
sigrandi trúarlífs séu mikil andleg
trúarreynsla og fögnuður sjöunda
himins. Þeir eru svo uppteknir af sín-
um eigin andlegheitum að heilagur
andi Guðs kemst ekki að. En ef hann
fær að komast að, þá fellur slör yfir
eða brotnar sá spegill sem þeir spegla
sig f. „Náð mín nægir þér, því að
mátturinn fullkomnast í veikleika“ (2.
Kor. 12). Þegar við erum veik í sjálf-
um okkur erum við sterk, þegar við
erum fátæk erum við rík. Þegar við
erum eignalaus eigum við allt.
Það er ekki alltaf auðvelt að greina
á milli árása Satans og umvöndunar
Andans. Er við höfum tekið á móti
Jesú búa tvö eðli í okkur, hið gamla
eðli sem er syndugt og hið nýja eðli
sem Guð skapar fyrir trúna á Jesúm.
Þessi tvö eðli eiga í stöðugri baráttu
allt okkar líf og þannig er það alltaf í
heilbrigðu trúarlífi.
Ef allt gengur eðlilega fyrir sig, nær
hið nýja eðli yfirhöndinni smám
saman þó að kristnum manni finnist
það ekki vera svo. En þegar við sjáum
meira af synd okkar og veikleika verð-
ur það ennþá stórkostlegra að fá að
lifa í náð Guðs og fyrirgefningu synd-
anna.
Davíð konungur fékk að reyna
bæði árásir Satans og umvöndun
Andans. Hann drýgði miklar syndir.
En hann sagði Guði frá því öllu og
fékk fyrirgefningu. „Byrg auglit þitt
fyrir syndum mínum og afmá allar
misgjörðir mínar. Skapa í mér hreint
hjarta, ó, Guð, og veit mér nýjan,
stöðugan anda“ (Sálm. 51:11-12).
Þetta er leyndardómur sigrandi
trúarlífs, að koma til Guðs með allt,
syndir, sorgir, erfiðleika, efasemdir,
allt sem mætir okkur í lífinu. Þú spyrð
ef til vill: „Var það bara þetta? Ég hélt
að ég ætti að verða betri og heilagri,
að geta ráðið við allt sem að höndum
ber.“
Hér kemur einmitt leyndardómur-
inn sem er mörgum svo erfiður. Fyrir
fulltingi hans. Það er Jesús sem vill fá
að starfa í lífi þínu, fá að komast að og
gefa þér það sem hann sér að þú þarft
á að halda.
Þetta varðar ekki bara þetta líf. Jes-
ús hefur sigrað - fyrir þig. Hann reis
upp frá dauðum, sigraði Satan, synd-
ina og dauðann. Svo færð þú að eign-
ast hlutdeild í þessum sigri. Þín bíður
eilíft líf með Guði.
Jesús hefur sigrað, þess vegna hefur
þú sigrað. Þú færð að halda í vonina
um eilíft líf þegar allt virðist vera á
móti þér. „Dauði, hvar er sigur þinn?
Dauði hvar er broddur þinn? En synd-
in er broddur dauðans og lögmálið afl
syndarinnar. Guði séu þakkir sem gef-
ur oss sigurinn fyrir Drottin vorn
Jesú Krist. Þess vegna, mínir elskuðu
bræður, verið staðfastir, óbifanlegir,
síðauðugir í verki Drottins. Þér vitið
að erfiði yðar er ekki árangurslaust í
Drottni“ (1. Kor. 15:55-58).
13