Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1988, Side 16

Bjarmi - 01.03.1988, Side 16
end með f i: semer - Stína, svo við byrjum nú á byrjun- inni: Ég man lengst eftir þér búandi í Hafnarfirði. Ertu innfæddur „Gafl- ari“? - Nei, nei. Ég er fædd í Kaupmann- ahöfn, bernskuárin bjó ég í Reykja- vík, en unglingsárin í Mosfellssveit. Fjölskylda mín flutti til Reykjavíkur þegar ég var tveggja ára, og við bjugg- um í gamla Búnaðarfélagshúsinu við Tjörnina. Þaðan var stutt fyrir okkur systkinin að sækja sunnudagaskóla Kristniboðsfélaganna í Betaníu. 14 ára gömul fór ég að sækja KSS-fundi, þá flutt í Mosfellssveit, en ég var hins vegar hvorki í yngri deild né unglinga- deild í KFUK. Á menntaskólaárunum kynntist ég fólki í Hafnarfirði og við fórum þang- að þrjár systur á nokkra unglinga- deildarfundi í KFUK, sem þá voru fámennir. Með einhverjum hætti kall- aði það á okkur, að þar vantaði fleira starfsfólk, svo að næsta vetur gerð- umst við sveitarstjórar í unglinga- deildinni þar. Þegar ég síðan hafði lokið námi í menntaskóla og kennara- skóla, var Hafnarfjörður kristniboðs- akurinn, sem kallaði á mig. Seinna langaði mig til að fara lengra út á land í fámennið, þar sem einstaklingurinn týnist ekki alveg í mannmergðinni. - Fannst þér þú vera að fara út á land, þegar þú fluttist til Hafnarijarð- ar? - Já, mér fannst það svona hálft í hvoru. Hafnarfjörður var í það minnsta spölkorn frá Reykjavík, og það voru ekki margir sem fóru úr Reykjavík til að aðstoða reglulega í starfinu þar. Mér fannst mjög gaman að taka þátt í unglingastarfinu, og tvö sumur starfaði ég í Kaldárseli, auk styttri tímabila, svo áður en ég vissi af hafði ég skotið rótum í Hafnarfirði. Ég kenndi í Öldutúnsskóla en lagði jafnframt stund á BA-nám í dönsku og landafræði við Háskólann og síðan uppeldis- og kennslufræði. Mér líkaði svo vel hlutskipti mitt í Hafnarfirði, að ég hélt á tímabili, að ég yrði í kennslustarfi í Öldutúni til eilífðar, þótt ég skryppi að vísu einn vetur til að kenna í Danmörku, ásamt Eddu systur minni, eftir BA-námið og kennslufræðina. - Hvað kom til að þú lagðir kennsl- una á hilluna? - Kennsla er krefjandi og tímafrekt starf. Mér fannst ég þreytt og mig var farið að langa að breyta til. Auk þess ónáðaði það mig óþægilega, að hafa ekki meiri tíma til að sinna kristilegu starfi. Svo losnaði staða aðstoðaræskulýðs- fulltrúa hjá kirkjunni sumarið 1976, og mér hlotnaðist eina staðan á land- inu, sem til var fyrir leikmann í fullu starfi innan kirkjunnar! í þessu starfi var ég í sex ár, og sú reynsla sem ég öðlaðist þar, finnst mér hafa verið ákaflega lærdómsrík. Fjögur fyrstu árin var ég staðsett í Reykjavík, en á því tímabili bættist við staða fyrir norðan, og var ég á Akureyri tvö síð- ustu árin. Ég kynntist mörgum prest- um og margvíslegu samhengi innan kirkjunnar um allt land, því þetta starf var í raun aðstoðarstarf við alb. presta landsins. Ég kynntist ekki aðeins prestunum sem einstaklingum og vinum, heldureinnig aðstæðum þeirra og starfsaðstöðu, sem óhætt er að segja, að sé talsvert ólík því sem við eigum að venjast í kristilegu leik- mannahreyfingunum. Mjög víða inn- an kirkjunnar er presturinn allt að því aleinn með óteljandi verkefni, sem okkur í leikmannastarfinu myndi aldrei detta í hug að leggja á neinn einstakling, jafnvel þótt hann væri í fullri vinnu við það. Okkur kæmi und- Stínu Gísladóttur þarf vad ‘ Hún hefur víða komið við sög1' hreyfinga, sem standa að útgáf1 ari og síðan aðstoðaræskulýðs' hún settist aftur á skólabekk Nú eru enn ný tímamót í 1'. sem farprestur íslensku þjóðk1 ^ aði upp á hana daginn eftir vig- 16

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.