Bjarmi - 01.03.1988, Blaðsíða 23
Enn hljómar kallið
^VASA: Mikil gleði ríkti meðal
norrænna samstarfsmanna okkar í
Eþíópíu á kristniboðaráðstefnunni
sem haldin var á hvíldarstaðnum
Avasa dagana 13.-18. janúar. Þar
voru engir fslendingar að þessu sinni
en kveðjur hafa borist frá ráðstefnu-
gestum.
Kristniboðarnir voru bjartsýnni um
starfið í Eþíópíu en þeir hafa verið um
langt skeið. Þeir hafa nú flestir fengið
atvinnuleyfi sín endurnýjuð. Margir
söfnuðir sem voru truflaðir í starfi
sínu hafa nú fengið fullt frelsi til
athafna. Samband kirkju og yfirvalda
hefur batnað til muna. Sums staðar
hvetja yfirvöld jafnvel kirkjuna til
dáða.
Vegna þessara breytinga gefast aftur
tækifæri til að fara til nýrra staða og
boða þar fagnaðarerindið. „Kallið frá
þessum stöðum, sem ekki hefur enn
náðst til, hafði mest áhrif á kristniboð-
ana á ráðstefnunni,“ sagði Skúli Svav-
arsson við Bjarma þegar hann var
inntur eftir fréttum frá Avasa. Kristni-
boðarnir voru órólegir þegar þeir
hugsuðu til allra heiðnu þjóðflokk-
anna sem eru alveg í grenndinni við
núverandi starfsstöðvar og hafa þó
I
Beint í mark?
^AÍRÓBÍ: Rúmlega 50 kristniboðar,
flestir norskir en einnig íslenskir,
komu saman á árlegri ráðstefnu í
Naíróbí, höfuðborg Kenýu, 4.-12.
Janúar. Kristniboðarnir eru nokkuð
öreifðir um Kenýu og þykir mörgum
Það jafnan hápunktur dvalarinnar í
'andinu þegar þeir hittast allir eins og
eir> fjölskylda, ræða saman um starfið
°8 veita hver öðrum hlutdeild í
ahyggjum og gleði. Á ráðstefnunum
Cr ætíð varið góðum tíma til lesturs
Eiblfunnar og bænahalds.
Skýrslur, fjármál og kosningar í
stJórn og nefndir eru meðal fastra liða
a ráðstefnunum. Tvö önnur mál voru
efst á baugi að þessu sinni. Annað var
niðurstaða nefndar sem hafði kannað
°8 metið starf kristniboðsins í landinu
^ndanfarinn áratug. Var haft í huga
lv°rt unnið hefði verið nógu mark-
visst og hvernig gera mætti betur.
í kveðju frá Hrönn Sigurðardóttur,
sem sat þingið, segir m.a.: „Von okk-
ar er sú að endurmatið verði okkur til
hjálpar í framtíðinni í því starfi sem
við erum að vinna, að boða fagnaðar-
erindið um Jesúm Krist, Pókotmönn-
um til hjálpræðis.“
Hitt meginmálið var áætlun um
byggingar á lóð kristniboðsins í
höfuðborginni. Þar eru skrifstofur
kristniboðsins og norski skólinn auk
íbúðarhúsa þeirra sem starfa þar.
Horfur eru á að skólabörnum fjölgi á
næsta ári (þau koma líka frá Tansan-
íu) og þarf því að auka húsrými fyrir
skólann og heimavist. Gert er ráð fyrir
að skólinn geti tekið 75 nemendur,
þar af 60 í heimavist.
Kristniboðarnir voru að sjálfsögðu
með fjölskyldur sínar á ráðstefnunni.
ekki heyrt fagnaðarerindið. Meðal
þessa fólks tíðkast enn margir grimmi-
legir siðir.
Kristniboðarnir voru einhuga um
að senda þessa hvatningu til kristni-
boðsvina: „Gerum allt sem í okkar
valdi stendur til að hjálpa þeim þjóð-
flokkum á starfssvæði okkar í Eþíópíu
sem ekki hefur enn náðst til.“ Þing-
fulltrúar þökkuðu jafnframt kristni-
boðsvinum. Það eru þeir sem gera
þeim kleift að starfa í landinu. „Það
eru forréttindi að fá að vera kristni-
boði í Eþíópíu," segja kristniboðarnir
í kveðju sinni.
„Ýmislegt var gert fyrir börnin; busl-
að í sundlauginni, efnt til fótbolta-
keppni og haldið fjölskyldukvöld þar
sem við grilluðum og skemmtum okk-
ur við söngog leik,“ segir Hrönn. Hún
flytur íslenskum kristniboðsvinum
kveðjur frá þinginu.
23