Bjarmi - 01.03.1988, Qupperneq 25
Hver er sem þú?
Þegar við komum heim úr fríi feng-
um við þá miklu sorgarfregn, að Krist-
ine væri dáin! Síðasta daginn sem hún
lifði hafði faðir hennar verið sóttur og
nú hlustaði heiðinginn á uppgjör deyj-
andi dóttur sinnar. Hún bað mömmu
sína að fyrirgefa sér allar lygarnar og
Þjófnað, hún bað okkur Kjartan fyrir-
gefningar en Guð fyrst og fremst. Hún
bað þess að annast yrði um barnið, og
svo dó hún sem kristin stúlka í vissu
um fyrirgefningu syndanna. Þetta var
°kkur öllum, ekki síst unglingunum í
kórnum, sterkur vitnisburður. Litla
barnið var síðan á ungbarnadeild spít-
alans, en það veiktist og dó svo nú um
daginn.
Framundan eru réttarhöld, barns-
faðirinn er búinn að múta fjölda
manns. Enginn veit hvernig réttar-
höldin fara, hve langt í raðir ráða-
manna búið er að múta til stuðnings
óréttlætinu.
En Guð yfirgefur ekki sína. „Hver
er slíkur Guð sem þú, sem fyrirgef-
ur . . . misgjörð þeirra og umber frá-
hvarf þeirra, - sem eigi heldur fast við
reiði sína eilíflega, heldur hefur unun
af að vera miskunnsamur?“ (Míka
7,18).
Kæru vinir, verið með í fyrirbæn
fyrir öllu þessu ólánsama fólki, sem
þekkir ekki Jesú. Neyð heiðingjanna
er mikil. Þeir eru svo margir en trú-
fasta verkamenn vantar.
Valdís, Kjartan og börnin
KÍNA:
Gættu að þér,
munnur . . .
Kirkjuhreyfingin „Þijú sjálT' í
Kina hefur afhent prestum sínum í
hafnarborginni Fuzhou við For-
mósusund lista yflr atriði sem
bannað er að ræða um i prédikun.
Fullyrt er að þetta bann gildi í öllu
Kínaveldi, segir China Hews and
Church Report.
Hér eru nokkrir þættir á listan-
um: Ekki má prédika um endur-
komu Jesú, um að þjást vegna
Jesú, um að elska ekki heiminn,
um að reka út illa anda og lækna
sjúka. Ýmsum þykir þá lítið eftir
handa þeim prestum sem vilja vera
trúir Biblíunni. Þess er getið að
enn síður séu líkur á því að prédik-
að sé um efni eins og fóstureyðing-
ar og blönduð þjónabönd (kristnir
og ekki kristnir), slíkt má ekki
nefna á nafn.
ENGLAND:
Múhameð sæklr á
Enn er anglikanska kirkjan ríkis-
kirkja í Englandi. Þó vex hún ekki
hraðast. f fréttum segir að talið sé
að einungis 1,5 milfjónir af 22 mill-
jónum Englendinga eigi lifandi,
persónulega trú á Krist.
Þessu er mjóg á annan veg farið
þegar litið er til múhameðstrúar
manna. Arið 1960 voru bænhús
þeirra í Englandi færri en 12. INú
eru þau 314 talsins! Múslímar eru
fleiri en baptistar og meþódistar
til samans.
Kristnum mönnum sem starfa af
áhuga fer sífellt fækkandi. Jafn
framt fjölgar fólki sem tilheyrir
annarlegum trúarbrögðum og sér
trúarhópum, m.a. hindúum. Sat-
ansdýrkendur eru nú 15 þúsund.
helmingi fleiri en fyrir flmm árum,
segir í erlendum blöðum.
Þetta er eitt af mörgum dæmum
um fráhvarf frá kristinni trú og
kristnum viðhorfum víða um Vest-
urlönd.
25