Bjarmi - 01.07.1998, Qupperneq 3
STALDRAÐ VIÐ
TIMARIT UM TRUMAL
Utgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfálaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Guðmundur Karl Brynjarsson,
°9 Kjarlan Jónsson.
Áfgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,
Pósthólf 4060,124 Reykjavík,
sími 588 8899, bréfsími 588 8840.
^rgjald: Kr. 2.800,- innanlands, kr. 3.300,-
*il útlanda. Gjalddagi 1. mars.
^rö í lausasölu kr. 500,-.
Umbrot og útlit: Áhrif ehf. Kringlunni 6.
Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl.
frentun: Borgarprent.
4Björn Bjarnason er
þeirrar skoöunar aö
kristin fræöi beri aö
kenna í öllum skólum.
7Gunnar J. Gunnars-
son fjallar um
kristin fræöi í nýrri
námskrá grunnskóla.
^^VRætt viö
IwGuölaugu
Björgvinsdóttur og
Hrund Hlööversdóttur
um stofnun félags
kristinfræóikennara.
ty Sr. Siguróur
I h Pálsson fjallar
um siöfræði,
trúarbrögö og
lífsskoðanir i
framhaldsskólum.
Biskup íslands,
IO herra Karl
Sigurbjörnsson, vísiterar
dóttursöfnuói í Eþíópiu
og Kenýu.
4 Q Haraldur Jóhannsson
IIJ fjallar um ráöstefnu
sem haldin var í Háteigs-
kirkju í tilefni heimsóknar
biskups íslands til
kristniboóslandanna.
OO Viótal viö Arne
Tord Sveinall sem
var gestur Biblíuskólans
vió Holtaveg á vordögum.
Kristin fræði
á nyrri öld
Það vakti verulega athygli þegar
menntamálaráðherra, Björn Bjarna-
son, sendi í vetur bækling inn á hvert
heimili í landinu til kynningar á nýrri
skólastefnu undir yfirskriftinni: „Enn
betri skóli, þeirra réttur - okkar
skylda", og bauð til umræðna um
hana. Framtak sem þetta er mjög
virðingarvert og mikilvægt að gefa
foreldrum kost á að fylgjast með og taka jafnvel þátt í mótun skólastefnunnar sem
verður í gildi við upphaf nýrrar aldar.
Það vakti þó undrun margra sem láta sér annt um kristin fræði í grunnskólum
að þeirrar námsgreinar var hvergi getið í bæklingnum um nýju skólastefnuna
þrátt fyrir að greinin sé ein af lögboðnum námsgreinum skólans samkvæmt
grunnskólalögum. Sumir óttuðust að nú væru dagar greinarinnar brátt taldir. Sá
ótti var þó líklega ástæðulaus þótt vitað sé um dæmi þess að einstaka skólar sinni
henni lítið eða ekkert. Menntamálaráðuneytið sendi frá sér annan bækling til
ýmissa umsagnaraðila til frekari kynningar á tillögum um einstakar námsgreinar í
nýrri námskrá grunnskólans. Þar er meðal annars gerð grein fyrir tillögum um
markmið náms í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum. Þær tillögur
eru kynntar í þessu tölublaði Bjarma ásamt viðtali við Björn Bjarnason
menntamálaráðherra um stöðu og hlutverk kristinna fræða í skólum landsins.
Hlutur kristinna fræða í skyldunámi barna á íslandi hefur farið minnkandi alla
þessa öld. Samt sem áður eru margir þeirrar skoðunar að þetta sé ein af
mikilvægari námsgreinum skólans. Fyrir því er hægt að færa ýmis rök, bæði
söguleg, menningarleg og félagsleg. íslensk saga, menning og samfélag er mótað af
kristnum hugmyndum og gildismati. Trú og siðferði þjóðarinnar byggir á kristni.
Ef ætlunin er að viðhalda þeim arfi með þjóðinni er mikilvægt að kennsla í
kristnum fræðum sé efld. Og líklega eru margir þeirrar skoðunar að ekki veiti af
að stiykja trúar- og siðferðisgrundvöllinn sem við viljum byggja á. Kannanir sýna
líka að mikill meirihluti foreldra vill að kristin fræði séu kennd í grunnskólum
landsins og margir þeirra vilja jafnvel að tímum í greininni sé fjölgað.
Kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði er mikilvæg námsgrein í grunn-
skólanum. Það þarf því að styrkja stöðu hennar í skólum landsins og gera kenn-
ara betur í stakk búna til að sinna henni. Greinin ætti jafnframt að eiga heima i
framhaldsskólanum. Það vekur nokkra athygli að hér á landi skuli talin lítil þörf á
því að framhaldsskólanemar fræðist um helstu trúarbrögð og lífsviðhorf og fáist
við siðfræði í námi sínu. í nágrannalöndunum er það hins vegar talið mikilvægt til
að gera nemendur færari um að skilja heiminn sem þeir lifa í og hæfari til að
takast á við lífið.
Kristin fræði eiga vonandi eftir að skipa mikilvægan sess í nýrri skólastefnu og í
skólastarfi hér á landi á komandi öld. Allir sem telja það mikilvægt að kristinn
trúar- og siðgæðisarfur varðveitist og eflist með þjóðinni hljóta að láta sér annt
um þessa námsgrein og leitast við að standa vörð um hana.
/(^t/vAMAO/V J . /C^,