Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1998, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.07.1998, Qupperneq 4
u Gunnar J. Gunnarsson Eg er þeírrar skoðunar segir Björn Bjcirnczson rnenntamcdciráðherrcz í viðtczli luri tcristinjræði í nýrri shólczstefrzu Að undanförnu hefur Björn Bjarnason menntamálaráðherra kynnt nýja skólastefnu, bæði með útgáfu bæklings sem sendur var inn á heimilin í landinu og á fundum viða um land. Af því tilefni og vegna endurskoðunar á aðalnámskrám grunn- og framhalds- kóla hafði Bjarmi samband við mennta- málaráðherra og lagði fyrir hann nokkrar spumingar um stöðu kristinna fræða í nýju skólastefnunni. Hann brást vel við og fara spurningarnar og svör ráðherra hér á eftir. Krístinnafræða er hvergi getið í bæklingi sem sendur var inn á öll heimili í landinu til að kynna nýja skólastefnu. Hver verður staða kristinna fræða samkvæmt nýrri skólastefnu og aðalnámskrá grunnskólans og hver verður hlutur hennar á stundaskrá skólanna á komandi árum? Ég varð vissulega var við það á þeim fundum sem ég efndi til um nýju skólastefnuna að menn tóku eftir því að ekki er sérstaklega vikið að kristnum fræðum í bæklingnum Enn betri skóli, þeirra réttur - okkar skylda. Ástæðan er sú, að bæklingurinn er knappur og þar er stiklað á stóm og einkum nýmælum. Hefði ætlunin verið að leggja niður kennslu í kristnum fræðum, hefði þess verið getið í bæklingnum! Þögnina ber ekki að túlka sem áhugaleysi mitt á þvi að kristin fræði verði áfram kennd í íslenskum skólum. Við höfum nú geflð út ítarlegri greinar- gerð um nýju skólastefnuna og sent hana til umsagnar hjá hinum formlegu umsagnaraðilum. Þar er sérstakur kaíli um kristin fræði, sem byggist á áliti forvinnuhóps við námskrárgerðina, sem fjallaði um þessa námsgrein. Þar er meginmarkmiðum með kennslu í kristn- um fræðum lýst með þessum hætti: „Meginmarkmið með kennslu í kristnum fræðum í grunnskóla. í samvinnu við heimilin og í samræmi við markmið grunnskólans á nám í kristnum fræðum að efla trúarlegan, siðferðislegan og félagslegan þroska nemenda með þvi að þeir • öðlist þekkingu á Biblíunni og krist- inni trú sem menningararfi og upp- sprettu trúar, siðgæðis og lífsviðhorfa, Ég varð vissulega var við pað á peiun fundum sem ég efndi til um nýju skólastefnuna að menn tóku eftir pví að ekki er sérstaklega vikið að kristnum fræðum íbæklingnum Enn betri skóli, peirra réttur - okkar skylda.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.