Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1998, Side 6

Bjarmi - 01.07.1998, Side 6
Sérhvert þjóðfélag byggir á ákveðnum grundvallar- gildum. Skólanum er ætlað að miðla slíkum gildum. I íslensku samfélagi eiga þessi gildi sér kristnar rætur. lýsir meginmarkmiðum með kennslu í kristnum fræðum í grunnskóla. Ég vil birta aðra kafla sem ég er hjartanlega sammála: „Umfjöllum um trú og lífsskoðun tengist leit fólks að svörum við spum- ingum um merkingu lífsins og hluti af sjálfsmynd þess er ákveðið lífsviðhorf og gildismat. Það felur þó ekki í sér að skólanum sé ætlað að þröngva ákveðn- um trúarlegum viðhorfum upp á nem- endur. Hann á að veita þeim tækifæri til að þorska með sér skilning á trúar- legum þáttum mannlegs lífs og fæmi í að fást við trúarleg viðfangsefni og stuðla að því að þeir öðlist forsendur til að taka trúarlega afstöðu á grundvelli þekkingar og skilnings. Sérhvert þjóðfélag byggir á ákveðnum gmndvallargildum. Skólanum er ætlað að miðla slíkum gildum. í íslensku samfélagi eiga þessi gildi sér kristnar rætur. Nægir þar að nefna virðingu einstaklingsins íyrir sjálfum sér og öðr- um manneskjum, íyrir mannréttindum og helgi mannlegs lífs, umhverfinu og öllu lífi.“ í nágrannalöndunum eru kristin Jræði, trúarbragðafræði og siðjræði viðurkennd námsgrein íjramháldsskólum en þekkist hins vegar varla hér á landi nema sem lítil valnámskeið í einstaka skóla. Má báast við að þessum Jræðum verði í alvöru komið á dagskrá í framhalds- skólum landsins með nýrri námskrájyrir Ég er þeirrar skoðunar að veita eigi fræðslu á þessu sviði í framhalds- skólum. Raunar er ég ekki nægilega vel að mér í skólasögunni til að skýra hvers vegna þróunin hefur verið önnur hér á landi en annars staðar að þessu leyti. Er það næsta furðulegt þegar til þess er litið að t.d. Menntaskólinn í Reykjavík, elsti framhaldsskólinn, er arftaki þeirra skóla sem störfuðu á biskupssetrunum og snémst einkum um guðfræðileg efni. Því er ojt haldið Jram að menning okkar og samjélag mótist aj kristinni trú og lífsskoðun þótt ýmsir áliti að þau áhrif Jari stöðugt minnkandi. Hvert er gildi þess að menning okkar og samjélag mótist af kristni og hejur skólinn ein- hveiju hlutverki að gegna í því að stuðla að því að svo verði ájram? Skólinn hefur miklu hlutverki að gegna i þessu tilliti. Sjálfur óttast ég ekki að skólinn víki sér undan eðlileg- um skyldum í þessu efni og á raunar von á því að kröfur um fræðslu á þessu sviði eins og i andlegum efnum almennt eigi frekar eftir að aukast en minnka. Tíðarandinn er þannig að mínu mati að ungt fólk og foreldrar gera sér betri grein en áður fyrir gildi kristinnar trúar við alla uppfræðslu. Raunar er það svo, að sú hreyfing sem hrífur hvað flesta með sér í heiminum um þessar mundir tengist kristinni trú og skírn í þágu hennar. Hvaða giidi hejur kristin trú og iíjs- skoðun Jgrir þig sjáljan? Kristin trú hefur mikið gildi íyrir mig og ég hef leitast við að rækta hana eftir bestu getu. Bjarmi þakkar ráðherra svörin og óskar honum alls góðs við að framfylgja nýju skólastefnunní.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.