Bjarmi - 01.07.1998, Page 7
Kristin fræði í nyrri
námskrá grunnskóla
Skólamál hafa verið mikið til
umræðu undanfarið enda
stendur yfir endurskoðun á
aðalnámskrám grunn- og
framhaldsskóla. Menntamála-
ráðuneytið hefur sent kynningarbækling
inn á heimili landsins undir yíirskriftinni:
„Enn betri skóli, þeirra réttur - okkar
skylda." Þar eru kynntar helstu áherslur í
nýrri skólastefnu. í framhaldi af þvi sendi
ráðuneytið út ítarlegri bækling til ýmissa
umsagnaraðila og er þar meðal annars að
finna nánari lýsingu á námsgreinum
grunnskólans og markmiðum þeirra.
Svipaðar upplýsingar er einnig að flnna á
heimasíðu ráðuneytisins um endur-
skoðun aðalnámskránna.
Meginmarkmið kristinna
fræða
Ein af lögboðnum námsgreinum grunn-
skólans er kristin fræði, siðfræði og
trúarbragðafræði. Þegar hafa verið
lagðar fram tillögur að markmiðum
greinarinnar og nánari útfærslu þeirra
fyrir einstök stig grunnskólans. Þá eru
jafnframt færð rök fyrir greininni og
áherslum hennar. Ekki er úr vegi að
kynna helstu atriði tillagnanna fyrir
lesendum Bjarma en samkvæmt þeim
eru meginmarkmið greinarinnar þessi:
„I samvinnu við heimilin og í sam-
ræmi við markmið grunnskólans á nám
í kristnum fræðurn að efla trúarlegan,
siðferðilegan og félagslegan þroska
nemenda með því að þeir: